Íþróttablaðið - 01.07.1927, Qupperneq 8

Íþróttablaðið - 01.07.1927, Qupperneq 8
64 ÍÞRÓTTABLAÐIÐ Tvö smá samsæti voru haldin í sambandi við námsskeiðið, hið fyrra til kynningar, en hið síðara kveðju-samkoma. Voru á þeim margar ræður haldnar. Landlæknir, Guðm. Björnson gerði allvíðtækar mælingar á námsskeiðsmönnunum bæði er þeir byrj- uðu og enduðu námsskeiðið. Er mikið á þeim að læra, og getur íþróttablaðið vonandi flutt lesendum sínum skýrslu landlæknis áður en langt um líður. Slík námskeið sem þessi tvö, er í. S. í. hefir nú haldið, eru mjög nauðsynleg og góð, en þeim þarf að fjölga og þau þurfa að vera víðar. á land- inu. Það mundi efla mjög íþróttaiðkun og áhuga út um landið, en á því er mikil þörf. Einkum er áríðandi að koma á slíkum námsskeiðum á góðum stöðum til sveita. Því þar sem kyrð er og næði og ekkert truflar, þar má ná margfalt meiri og betri árangri heldur en í hringyðuglaumi bæjalífs- ins, og það á margfalt styttri tíma. Að koma á námsskeiðum á slíkum stöðum er því margfaldur sigur fyrir málið: meiri árangur, fastara, ótruflað nám, ódýrara uppihald og minna tímatap fyrir ein- staklingana, sem vegna alls þessa koma fleiri og fleiri á námsskeiðin. Og með vaknaðri þekkingu munu þeir áhugasömustu og athugulustu brátt finna, að þeir þurfa á meiri lærdómi að halda til að verða fullkomnir kennarar, svo að þeir hafa einhver ráð til að afla sér þeirrar kenslu þar, sem hana er næst að finna. Þessi ummæli, að sveitanámsskeið séu betri og affarasælli en kaupstaðanámsskeiðin, eru ekki gripin úr lausu lofti. Bæði innlend og erlend reynsla kennir það rækilega. Má þar benda á barnakenslu- árangurinn til sveita og í kaupstöðum þrátt fyrir alt að og meir en helmingi styttri námstíma, og á skoðanir lýðháskólamannanna og reynslu í ná- grannalöndum okkar. Fer þeim ólíkt, er þeir velja skólunum sínum staði, eða þeim mönnum á Suðurlandsundirlendinu, sem helst vilja byggja hinn fyrirhugað Alþýðuskóla »um þjóðbraut þvera«, til þess að nemendurnir geti verið sem mest og best truflaðir við námið og eigi sem hægast með að gleypa í sig sem mest af þeim »læpuskapsódygð- um«, — andlegum og líkamlegum pestum, — sem að þeim kunna að berast með almenningsfarar- tækjum þjóðveganna. B r éf a merki í. S. í., gefin út til að safna með fé til Olympíufarar o. fl. Prenfuð með tveim litum. — Þarna er, meðal margra annara, taekifæri til að stfna hug sinn til íþrótta- og heilbrigðismála þjóðarinnar. Kaupið merkin — spyrjið eftir þeim — og notið þau á bréf yðar. Nei, sem flestir slíkir skólar og slík námsskeið, sem ætlað er að gefa nemendum sem mesta og besta þekkingu og kunnáttu á sem allra skemst- um tíma og með sem minstum tilkostnaði, þurfa og eigi að vera í sveit, sem fjærst glaumnum, á góðum, fallegum stað, en svo afsíðis, að andlegir og líkamlegir »flakkarar<- verði beinlínis að taka á sig krók til að koma þar við. Þar sem allir nem- endurnir búa við samskonar aðbúnað og matar- æði á einum stað, með eitt takmark óskift, sam- eiginlegan áhuga, sameiginlegar skemtanir og alveg sameiginlegt nám og eru undir góðri stjórn eins og á góðu, stóru heimili, þar verða notin bezt bæði af bóklegu og verklegu námi. Þar koma engin aðvífandi, óviðkomandi áhrif til að fleiga í sundur, brjóta og tvístra námsáhrifunum. Þó að þessi þrjú námsskeið, sem haldin hafa verið hér í Rvík., hið fyrsta af í. R. 1922 og hin tvö nú síðan (1925 og ’26—’27) af í. S. í. og U. M. F. í. hafi öll verið eftir atvikum góð og gert mikið gagn, og sjálfsagt sé að halda áfram með þau, þá er það betra sem betra er. Og, eins og ég tók áður fram, þá fyrst er við fáum komið á föstum íþróttanámsskeiðum á góðum stöðum til sveita, þá fyrst förum við að sjá verulegan árang- ur af starfinu út um landið, upp um sveitir og fram til dala. Þá fyrst, en ekki fyr, förum við að finna að verulegum mun þau íþróttamanna efni, sem við þroskun og þjálfun geta borið okkur íslendinga fram í alþjóðafylkingu íþróttamanna. Því þarf að hefja þá stefnu sem fyrst, án þess þó að kasta því frá sér, sem þegar er hent1). 1) Að henda, að grípa, hafa hönd á, fá í hendi.

x

Íþróttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/843

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.