Vera - 01.06.1985, Blaðsíða 24

Vera - 01.06.1985, Blaðsíða 24
vinnulaun á almennum markaöi miklu hærri en hjá ríkinu. Ég sagöi upp 1947, innritaði mig í Háskólann og fór í bréfrit- arastarf hjá heildsölu, en skrif mín gegn Atlantshafsbandalaginu (þegar þar aö kom) voru ekki að skapi stjórn- endum og mér var sagt upp. Þeir gáfu mér frest en ég var ekki til í samninga um þaö mál. — Hvaða augum var það litið að þú skyidir vera að fara í Háskóla? Það var auðvitað nýlunda að taka upp þráðinn eftir þrettán ár frá stúd- entsprófi. Annars hirti ég ekkert um það. En sjáðu til, viðhorfin réðust af þessu: í 1. lagi var ég sósíalisti og það var nógu slæmt. í 2. lagi var ég kven- maður, það var líka afleitt, en svo í 3. lagi var ég ógiftur kvenmaður og það var algjör glæpur — og er enn. Mér skilst að svona sé það í hænsnakofan- um. Nú það breytist ekki fyrr en hænsn- in breytast. Annars var ég lengi að þessu, lauk ekki prófi fyrr en 1958, vegna alls konar umsvifa eins og hér kemur fram. Já, ég varð fyrsta konan sem lauk meistaraprófi í íslenskum fræðum. En það liðu ein tíu ár áður en ég fengi fast starf í fræðunum. Þess var gætt svona rækilega aö ég kæmist hvergi aö! En svo fékk ég vinnu í handritadeild Landsbókasafns 1968 og þar var ég heppin. — Segðu mér frá Melkorku, hún byrj- aði að koma út 1944 ekki satt? Hver átti frumkvæðið? Rannveig Kristjánsdóttir. Fyrsta blaðið kom út 1. maí 1944. Rannveig var aðaldriffjöðrin og svo Þóra Vigfús- dóttir. Annars voru margar ágætar kon- ur í kringum fyrirtækið. Ritið hætti að koma út í tvö ár þegar Rannveig gifti sig og flutti til Svíþjóðar. Þegar útgáfan hófst aftur kom ég inn í ritstjórnina. Þá hafði Mál og menning tekið við útgáf- unni. — Höfðuð þið alveg frjálsar hendur? Já, algjörlega. Þeir skiptu sér aldrei af neinu. Einar Andrésson, bróðir Krist- ins safnaði fyrir okkur auglýsingum og hann var jafn óþreytandi að safna fyrir okkur áskrifendum. Þetta var auövitað ómetanlegt, enda átti Einar engan sinn líka fyrir Mál og menningu. — Og gekk blaðið vel? Ég man nú bara ekki hve margir voru áskrifendur, en það stóð undir sér. — Hvernig stóð á að það hætti að koma út? Mál og menning ákvað að hætta þessu. Það var einmitt þá, þegar farið var að gera blaðið upp sem í Ijós kom að það hafði borið sig. Þeir héldu víst að það værí tap á því og vildu hætta því þess vegna. — Það hefur ekki verið sérstakt kven- félag í Sósíalistaflokknum? Nei. Þær stofnuðu að vísu Kvenfélag sósíalista nokkrar, en ég var aldrei þar. Ég hef enga trú á sérstökum kvenfélög- um innan flokkanna, ég held það leiði bara til einangrunar og sé ekki af hinu góða. En þeim fannst í Kvenfélaginu að þær næðu betur til kvenna með þessu móti. — Svo þið hafið verið virkar í flokkn- um við hlið karlanna? Já, skipulagið gerði öllum kleift að vera með. Annars var ég vara-bæjar- fulltrúi 1950—54. Húsnæðismálin voru í ólestri eins og þau eru alltaf í Reykja- vík, fátæktin ólýsanleg. Ýmiskonar vandi sem fylgdi dvöl erlends hers á Keflavíkurflugvelli. Jafnvel smátelpur lentu í hermönnunum. Þær höfðu auð- vitað enga hugmynd um hvað var þarna á ferðinni, veslingamir, og voru herfilega leiknar af hermönnunum, svo að þær fundust jafnvel dauðar fyrir ut- an braggana. Framan af datt íslensk- um yfirvöldum ekki í hug aö rukka hern- ,,Sem hyggin skandinavísk kona, gerði Sigrid Undset sér einatt grein fyrir augljósum