Vera - 01.06.1985, Blaðsíða 5

Vera - 01.06.1985, Blaðsíða 5
Henriette: Ég er fædd árið 1950 í Christianshaab og ólst þar upp sem Græn- lendingur. Skólaganga mín einkenndist aftur á móti af því að gera mig að Dana og það tókst næstum því. Þar kom þó að mér fannst ég hafa misst tengslin viö uppruna minn og síðan hef ég reynt að leita hans aftur. Ég er menntuð sem kennari i Dan- mörku og kenndi um tíma eftir að ég flutti heim aftur árið 1975. Nú, síðan fór ég að starfa sem fréttamaður við grænlenska út- varpið, en þegar farið var að kenna blaða- mennsku á Grænlandi ákvað ég að setjast á skólabekk aftur. 1983 var ég svo kosin í bæjarstjórnina í Nuuk fyrir Inuitaflokkinn og árið eftir á landsþingiö. í bæjarstjórn- inni sit ég í minnihluta ásamt Siumut- flokknum en á landsþingi eru þessir tveir flokkar í meirihluta og fara með heima- stjórnina. Marta: Ég er fædd í Sissimiut árið 1950 eins og Henriette og hlaut svipaða skóla- göngu og hún. Ég lærði svo félagsráðgjöf í Danmörku og með námi fékkst ég mikið við aðstæður ungra Grænlendinga í Dan- mörku sem að mörgu leyti eru mjög slæm- ar. Fyrir daga heimastjórnarinnar varð allt ungt fólk, sem sóttist eftir meiru en grunn- skólanámi, aö fara til Danmerkur og þ.a.l. var þar mikill fjöldi af ungum Grænlend- ingum. Þetta fyrirkomulag hafði fjöldann allan af vandamálum í för með sér, eins og gefur að skilja þegar ómótaðir unglingar flytja skyndi'eqa inn í nýtt og framandi samfélag. 1978 flutti ég svo heim og kenndi við félagsráðgjafaskólann í Nuuk þar til ég fékk þá stöðu sem ég gegni núna í félagsmálaráöuneytinu. — Er það ekki rétt hjá mér að þú hafir líka setið í bæjarstjórninni í Nuuk um tima? Marta: Jú ég var kosin í hana árið 1979 fyrir Siumutflokkinn og sat þar í 3 ár. Ég sagði af mér áður en kjörtímabilinu var lok- iö að hluta til vegna þess að mér fannst ég ekki geta setiö þar og gegnt stöðu embættismanns í félagsmálaráðuneytinu á sama tíma. Að hluta til hætti ég svo vegna þess að mér finnst alveg hræðilegt hvernig sveitarstjórnarpólitík er rekin. Það er alltaf verið að vasast í smáhlutunum án þess að hugsa um hin almennu markmið. Henrietle Rasmussen Sem kjömum fulltrúa fannst mér svo mikil gjá milli þeirra hugmynda og stefnumiða sem maður hefur í farangrinum og þess sem maður þarf svo að fást við. Maður er svo bundinn af því sem fyrir er. Þetta er sérstaklega erfitt í minnihluta. Þrátt fyrir að maður komi með mikilvæg sjónarmið sem ættu aö hafa sitt að segja, þá er allt fellt án þess að fyrir því séu færð málefnaleg rök. — Það er bara eins og þú sért að lýsa aðstæðum Kvennaframboðsins í Borg- arstjórn Reykjavíkur! En við skulum ekki tala um það heldur stöðu kvenna á Grænlandi, hvernig er hún? Henriette: Þegar við ræðum um stöðu kvenna þá verðum við að fara aðeins aftur í tímann til að skilja hana. Sögulega séð finnst mér að konur og karlar í gamla inuitasamfélaginu hafi staðið nokkuö jöfn- um fæti en á nýlendutímabilinu, sem ein- kenndist af evrópsku nýlenduvaldi, hafi konum verið haldið mjög niöri. Þegar kon- ur fengu svo kosningarétt árið 1948 þá varð ,,Kvindeforeningen“ tilsem hafði það að markmiði að gera mæðurnar að betri mæðrum og húsmæðurnar að betri hús- mæörum. Auk þess lagði félagið áherslu á að varðveita grænlenska útsauminn og loks að hvetja konur til að taka aukinn þátt í hinni pólitísku þróun. Marta: Ég hef svolítið annaö sjónarhorn á stöðu kvenna á nýlendutímabilinu en þú Henriette. Ég er ekki endilega þeirrar skoöunar að konum hafi verið haldið niðri, heldur hafi verið ýtt undir karla svo þeir gætu