Vera - 01.06.1985, Blaðsíða 26

Vera - 01.06.1985, Blaðsíða 26
 „Afnám alls misréttis gegn konum“ Á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York 1979 var samþykktur samningur um afnám alls misréttis gagnvart konum og var samningurinn undirritaður fyrir ís- lands hönd á ráðstefnunni um kvennaára- tug Sameinuðuþjóðanna íKauþmannahöfn 24. júlí 1980. Nú síðla aþrílmánaðar á því herrans ári 1985, fimm árum síðar, leggur ríkisstjórn íslands til að samningurinn verði fuilgiltur. Með samningnum skuldbinda aðildarríki SP sig til að gera ráðstafanir til að afnema misrétti gagnvart konum á hin- um ýmsu sviðum. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir lýsti fullum og ein- huga stuðningi Kvennalistans við tillöguna eins og við var að búast, en benti jafnframt á að mikið vantaði á raunverulega framkvæmd þess að allt misrétti gagnvart konum væri úr sögunni og því hnyti hún um það sem í greinargerð stæði: ,,Ekki er talin þörf frekari lagasetn- ingar né annarra ráðstafana til þess að geta framfylgt samningnum.“ Ef litið væri á vinnumarkaðinn blasti við kynbundið launamisrétti hvert sem litið væri. Því spurði hún hvaða ráðstafanir ríkisstjórnin ætlaði að gera til þess að afnema kynbundið launamisrétti og framfylgja samningnum um afnám alls misréttis gagnvart konum að því leytinu til. Þar væru ýmsar leiöir færar og flutt hefðu verið þingmál sem miöuðu að raunverulega bættri stöðu kvenna hér á landi, en þau þingmál hefðu ekki hlotið náð hjá þeim þingmeirihluta sem nú stæði að baki þingsályktunartillögu um afnám alls misréttis gagnvart konum. Þau mál eiga það öll sameiginlegt að hafa verið söltuð og svæfð í nefndum þingsins. Má þar t.d. nefna endurmat á störfum láglaunahópa, en frum- varp þess efnis var borið fram á þessu þingi og einnig á síðasta þingi, frumvarp um lengingu fæðingarorlofs og frumvarp um átak í dagvistunarmálum. Sigríður rakti innihald samningsins en þar er meðal annars kveðið á um viðurkenningu á móðurhlutverkinu og sagt ,,að barnsfæðingarhlutverk konunnar á ekki að vera undirrót misréttis heldur skal ábyrgð á uppeldi barna vera skipt á milli karla og kvenna og alls þjóðfé- lagsins." Hún benti á að ráðstafanir yrði að gera í þjóð- félagi þar sem yfir 80% kvenna eru úti á vinnumarkaðin- um og beindi þeirri spurningu til ríkisstjórnarinnar hvaða ráöstafanir hún hyggðist gera til að framfylgja þessu grundvallaratriði samningsins. Hún hlyti að spyrja hvernig ríkisstjórnin hefði hugsað sér að afnema í raun, eins og sagt væri í samningnum, allt misrétti gagnvart konum hér á landi. Hvernig ríkisstjórnin ætl- aði að taka á þessu stóra verkefni, ekki aðeins í orði heldur einnig á borði, því orðin ein dygðu ekki, hvort sem þau væri að finna í ræðum á Alþingi eða í gagn- merkum alþjóöasamningum. ,,Lög og fögur orð duga nefnilega engan veginn til að afnema allt misrétti gagnvart konum“ sagði Sigríður Dúna. ,,Til þess er fé- lagslegur og fjárhagslegur aðstöðumunur karla og kvenna allt of mikill og hugmyndir um hefðbundin hlut- verk og stöðu kynjanna allt of rótgrónar. Til þess að hér megi ríkja jafnrétti í raun, á boröi sem í oröi, verður að taka sérstaklega á þessum málum með lagasetningu og ráðstöfunum, sem taka með beinum hætti á vandan- um og tryggja ótvírætt bættar aðstæður kvenna hér á landi, ráðstöfunum sem tryggja í raun bæði félagslegt og fjárhagslegt sjálfstæði kvenna." Félagsmálaráðherra lýsti í svörum sínum við þeim spurningum sem fram komu góðum vilja, en sagði lítið af eða á um ráðstafanir í þeim efnum. Að svo búnu var tillögunni vísað til síðari umræðu sem enn hefur ekki farið fram. Atvinnumálatillaga: Efling feröaþjónustu Nýlega lögðu þingkonur Kvennalistans fram þingsályktunartillögu um eflingu ferðaþjónustu ásamt þremur þingmönnum öðrum. í tillögunni er farið fram á að kannað verði fyrir mitt þetta ár hversu mikið fjármagn þarf til að kosta þær framkvæmdir sem nauðsynlegar eru til að mæta þeirri 7—8% fjölg- un erlendra ferðamanna sem Ferðamálaráð áætlar að verða muni. Ennfremur að lagðar verði fram í tæka tíð fyrir gerð næstu fjárlaga tillögur um aukin fjár- framlög til Ferðamálasjóðs svo að hann geti veitt lán til nauðsynlegra framkvæmda í samræmi við ofan- greinda áætlun Ferðamálaráðs. Þróun ferðamála hér á landi í greinargerð tillögunnar er á það bent að ferðaþjón- usta er vaxandi atvinnugrein sem líkleg er til að eiga verulegan þátt í öflun gjaldeyris á komandi árum ef markvisst er unnið að uppbyggingu hennar. Einnig er á það bent að í skýrslu sem unnin var að frumkvæði Ferðamálaráðs árin 1982—83 um stöðu ferðamála og líklega þróun í þeim málum til ársins 1992, er gert ráö fyrir að erlendum ferðamönnum fjölgi að meðaltali um 3,5% hér á landi frá 1984—1992. Fjölgun þeirra á s.l. sumri nam hins vegar um 10% og allt bendir til þess aö á þessu ári verði hún ekki innan við 7—8%. Til þess aö mæta þessari miklu fjölgun erlendra ferðamanna þarf að leita allra hugsanlegra leiða til að lengja ferða- mannatímann og auka nýtingu hótela og annarrar þjón- ustu sem þegar er fyrir hendi. Þá þarf að gera ráðstaf- anir til þess að hægt sé að gera ferðamönnum kleift að fara víðar um landið en til þess skortir tilfinnanlega að- stöðu víðast hvar utan höfuðborgarinnar og er brýnt að bæta úr þessu sem fyrst. Uppbygging ferðaþjónustu úti á landi hefur auk þess þann mikilvæga kost að skapa atvinnu í dreifbýlinu og stuðla aö jafnvægi í byggð landsins sem ekki er vanþörf á einmitt nú, segir í grein- argerðinni. Atvinna fyrir konur Góð umræða varð um tillöguna og voru flestir á þeirri skoðun að hér væri um þarft innlegg í umræðu um at- vinnumál að ræða. Kristín Halldórsdóttir, sem er fyrsti flutningsmaður og fylgdi úr hlaði tillögunni um eflingu ferðaþjónustu, sagði það gegna nokkurri furðu hve * Á i

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.