Íþróttablaðið - 01.07.1927, Qupperneq 11
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
67
Frækilegt sund.
Föstudaginn 15. júlí síðastl. um miðjan dag synti
ungfrú Ruth Hanson, sundkennari, dóttir H. S.
Hansons, kaupmanns í Rvík, frá Engey til Rvíkur;
hún lenti á Steinbryggjunni. Vega-
lengdin er um 2V2 km. og var
hún 1 klst. 8 mín. 24,6 sek. á
leiðinni. Áður en sundkonan lagði
af stað, bar móðir hennar, frú
Gerda Hanson, lýsi og feiti á
hana, til að verja hana sjávar-
kulda. Ruth lagði af stað úr
Engeyjarvör, og fór hægt í
fyrstu, en herti sig er lengra dró
frá eynni. Hún svam bringusund
alla leið, þetta frá 32 til 40 sund-
tök á mínútu. Aðeins þrem sinn-
um lagðist hún á bakið á leiðinni;
en enga hressingu fekk hún fyrr
en heim kom. Hún var alveg ó-
þjökuð er hún kom að landi; en
þar var fyrir margt manna, er
fögnuðu henni hjartanlega með
húrrahrópum. I fylgdarbátnum
voru foreldrar hennar, sem jafn -
an hafa Iátið sér mjög ant um í-
þróttamentun dóttur sinnar, hinn ágæti íþrótta-
vinur Matthías Einarsson læknir og dóttir hans,
Ólafur Einarsson vélstjóri og undirritaður.
Veður var gott (sólskin), og sjávarfall hagstætt
(meðstraumur); en töluverð alda var í Engeyjar-
sundi og sjór ekki sléttur fyrr en kom inn á innri
höfn. Engar marglyttur voru sjáanlegar á leiðinni,
og er þó venjulega mikið um þær á þessum slóðum.
Sjávarhiti hefir verið á milli 12 og 13 stig; var
14 stig út við sundskálann í Örfirisey.
Ruth Hanson er fyrsta konan, sem syndir úr
Engey til lands; áður hafa aðeins tveir menn gert
það, þeir: Erlingur Pálsson og sá sem þetta ritar.
Ruth Hanson hefir numið íþróttir í Danmörku;
h<in hefir verið á hinum velþekta íþróttaskóla M.
Paul-Petersen og systur hennar í Kaupmannahöfn.
Tók hún þar lokapróf í fyrra sumar við ágætan
orðstír. Síðan R. H. kom hingað heim aftur hefir
hún kent hér ýmsar íþróttir: sund, fimleika, lát-
bragðalist og danz. Er hún orðin R.víkingum vel
kunn af þessu og fimleika- og sundsýningum
sínum. Hún er mjög ung að aldri, um tvítugt, og
Á innri-höfninni. Sundkonan kemur
á steinbryggjuna.
má gera ráð fyrir að hún eigi enn mikið íþrótta-
sfarf óunnið hér á landi.
Allir íþróttamenn þakka henni þetta sundafrek,
og munu lengi minnast hennar fyrir þessa fræki-
legu sundraun. Bennó.
KnattspYmumót
hafa þessi verið háð hér á Iþróttavellinum, það
sem af er sumrinu:
[/ormót 3. aldursflokks
var háð dagana 22., 24. og 26. maí. Fóru Ieikar
þannig að K. R. vann mótið með 4 stigum, »Val-
ur« hlaut 2 stig og »Fram« 0 stig, þannig:
»Valur« vann »Fram« með 1 : 0 mörkum,
K.R. — —»— —3:0 —»—
— — »VaI« — 1:0 —»—
Þannig hlaut þessi unglingadeild K.R. verðlauna-
bikarinn í 3. sinn og þar með til fullrar eignar.
Vormót 2. aldursflokks
var háð dagana 30. maí og 1., 3., 6., 8., 10. og
12. júní. Var það mjög spennandi, því þar mætt-
ust tveir flokkar, sem voru svo jafnir, að varla
mátti á milli sjá. Urðu þeir — frá K.R. og Val —
að keppa 3 kappleika til úrslita og báða síðari
leikana framlengda (+).
Ru(h Hanson,
sundkennari.