Vera - 01.06.1985, Blaðsíða 6

Vera - 01.06.1985, Blaðsíða 6
komst fyrr á þar en í Danmörku. Launa- jafnréttið kostar hins vegar ekki neitt því flestar konur vinna ófaglærð störf og til- heyra því láglaunahópunum. — En það er mikill munur á launum Grænlendinga og Dana, er það ekki? Henriette: Jú, þar er launamismunur. Launin fara eftir því hvar maður er fæddur. Ef maður er fæddur utan Grænlands, hvort sem er í Danmörku eða annars stað- ar, þá fylgja því alls konar forréttindi s.s. húsnæðisstyrkur og ferðastyrkur fyrir alla fjölskylduna einu sinni á ári. Marta: Auk þess færðu uppgjör við starfslok þ.e.a.s. á hverju ári eru nokkur þúsund krónur greiddar inn á lokaðan bankareikning þannig að sá vesalingur sem hefur verið kallaður til starfa á Græn- landi fái nú væna summu þegar hann fer aftur til Danmerkur. — Hvernig er ástandiö í dagvistarmál- um? Henriette: Það er slaemt. Dagheimili erufáog dýr.og skipulögðað evrópskri fyr- írmynd. Það er mjög fáar grænlenskar fóstrur og við notum þær illa. Það eru sótt- ar fóstrur til Danmerkur til að veita dag- heimilum forstöðu þar sem eingöngu dveljast grænlensk börn. Marta: Þetta er nú að breytast Henri- ette. Það útskrifast æ fleiri grænlenskar fóstrur og það eru nokkur dagheimili núna undir grænlenskri stjórn. Það er aftur á móti mjög erfitt fyrir ungar fóstrur, sem hafa nýlokið námi, að losa sig við allar hefðir um það hvernig eigi að reka dag- heimili og byrja að vinna á einhvern allt annan máta. Þetta er sérstaklega erfitt í Ijósi þess að Fósturskólinn er að stórum hluta mannaður með dönskum kennurum sem byggja auövitað á dönskum uppeldis- hefðum. Engu að síður eru þó nokkuð margar fóstrur farnar að vinna út frá græn- lenskum efnivið og reyna að skipuleggja hið daglega líf barnanna út frá grænlensk- um hugsunarhætti. Það er kannski ekki síst vegna tillögu þinnar á landsþinginu, Henriette, sem farið er að setja fram kröfur um stefnumörkun varðandi innra starf dagheimilanna. Henriette: Já, eitt af því fyrsta ég ég tók upp á landsþinginu var, að við yrðum að gera okkur grein fyrir því hvernig við vild- um reka okkar dagheimili. í framhaldi af því þarf svo að marka stefnu um það hvernig við getum fullnægt þörfinni og í því Þau vandamál sem grœn- lenskir karlmenn eiga við að stríða hafa óneitan- lega áhrif á tilveru grœn- lenskra kvenna. sambandi get ég vel hugsað mér að stærstu vinnustaðirnir leggi þar sitt af mörkum. — Við töluðum áðan um Kvindeforen- ingen. Er það eina kvennahreyfingin á Grænlandi? Henriette: Nei, hún fékk mikla sam- keppni í kringum 1975 þegar við þessar ungu, byrjuðum að hópast heim aftur með nýjar hugmyndir um kvenfrelsi. Þá kom nýtt sjónarhorn á málin og það varð heil- mikil umræða um stöðu kvenna í samfé- laginu. Þetta leiddi til þess að við komum upp blaöi sem hét ,,Kilut“ og síðan var stofnaður kvennahópur um blaðið. — Hvað þýðir Kilut? Henriette: Þetta er nafnið á hinu græn- lenska saumspori. Við gengum útfrá því að grænlenskar konur hefðu haft töluverð áhrif í inuitasamfélaginu ekki síst vegna þeirra tækni sem þær réðu yfir í sauma- skap. Grænlenska konan var algerlega ómissandi fyrir viðgang eskimóasam- félagsins enda var það ekki síst tækni hennar og saumaskap að þakka að karl- arnir gátu notað kajakana. Á þann hátt hafði hún mjög mikla þýðingu fyrir ferða- lög og þ.a.l. menningu inuitia. Þetta vild- um viö leggja áherslu á með því að skýra blaðið Kilut. Marta: Það er rétt að taka það fram að þó að það hafi verið skoðanaágreiningur milli okkar og Kvindeforeningen þá erum við núna farnar að vinna saman að ákveðnum hlutum. Við getum tekið Kvennamiðstöðina í Nuuk sem dæmi. Við höfum áður talað um það hversu erfitt það hafi verið fyrir