Vera - 01.06.1985, Page 28
V
Áfanga náð í heilbrigðismálum
Eitt af þingmálum Kvennalistans er nú í höfn, þaö
fyrsta á þessu þingi en vonandi ekki það seinasta.
Tillagan um að komið verði á kerfisbundinni leit að
brjóstkrabbameini hjá konum með brjóstmyndatöku
var samþykkt einróma við atkvæðagreiðslu þann 7.
maí s.l.
Hér er um að ræða stóran áfanga í heilbrigðismálum
kvenna og kom fram í máli Guðrúnar Agnarsdóttur,
flutningsmanns tillögunnar, að síðan hún mælti fyrir til-
lögunni í október s.l. hefur ýmislegt komið í Ijós sem
gerir það enn brýnna að leit að brjóstkrabbameini með
þeim hætti sem hér um ræðir verði komið á. Birst hafa
niðurstöður úr sænskri könnun þar sem meginniður-
staðan er sú, aö röntgenmyndatökur af brjóstum hafa
orðið til þess að lækka dánartíðni af völdum brjóst-
krabbameins um 31% á 8 ára rannsóknartímabili.
Þessar niðurstöður hafa verið tölfræðilega grandskoð-
SJí°rað feð Vil^ s^
s °e “
r&ðu vj
aðar og rannsóknin sýnir að röntgenmyndataka af
brjóstum kvenna er mun árangursríkari en venjuleg
læknisskoðun.
Hér á íslandi deyja um 25 konur árlega úr brjóst-
krabbameini. Samkvæmt niðurstöðum áðurnefndrar
rannsóknar myndi þessum dauðsföllum fækka um 8
þegar hópskoðun væri farin að skila árangri. Guðrún
sagði að í sínum huga væri það ekki bara álitamál
hversu lengi mætti bíða með að fjármagna slíka hóp-
skoðun, það væri beinlínis ábyrgðarhluti. Sá kostnaður
sem áætlaður er mun vera á bilinu 500—700 kr. á hvern
einstakling sem fer í skoðun, en áætlaður rekstrar-
kostnaður á ári mun jafngilda rekstrarkostnaði um fimm
sjúkrarúma á ári.
Heilbrigðisráðherra hefur nú lýst því yfir í fjölmiðlum
að komið verði á kerfisbundinni leit að brjóstkrabba-
meini með brjóstmyndatöku svo fljótt sem auðið er.
*ygLTÍrrlt^ Znubrö«> neZZÓta a<
^yney^01111 V^sTtír’
BREF TIL
HEILBRIGÐIS- OG
TRYGGINGANEFNDAR
EFRI DEILDAR ALÞINGIS
Utanríkismál
Mikil umræða hefur verið í þinginu undanfarið um
utanríkismál. Má þar nefna umræður um skýrslu
utanríkisráðherra um utanríkismál, þróunaraðstoð
íslands, nýjar hernaðarratsjárstöðvar, frystingu
kjarnorkuvopna, stefnu íslands í afvopnunarmálum
og tillögu Kvennalistans um friðarfræðslu, sem nú
hefur verið lögð fram í annað sinn. Þessum málum
verða gerð sérstaklega skil í næstu Veru.
Kristín Árnadóttir skrifaði þingmálasíðurnar
28