gegnt hlutverki sem n.k. strengja- brúður danska ríkisins. Það var nefnilega mikilvægt í augum yfirvalda að láta líta svo út sem grænlenska þjóðin ætti þátt í ákvörðununum. Karlarnir höfðu þó í raun- inni engin áhrif og fjölluðu aðeins um hluti sem litlu máli skiptu en ríkið stjórnaði þró- uninni. Ég held að það hafi þá verið styrkur kvenna að þær stjórnuðu heimilunum og barnauppeldinu og að þær hafi verið kjöl- festan í viðhaldi grænlenskra lífshátta. Þróunin varð svo í þá átt að hinar þjóð- kjörnu samkundur fengu aukið umboð og um svipaö leyti fengu konur kosningarétt. Til þess að grænlenskar konur gætu not- fært sér þennan rétt var Kvindeforeningen sett á laggirnar, byggð upp af og að fyrir- mynd „Dansk kvindesamfund". í raun hefur félagið ekki skipt sér ýkja mikið af pólitík enda finnst dönskum konum og Dansk kvindesamfund grænlenskur list- saumur mjög spennandi og hafa þ.a.l. lagt aðaláhersluna á hann. Að mínu mati hefur félagið ekki staðið viö þau markmið að örva grænlenskar konur til pólitískrar þátt- töku. Það er ekki fyrr en hin síðari ár aö Kvindeforeningen hefur orðið svolítið póli- tísk, ekki síst vegna aukinnar umræðu milli þeirra og okkar, þessara ungu, um stöðu og hlutverk kvenna. — Ertu þá þeirrar skoðunar að konur hafi varðveitt sinn menningararf betur en karlar? Marta: Já, vegna þess að karlar voru teknir úr sínum hefðbundnu störfum og fengið nýtt hlutverk sem var þeim fram- Marta Labansen andi. Ég held að við sjáum þetta í samfé- laginu í dag m.a. á því að karlar eiga við mikla erfiðleika að etja. Þeir eru aldir upp til þess að ráða fram úr öllum þeim að- stæðum sem mæta veiðimanni einum á ferð á kajak en síðan verður það þeirra hlutskipti að eyða stærstum hluta æf i sinn- ar sem ófaglærðir verkamenn. Veruleikinn er ekki í samræmi við uppeldi þeirra sem miðast við allt aðra samfélagsgerð þ.e. gamla veiðimannasamfélagið. Konur eru miklu sterkari vegna þess að þær geta not- að hvor aðra og talaö saman um sín mál. Karlarnir eru aldir mun strangar upp og hafa ekki lært að tala opinskátt við hvorn annan. Aö gera sér þetta Ijóst skiptir mjög miklu máli þegar verið er að fjalla um að- stæður kynjanna á Grænlandi. Öll þau vandamál sem grænlenskir karlmenn eiga við að stríða hafa óneitanlega áhrif á til- veru grænlenskra kvenna. — En hvernig er staða grænlenskra kvenna t.d. á vinnumarkaðinum í dag? Marta: Konur eru aðallega í störfum þar sem ekki er krafist menntunar. Mennta- kerfið hefur verið sniðið að þörfum karl- manna og menntun kvenna hefur setið á hakanum. Þetta er reyndar að breytast með auknum menntunarmöguleikum. Henriette: Ömmur okkar og mömmur voru fyrst og fremst húsmæður á sínum heimilum og það breyttist ekki fyrr en um það leyti sem við fæddumst. Þá urðu fisk- iðjuverin til og mæður okkar fengu vinnu utan heimilis. Marta: Til aö byrja með fóru konurnar aðallega í fisk á sumrin. Vinnubrögðin voru allt önnur þá en nú og þaö var hægt að hafa það notalegt saman í vinnunni. Ég man vel eftir því sjálf að það var ansi oft lif- legt hjá þeim, þær sögðu hver annarri sög- ur og við börnin komum til að fylgjast með þeim og hlusta á þær. Börnin í dag geta ekki farið inn i fiskiðjuverin og fylgst með og þeir sem þar vinna geta alls ekki talaö saman. Nú eru börnin slitin úr tengslum við foreldra sína og ofan á það bætist að kennarar mjög margra þeirra eru danskir. — Er mikill launamismunur á konum og körlum á Grænlandi? Marta: Formlega séð er launajafnrétti milli karla og kvenna á Grænlandi og það

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.