sannleik: að það em konur. sem rækta og hlúa að þjóð- menningunni, að það er engin menning. . . án konu." Régis Boyer, franskur bókmennta- fræðingur. aðaryfirvöldin um meðlög með börnum þessara manna hér, né annað. Herinn skyldi fá allt án greiðslu! Svo eru menn nú átímum að skrifa um ,,ástandið“ og lepja slúðursögur karla frá þeim tímum um samskipti íslenskra kvenna og hersins. En hvað um islenskar ríkis- stjórnir. Þvílíkar undirlægjur! Það hafði þurft konu, Laufeyju Valdimarsdóttur, til að berjast af haröfylgi fyrir málinu og koma íslenskum yfirvöldum í skilning um hvað þeim bæri að gera. Kvenfyrir- litningin, ræfildómurinn, ríða ekki við einteyming í þessu karlasamfélagi. Hér hleypa þeir heilu skipsförmunum af Natódátum í land til þess eins að þeir geti létt á sér og þá eru það ekki síst smástelpurnar sem verða fyrir þeim. Ekki einu sinni Þjóðviljinn segir auka- tekiðorð. Svonatil samanburðar: Dan- ir neituðu Nató um slíka fyrirgreiðslu, man ég eftir þegar ég var þar einu sinni sem oftar. — Þú minnist á Laufeyju. Hvaða aug- um lituð þið kempurnar úrbaráttunni fyr- ir kosningaréttinum, kynslóðirnará und- an ykkur? Þessar konur höfðu unnið gegn for- dómunum og fyrir framtiðina. Bríet naut óumdeilanlegrar virðingar, enda stórkostlegt hverju hún fékk áorkað — hugsaðu þér, hún gaf út þetta blað, Kvennablaðið, áratugum saman. Svo var Laufey, ég man vel eftir þeim báð- um, þær voru stórmerkar, Laufey auk þess listamaður. Þær voru ákaflega duglegar að stofna félög út frá Kven- réttindafélaginu. Mæðrafélagið, Lestr- arfélag kvenna, þær stóðu líka að baki stofnun verkakvennafélaga. — En t.d. Kvennalistinn 1922. . . ? Þegar Ingibjörg H. Bjarnason fór á þing. Hún gekk svo í Sjálfstæðisflokk- inn já, ég held að það hafi farið mjög illa með hinar. En, nei, þetta kom ekki ná- lægt manni, okkur fannst það fjarlægt. Ingibjörg féll inn í flokksmunstrið. En stefnuskráin hjá KRFÍ, hún var alltaf í takt við tímann. Ég hef ekki skipt mér af þeim lengi núna. Og þar var samstaða um réttindamálin. En enn þann dag í dag er ekki jafnstaða í sam- bandi við menntun og atvinnu. Það er gengiö fram hjá konum alveg purrkun- arlaust. Það er ekki mikill vandi að vinna að þessum málum nú á tímum hjá því sem fyrri tíma konur höfðu að berjast við. Þær eiga t.d. mestan þátt- inn í hverjum einasta spítala í Reykjavík svo við tölum nú bara um það menning- arstarf, sem er fyrir framan nefið á okk- ur. Jú, sannarlega voru þær stórvirð- ingarverðar. En eldri kynslóðin svona upp og ofan, konur og karlar, fannst mér hálfgerð plága! Sagan endurtekur sig! — Þú ert búin að trúa mér fyrir því að þú hafir kosið bæði Kvennaframboðið og Kvennalistann. . . Það hefur aldrei verið neitt leyndar- mál. Ég var alveg ákveðin í því, að kvennaframboð yrði að koma til viö borgarstjórnarkosningarnar, varð hálf hrædd um að ekkert yrði úr því. Ég var ekki eins viss um alþingiskosningarn- ar. En svo kaus ég þær auðvitað þégar til kom, mér finnst þær standa sig svona líka vel. Þetta eru sérlega fram- bærilega konur og það fer ekki á milli mála að fjölga verður konum á þingi og í bæjar- og svéitarstjórnum. — Þú hefur ekki farið til starfa með þessum nýju samtökum? Nei. Ég hef nú reyndar komið í Kvennahúsið nokkrum sinnum, þetta eru frískar konur og ungar og þytur um þær af nýjum tíma. Ms. 24

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.