Húsfreyjan - 01.12.1950, Qupperneq 22

Húsfreyjan - 01.12.1950, Qupperneq 22
sé á að leirtau brotni, sem frekar á sér stað, ef hæðarmunur er í miðju borði. Það er einnig varbugavert, að vaskur sé svo nálægt eldavél, að bægt sér að snerta bvorttveggja samtímis, því að raf- magnið getur leitt út. Við livern vinnu- stað þarf að geyma öll áböld, sem þar á að nota, sömuleiðis þurrvöru og krydd, sem mest er notað, til þess að allt sé við hendina, sem nota skal. VINNUBORÐIÐ. Vinnuborðið er mikilvægasti vinnustað- ur eldliússins. Það á að vera ca. 100—120 sm. langt, 60 sm. breitt og 86 sm. hátt. Breiddin er miðuð við þægilega drag- lengd og hæðin við meðalhæð kvenna (164 sm.). Vinnuborðið á að innrétta eins og skrifborð með skápi til annarar handar en skúffum til hinnar. Undir miðju borðinu á að vera pláss fyrir fæt- uma, svo að þægilegt sé að vinna sitj- andi við borðið. Mörg störf er auðvelt og fljótlegt að vinna sitjandi, ef við venjurn okkur á það. Þá lýjumst við síður og hlífum fótunum, en livorttveggja er mikilvægt fyrir hina störfum hlöðnu húsfreyju. 1 vinnuborðinu eða við það eru geymd þau áliöld, sem þar þarf að nota, svo og krydd og ýmiskonar þurr- vörur, mjöl, sykur o. fl., sem mikið er notað við matartilbúninginn. Línóleum eða plastik-klæðning á vinnu- borðið er ágæt — þó verðum við að muna að plastik þolir ver mikinn liita. UPPÞ V OTT AB ORÐIÐ. Uppþvottaborðið er oft sambyggt vinnu- borðinu, er það gott fyrirkomulag, nema ef margir eru í heimili og uppþvottur mikill, þá er betra að það standi sér. Þá þarf það að vera 160—180 sm. langt, breiddin á að vera 60 sm. og hæðin 90 sm. Af hreinlætisástæðum er betra að bafa vaskaskálarnar tvær og taka þær þá ca. 70 sm. borðpláss báðar. Borð- pláss sín livorum megin við vaskaskálar má ekki vera minna en 50 sm. — meira ef margt er í heimili. Sé vaskaborðið áfast við vinnuborðið má stytta það um 50 sm. eða sem svarar borðplássi hægra megin við vaskaskálarnar, en vinnuborðið kemur þá í staðinn. Bezta klæðning í vaskaborð er stál, er það látið ná a. m. k. yfir borðið til vinstri við vaskinn. Plastik er einnig ágæt klæðning á vaska- borð — en munið að hún er viðkvæm fyrir miklum bita og logandi eldi, t. d. logandi sígarettu. Við vaskinn er komið fyrir þeim brein- lætistækjum og áhöldum, sem þar á að nota. Skápurinn undir vaskaborðinu þarf að vera vel loftsræstur, svo að ekki mynd- ist saggi. Hentugt er að geyma ruslfötuna á sillu innan á skáphurðinni, en í skápn- um á helzt sem minnst að geyma. ÞURRKU SKÁPUR. Klúta og bursta ætti að geyma í sér- stökum skáp, sem gott er að bafa yfir miðstöðvarofni, svo að klútar og burstar þorni á milli þess, sem þeir eru notaðir. Það er aldrei nógsamlega brýnt fyrir fólki að þrífa vel bæði klúta og bursta, sem notað er í eldbúsinu. Hvergi er betri gróðrarstía fyrir bakteríur, en í rök- um og óhreinum klútum, sem geyntdir eru samankuðlaðir á hlýjum stað. Hæfi- legur ylur og raki veita bakteríum ákjós- anlegustu lífsskilyrði, svo að þær geta bundraðfaldast á skömmum tíma — þetta ættu húsmæður að liafa bugfast. Bezt er að láta leirtau þorna í þurrkgrind, það sparar bæði tíma og fyrirliöfn og er auk þess hreinlegra. Yfir vaski eða til hliðar við liann er er bezt að geyma a. m. k. leirinn, sem notaður er hversdagslega, þá er bægt að raða honum beint í skápinn, þegar hann er þurr. Bil milli vaska- eða 22 HÚSFREYJAN

x

Húsfreyjan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.