grænlenska karlmenn að fóta sig í þeirri samfélagsbyltingu sem hef- ur átt sér stað. Það eru margir karlmenn sem eiga í miklum erfiðleikum og þeir láta það bitna á konunum. Þess vegna hefur verið, og er enn, mikið ofbeldi gegn kon- um. Hópur kvenna tók sig saman og fór að ræða þessi mál opinskátt og reyna að skilja ofbeldi gegn konum. Hópurinn byrj- aði á því að gera könnun á hversu útbreitt ofbeldið væri og í framhaldi af því ákvað hann að koma á fót ráögjöf fyrir konur sem hafa verið beittar ofbeldi. Fyrst rákum viö þessa ráðgjöf í húsakynnum Kvindeforen- ingen en svo ákváðum við að fara fram á það við bæjarstjórnina í Nuuk að hún léti okkur í té húsnæði fyrir athvarf. Bæjar- stjórnin hafnaði þessari beiðni og úthlut- aði húsinu, sem við höfðum augastað á, sem vinnustofu til dansks listamanns. Þetta olli mikilli reiði meðal kvenna og nú var þeim nóg boðið. Mál þetta komst á dagskrá bæjarstjórnarfundar og konur þustu á pallana til að hlusta á umræðuna. Þetta var mjög merkilegur fundur því við upphaf umræðunnar töluðu allir karlarnir um aö það væri mjög einkennilegt að kon- ur vildu fá sérstakt hús fyrir sig. Auðvitað vildu þeir ekki tala mikið um konur sem eru beittar ofbeldi; það gerir maður ekki í svona karlastofnun eins og bæjarstjórn- inni. En svo kom kaffihlé og þá fóru allar konurnar af pöllunum inn á kaffistofu bæjarfulltrúanna, settust að þeim og Við erum svo fáar að við megum ekki við klofningi. Við verðum bara að setja okkur ákveðin markmið og reyna svo að vinna saman. sögðu þeim allt um þessi mál. Þá fóru þeir að skilja og eftir kaffihlé hélt umræöan áfram eftir allt öðrum brautum. Stemning- in var allt önnur og það var samþykkt að konurnar fengju húsið. Svo nú höfum við kvennahús ( Nuuk. — Er þetta bara athvarf eöa rekið þið þarna einhverja aðra kvennapólitíska starfsemi? Henriette: Þetta er baeði athvarf og fundarstaður. Þaðeru margir kvennahóp- ar sem hafa þarna aðsetur og þetta er þverpólitísk starfsemi. Kilut-hópurinn er þarna, Kvindeforeningen, athvarfshópur- inn, Samtök sjómannskvenna o.fl. Við héldum heilmikla kvennaráðstefnu s.l. haust þar sem við komumst að þeirri niður- stöðu að við konur verðum að vinna miklu meira saman og styðja við bakið á þeim fáu konum sem taka þátt í stjórnmálum. Við erum svo fáar að við megum ekki við klofningi. Við verðum bara að setja okkur ákveðin markmið og reyna svo að vinna saman. Þetta ætlum við að gera með því að stofna tvo vinnuhópa. Annar á að gefa út blað fyrir allar grænlenskar konur og hinn, sem allir kvennahópar eiga fulltrúa í, á að hafa það að markmiði að vera konum í stjórnmálum til aðstoðar við að setja fram pólitískar kröfur. Þegar ég segi pólitískar kröfur þá á ég fyrst og fremst við kröfur í samræmi við óskir og þarfir kvenna. Við bindum miklar vonir við þennan hóp — en hann heitir ,,Papiit“ sem þýðir stél — af því að flokkapólitíkin hefur sundrað okkur svo mikið fram til þessa. — Eruð þið bjartsýnar á að þetta tak- ist án þess að til átaka komi? Marta: Ef við einbeitum okkur að nokkr- um ákveðnum málum þá held ég aö við ættum að geta komist framhjá þeim skoð- anaágreiningi sem auðvitað er í mörgum málum. — Hvaða baráttumál viljið þið setja á oddinn? Henrietta: Það eru dagheimilismálin og svo munum við örugglega fjalla eitthvað um hina nýju áfengispólitík sem við getum haft áhrif á. Annað mál sem ég get nefnt er að danska ríkið stjórnar heilbrigðiskerfinu og nú hefur það hætt að láta barnshafandi konum og ungabörnum i té ókeypis mjólk. Þar höfum við verk að vinna. í framtíðinni vonumst við svo til að geta haft meiri áhrif á stefnuna í mennta-, húsnæðis- og at- vinnumálum. — isg.

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.