Íþróttablaðið - 01.07.1927, Síða 10

Íþróttablaðið - 01.07.1927, Síða 10
66 ÍÞRÓTTABLAÐIÐ fyrir því, að fá góðan, erlendan ú(i-íþróttakennara sem allra fyrst. 9.) Fundurinn skorar á í. S. í. að beita sjer fyrir því að sendur sje maður til annara landa til að læra úti-íþróttir. Fundarhlé var frá kl. 8—9. Eftir það komu að eins 18 fulltrúar á fundinn og 8 æfifjelagar. Kl. 111/4 var fundi frestað til þriðjudagskvölds. Þá var honum haldið áfram í Iðnó uppi. Þar var lagt fram kjörbréf fyrir fulltrúa frá U. M. F. Dagsbrún í Miklaholtshreppi. Að honum meðtöldum voru á fundinum að eins 8 fulltrúar og 7 æfifélagar. Var því framhaldsfundurinn ekki ályktunarfær. Af sömu ástæðu féll niður erindi það, er land- læknir ætlaði að flytja. En vonandi fær íþrótta- blaðið að bera það lesendum sínum einhverntíma seinna. Var á fundi þessum ýmislegt rætt á víð og dreif um málefni sambandsins og horfur þeirra, og tilmæli samþykt til sambandsstjórnarinnar. Forseti þakkaði síðast landlækni ágæta fundar- stjórn og sleit hann síðan fundinum kl. IOV2 síðd. Heimanám í íþróttum. Síðan eg byrjaði á Mullersskólanum er nú tæpt hálft fjórða ár. Á þessum tíma hafa fleiri hundruð manns lært 5 mín. kerfið, ýmist í skólanum, hjá fólki sem hefir lokið fullnaðarnámi í kerfinu eða af bók þeirri er eg gaf út veturinn 1925. Allir sem iðka kerfið lofa það að maklegleikum, enda hafa læknar hér í Reykjavík ráðlagt afar mörgu veikluðu fólki að iðka það. Veit eg þess engin dæmi, að æfingarnar hafi ekki borið góðan árang- ur. Mér finst því að eg hafi fulla sönnun fyrir, að hægt sé að iðka líkamsæfingar sér að góðu gagni í heimahúsum. Eg auglýsi því hér í blaðinu enn víð- tækari kenslu í líkamsæfingum en eg hefi áður haft. Að vísu legg eg þar Mullersæfingar til grund- vallar, en mun reyna að gera kensluna svo full- komna og fjölbreytta sem kostur er á. Kensluaðferðin er ný hér á landi. Hún er þannig, að eg sendi fólki nákvæma lýsingu á æfingum þeim, sem eg kenni; læt eg margar myndir fylgja æfingunum, svo trygging sé fyrir því, að fólk geri þær rétt. Þetta ætti að verða sérstaklega þægilegt fyrir fólk, sem býr á afskektum sveitaheimilum. Því er vanalega ókleyft að komast heiman til íþróttanáms, en hefir oft mjög sterka löngun til að fegra og styrkja líkama sinn. Með hinni svonefndu bréflegu kensluaðferð, sem eg ætla að nota, ætti fólk þetta að geta iðkað allskonar íþróttir með ágætúm árangri. Eg vil að þetta námskeið í vetur verði aðeins byrjun á langtum víðtækari starfsemi. Reynslan ein sker auðvitað úr, hvernig þessi áform hepnast. Eg er sannfærður um að við Islendingar verð- um að leggja meiri áherslu á heimanám í iþrótt- um en við hingað til höfum gert. Við verðum ekki íþróttaþjóð með öðru móti. Enda er þetta hægðar- leikur. Fólk ber því að vísu við, að það hafi ekki nógan tíma til líkamsiðkana, en það er undantekn- ingarlítið rangt. Margir segjast ekki hafa húsrúm eða góðan stað til að æfa í, en það hefir ekki oft við rök að styðjast. Konur hafa þó óneitanlega meira til síns máls í þessu atriði en karlmenn. Séu þeir sveitamenn, geta þeir annaðhvort æft sig úti eða inni í fénaðarhúsum. I kaupstöðum eða sjáv- arþorpum er allajafna nægjanlegt húsrúm. Nei, það er yfirleitt hvorki tími eða húsrúm sem vantar, það er vilji og úthald. Hvort heldur það er karl eða kona sem ásetur sér, að fegra og styrkja líkama sinn með íþróttum, verður að hafa bjargfasta trú á sigur góðs málefnis og einbeittan vilja. Þá er góður árangur viss. Jón Þorsteinsson frá Hofsstöðum. Paddock og Borah, eru nú einna bestir spretthlauparar í Ameríku og þó víðar sé leitað; hafa þeir verið í essinu sínu í vor. Þannig hefur Paddock hlaupið 100 yards á 9,8 sek. og 220 yards á 21,8. Borah hefur fengið sama tíma á 100 y. (9,8' ) en 21,4 á sek. 220 y. Og lítt þekfur hlaup- ari, einnig Ameríkani, hefur hlaupið 880 y. á 1’52,2". Er hann þar kominn allnærri heimsmeti Peltzers á þeirri vegarlengd, sem er 1’51,6 sek.

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/843

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.