Eining - 01.08.1964, Qupperneq 14

Eining - 01.08.1964, Qupperneq 14
14 EINING (Jnglingaregluþingið 1964 ÁRSÞING UNGLINGAREGLU I.O.GT., hið 39. í röðinni, var haldið í samkomuhúsinu B j a r g i á Akureyri föstudaginn 12. júní síðastliðinn. Þing- ið sóttu 69 manns, gæzlumenn, þing- fulltrúar og gestir. Þing þetta var því fjölsótt og á allan hátt hið ánægjuleg- asta. — Ólafur Þ. Kristjánsson, stór- templar, heimsótti þingið og flutti stutt ávarp. Sérstakan svip setti það á þing þetta, að allmörg börn úr barnastúkum Akureyrar sátu flesta fundina,, en þau voru klædd hinum nýja einkennisbún- ingi, sem Akureyrarstúkurnar hafa gert tilraun með í vetur. Vakti búning- urinn, með hinu stóra og fagra merki Reglunnar, almenna athygli. Aðalmál þingsins að þessu sinni voru tvö: 1) Árlegur kynningar- og fjáröflun- ardagur Unglingareglunnar, og 2) Einkennisbúningur og hæfnis- próf. Bæði þessi mál, sem snerta mjög framtíð Unglingareglunnar, höfðu kom- ið til framkvæmda á síðasta ári, ýmist að nokkru leyti eða öllu og urðu um þær miklar umræður, sem allar hnigu á einn veg. Var stórgæzlumanni ein- róma falið að halda áfram á þeirri braut, sem mörkuð hafði verið. Stórgæzlumaður, Sigurður Gunnars- son, var endurkjörinn. Unglingaregluþing þáði mjög rausn- arlegt kaffiboð hjá Þingstúku Eyja- fjarðar. Einnig bauð Þingstúkan full- Formaöur NGUF heimsækir ísland í júlímánuði kom hingað í heimsókn Henry Sörman, formaður Norræna ung- templarasambandsins. Hann dvaldist hér dagana, sem Norræna góðtemplaranám- skeiðið stóð yfir. Aðalerindi Henry Sör- man var að kynna sér aðstöðu til þing- og móthalds Norrænna ungtemplara, sem hér var ákveðið sumarið 1966, og ræða við íslenzku nefndina, sem vinnur að undir- búningi þessa móts. Bindindis- og umferöarmálasýning Bindindisfélag ökumanna og Islenzkir ungtemplarar stóðu fyrir Bindindis- og umferðarmálasýningu í Reykjavík dagana 11. og 12. júlí s.l. Sýningin var haldin í og við Góðtemplarahúsið. Sextán aðilar tóku þátt í sýningunni, sem tókst vel. Á laugar- dag og sunnudag lék Lúðrasveit Reykja- víkur úti fyrir húsinu, 1 klst. hvorn dag, og á sunnudag skemmti Ómar Ragnars- son. — Þetta er í annað skipti sem þessir aðilar efna til slíkrar sýningar. Hin fyrri var haldin í júní 19062. trúum í skemmtiferð um kvöldið fram að Grund. Var í för þessari komið við á ýmsum merkum stöðum, svo sem Kri^tnesi, Grund og Friðbjarnarhúsi, þar sem viðdvölin var að sjálfsögðu lengst. Veður var hið bezta og tókst ferðin á allan hátt ákjósanlega. í far- arlok flutti stórgæzlumaður Þingstúku Eyjafjarðar og fararstjóra, Jóni Krist- inssyni, hugheilar þakkir fyrir ánægju- lega ferð og Akureyringum fyrir ó- gleymanlegar móttökur. Tóku þátttak- endur undir það með dynjandi lófataki. Þingið gerði ýmsar ályktanir og var þessi veigamest: Unglingaregluþing 1964 harmar það, að til skuli vera hópur ungs fólks, sem fremur slík spjöll af völdum drykkju- skapar og þau, er gerðust nú nýlega á Hreðavatni, í Þjórsárdal og víðar. Hins vegar mótmælir þingið því kröftuglega, að ungt fólk sé nokkuð spilltara að eðlisfari nú en áður, þótt ýmsir telji svo vera og hafi hátt um mikla spillingu æskunnar. Þingið hikar ekki við að staðhæfa, að hinir fullorðnu eigi langoftast meginsök á ávirðingum unga fólksins, meðal ann- ars með vítaverðu fordæmi á ýmsum sviðum, og þá ekki sízt um neyzlu á- fengis og tóbaks. Þingið átelur sérstaklega þá háttu forráðamanna þjóðarinnar að veita á- fengi í veizlum og móttökum hins opin- bera, þótt vitað sé, að þar er um að ræða áhrifamikið og hættulegt for- dæmi öllum landslýð, ekki sízt æskunni. Mættu þeir gjarna rifja upp hið sígilda spekimál séra Hallgríms Péturssonar: „H-vaS höföingjarnir hafast aö, hinir ætla sér leyfist þaö.“ Þingið beinir því til ritstjóra blaða og tímarita, að þeir forðist að birta myndir af samkvæmisdrykkju, sem því miður gerast hér æ tíðari í blöðum, og telur, að þeim megi að ýmsu leyti jafna V til áfengisauglýsinga, sem bannaðar eru með lögum. Loks minnir þingið á þau uppeldis- legu sannindi, a‘ð fordæmið er meira virði en allar umvandanir. Aftalfundur MUAT ... Framhald af bls. 7. Á heimleiðinni var Skálholtskirkja skoðuð allrækilega hátt og lágt, sung- inn sálmurinn, Vor Guð er borg á bjargi traust, en fararstjórinn, norsk- ur klerkur las faðirvorið, og aðrir tóku undir, hver á sínu máli. Að Selfossi var snæddur kvöldverður. Við íslend- ingarnir vorum að þessu sinni gestir hinna erlendu manna og fengum aldrei að greiða neitt, hvorki fargjald né fæði. Einn Svíanna, Ragnar Lund, bauð mér sæti hjá sér allan daginn og var ég þar heppinn, því að við hann var gott að spjalla um eitt og annað. Hann er einn af fræðslumálastjórum Svía, hefur áður verið stórtemplar í Svíþjóð og er mikill atkvæðamaður í félags- og menningarmálum á ýmsum sviðum, virðulegur og hæglátur maður, en glaður og reifur samt, og um allan hópinn í vagninum mátti sannarlega segja, að þar fór kátt fólk. Leiðsögu- mann höfðum við fyrsta flokks, sem kunni allt, bæði um land og lýð og sögu, og hafði næga tungumálakunn- áttu. Þetta var frú Charlotta Th. Hjaltadóttir, og á leiðinni út í Kópa- vog um kvöldið, komst ég að því að frúin á heima á Kársnesinu eins og ég. Á sunnudaginn skoðuðum við svo bindindis- og umferðarmálasýninguna í Templarahúsinu og þar var erlendu gestunum boðið til kaffidrykkju. — Næsta morgun flugu gestir okkar heim- leiðis, en við geymum mjög góðar end- urminningar um ánægjulega og gagn- lega samveru. Allt til eflingar nor- rænni samvinnu og því góða málefni, sem við bindindismenn þjónum.

x

Eining

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.