Vera - 01.06.1985, Blaðsíða 22

Vera - 01.06.1985, Blaðsíða 22
orq_>.cz) i-í £ Frrt> C a> — Nanna, Helga Sigurjónsdóttir sagði í viðtali við Veru, að vinstri konum hafi ,,þótt hróflað við grundvatiarskoð- unum sínum ipólitík og þá líka í kvenna- pólitík“ þegar hugmyndirnar um kvennamenningu komu fram. Var þér, sem gömlum sósialista og kvenréttinda- konu, þannig farið? Nei. Þjóðviljinn var að halda þessu fram, þeir sáu auðvitað strax, að þetta var hættulegt fyrir þá enda hafa vinstri konurnar alltaf stutt kvennabaráttu af öllum mætti. Máttur slagorðanna er mismikill. Hjá okkur var þetta fyrst og fremst kvennabarátta, og auðvitað verða konur úr öllum stéttum að heyja sína baráttu meðan karlarnir í flokkun- um sjá ekki þeirra hlut. Það er eins og það komist ekki inn úr skrokknum á körlum að konum er haldið utangarðs, jafnvel ekki vænstu mönnum. Þetta hefur furðulítið breyst. Þeir fleyta rjóm- ann af öllu sem þjóðfélagið hefur handa þegnunum. Samstaða þeirra um það er óhagganleg. — Hvernig leist þér á hugmyndirnar um reynsluheim kvenna og þeirra sjón- armið? Þú sérð það á Melkorku — þar voru almennt sjónarmið kvenna, auðvitað mörkuð reynslu þeirra. Það var óhjá- kvæmilegt, hvernig má annað vera? Nanna Ólafsdóttir er fædd árið 1915. Hún tók stúdentspróf frá MR árið 1934 (þá útskrifuðust 35 piltar og 6 stúlkur) og starfaði síð- an í Landsbankanum. Árið 1947 hóf Nanna nám í íslenskum fræð- um við Háskóla íslands og lauk þaðan magistersprófi með sögu sem aðalgrein árið 1958. Lokaritgerð hennar fjallaði um Baldvin Einarsson og var ritgerðin gefin út af Hinu íslenska bókmennta- félagi 1961. Árið 1946 gekk Nanna í Sósialistaflokkinn og var vara- bæjarfulltrúi hans í Reykjavík 1950—1954. Árið 1949 varð Nanna ritstjóri kvennatímaritsins Melkorka (ásamt Þóm Vigfúsdóttur og Svövu Þorleifsdóttur) var hún í ritstjóm þess allt til 1962, þegar tímaritið hætti að koma út. Nanna starfar við handritadeild Lands- bókasafns íslands. Hún hefur búið handrit til prentunar og útgáfu oggreinarhennarhafa birst í tímaritum. Eftir Nönnu liggja margar greinar um málefni kvenna. Nanna er ógift og barnlaus. Þetta hefur verið hrikaleg kúgun um aldir, konur voru hreinlega þrælkaðar — og svo er enn. Taktu eftir: svo er enn. „Hvergi nokkurs staðar hef ég séð konur vinna jafn mikið og á íslandi" segir danskur læknir, P. A. Schleisn- er, en hann skrifaði stórmerka lýsingu héðan, var hér læknir í 3 ár á síðustu öld. Mér dettur í hug annað dæmi, úr bréfi frá ungum vesturfara, einnig frá síðustu öld.... Það hefi ég fyrir satt, að tugthúslimir hjer í landi hafi minni þrælkun og betri viðurgjörning en vinnukonur upp til sveita á íslandi.1' Það er nú mín skoðun, að bændurnir hafi litiö á vinnukonurnar eins og hús- dýrin sín og svo gengu þeir í þær sam- kvæmt því. Mér hefur annars þótt undarlegt Samtalið endalausa SAGAN hversu seint það fór að tíðkast hér á landi, aö konur hefðu börn á brjósti, það varð ekki algengt hér fyrr en um 100 árum eftir að það varö venja með Dönum, sem íslendingar tóku þó allt eftir. Ég er nú nægilega illkvittin til að eiga skýringu á þessu: það var erfiðara að halda konum til vinnu sem voru með börn á brjósti. Því vinnudýr skyldu þær vera. Hvernig þeim eða börnunum reiddi af, var ekki mál þessara karl- punga, frekar en í fjölmörgum hlið- stæðum dæmum í nútímanum. Þriðja dæmi: „í Reykjavík hreyfist ekkert nema konur og flugur" segir Ross Browne, erlendur ferðalangur hér 1862. — Kvennamenning hefði ekki verið fjarri lagi í ykkar hugum? Við notuðum ekki þetta orð. En þú mátt lesa það út úr skrifum okkar, að það var það, sem raunverulega réð ferðinni, sérstaða þeirra í mannheim- um. — Svo við víkjum afturað viðtalinu við Helgu Sigurjónsdóttur — hún minnist á bókina Váckarklocka eftir Elínu Wágn- er. . . Já, við lásum hana. Sú bók var mikil hressing. Mikið eru þær merkilegar þessar hugmyndir hennar um mæðra- veldi á Krít til forna. . . annars er orðið langt síðan ég las þá bók. Hún kom aft- ur út rétt fyrir 1980. Á sama hátt eru bækur nútíma kvenréttindakvenna afar áhrifamiklar. (Hér má skjóta því inn, að Melkorka kynnti Elin Wágner og Váckarklocka í desember 1949. Tímaritið birti kafla úr bókinni og segir svo í kynningunni: „bók þessi hefur vakið mikla eftirtekt, m.a. vegna þeirra skoðana höfundar- ins, að móðurveldi eða matriarkat hafi ekki einungis átt sér stað á frumstæð- asta stigi mannkynsins, heldur einnig hjá þjóðum á háu og glæsilegu menn- ingarstigi eins og hjá íbúum Krítar, 1400 árum f. Kr.“ Og síðar: „í Váckar- klockan bendir Elin Wágner á, að á þessu menningartímabili sögunnar hafi vegur konunnar staðið með mikl- um blóma og áhrifa hennar gætt alls staðar í þjóðfélaginu og að jafnréttis- barátta kvenna í dag sé jafnframt bar- átta fyrir réttindum, sem tröðkuð voru niður af sigurvegurum nýrra þjóðfé- lagstímabila á löngu liðnum tímum.") — Melkorka var ötul við að kynna erlendar konur, ekki síst sovéskar. Voruð þið mjög hrifnar af Sovétríkjunum? Þarna var verið að byggja upp ríki sósíalisma. En þetta voru menntakon- ur, það varö strax algengt þar, að konur menntuðu sig og það var sjálfsagt að halda því á lofti. Á meðan það blundar enn í þjóðinni okkar að ekki borgi sig að mennta konur, er það líka nauðsynlegt. Þetta hefur breyst með aukinni vel- sæld. En hvað eigum við konum að þakka einmitt í menningarlegu tilliti? Þær 22

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.