Vera - 01.06.1985, Síða 36
A
Ráðstefna um íslenskar kvennarannsóknir
í skammdeginu í vetur fórum við
nokkrar konur, sem vinnum við Há-
skóla íslands, að gæla við þá hug-
mynd að tímabært væri að efna til
ráðstefnu til kynningar á kvenna-
rannsóknum á íslandi.
Nú er þessi hugmynd að verða að
veruleika. Það kom sem sé í Ijós að stór
hópur kvenna stundar kvennarann-
sóknir hér á sviði sagnfræði, félagsvís-
inda, bókennta, guðfræði, landafræði
og lögfræði svo eitthvað sé nefnt.
Undirbúningsvinna fyrir ráðstefnuna
hófst fyrir alvöru á útmánuðum og nú
standa málin þannig að staöur og
stund ráðstefnunnar hefur verið ákveð-
inn og dagskrá í burðarliönum.
Ráðstefnan hefst fimmtudagskvöld-
ið 29. ágúst n.k. Anna Sigurðardóttir í
Kvennasögusafni hefur lofað að opna
hana og á eftir fáum við aö heyra í ann-
arri Önnu, Önnu Jónsdóttur, en hún
mun ræða um fræðilegan grundvöll
kvennarannsókna. Kynning á kvenna-
rannsóknum á ýmsum sviðum hefjast
síðan á föstudagsmorgunn og standa
fram á sunnudaginn 1. september.
Milli kynninga mun gefast tími til um-
ræðna um efni þeirrra. Föstudags- og
laugardagskvöld verða líka notuð til
fulls, en þá verður á boðstólum mynd-
rænt efni og frásagnir um líf kvenna.
Ráðstefnan verður haldin í Odda,
hinu nýja húsi Háskólans. Forsvars-
menn Háskólans tóku vel við sér, þeg-
ar hugmyndin um ráðstefnuna var reif-
uð við þá og verður hún haldin með
stuöningi og á vegum Háskólans. Líta
má á ráðstefnuna sem framlag skólans
til loka kvennaáratugs Sameinuðu
þjóðanna.
Við sem erum að undirbúa þessa
fyrstu ráðstefnu um kvennarannsóknir
hér á landi, vonum aö með henni verði
vakin veröug athygli á rannsóknum ís-
lenskra kvenna á lífi og starfi kvenna
hér á landi í nútið og fortíö. Við vonum
einnig að ráðstefnan færi nær okkur þá
þekkingu sem fyrir er um þetta víð-
feðma efni og að sú þekking verði
okkur tiltæk og nýtanleg í kvenfrelsis-
baráttunni.
Að sjálfsögðu verður ráðstefnan öll-
um opin og ekki þarf að skrá sig til þátt-
töku fyrirfram. Að lokum, fjölmennum á
fyrstu ráðstefnuna um íslenskar
kvennarannsóknir og sækjum þangað
fróðleik, endurnýjun og aukið baráttu-
þrek. Munum 29. ágúst — 1. sept. í
haust.
Guðrún Jónsdóttir.
4
áhuga á sjómennsku þarf að standa allt
öðru vísi að verki.
En Þórunni hefur tekist að gera það sem
hún ætlaði sér. Hún hefur sýnt fram á að
konur hafa verið, gert og getað og hún hef-
ur lagt sinn skerf af mörkum til þeirra rann-
sókna sem ,,eru skilyrði þess að saga
kvenna og karla verði samhæfð, þannig
að atvinnusaga hafi ekki til frambúðar þá
slagsíðu að fjalla að mestu leyti um störf
karla“ (bls. 10). Þórunn lætur ekki hér við
sitja. Hún heldur áfram með rannsóknir
sínar á sjósókn íslenskra kvenna.
Þótt bókin sé skrifuð sem fræðibók með
greinargerðum fyrir aöferðum og heimild-
um, tilvísunum í heimildir, athugasemdum
og öllu sem tilheyrir þarf það ekki að fæla
neinn frá lestrinum. Hún er skýr og skipu-
leg, stíllinn látlaus og hressilegur, í einu
orði sagt, auðveld og skemmtileg af-
lestrar.
Guðrún Ólafsdóttir.
---------------\
KONUR
Tökum þátt í
undirskriftar-
söfnun fyrir
friðarávarp
íslenskra kvenna
Kvennaframboð og Kvennalisti
Frá Fjölbrautaskólanum
Ármúla
Kennara vantar í eftirtaldar greinar: íslensku, ensku og við-
skiptagreinar. Nánari upplýsingar í skólanum frá kl. 9—12,
sími 84022.
Áskriftarsími
VERU
er 22188
Gerist
áskrifendur.
Verum virkar og látum
í okkur heyra.
Hvetjum konur til aö
skrifa okkur og koma
með hugmyndir um
efni í blaöiö.
VERA — blað
kvenfrelsisbaráttu.
Tímamótaverk
Nýja ^
platan
með
Bubba
Morthens
m
KONA er liklega Ijufasla og fallegasta plata, sem Bubbi hefur nokkurn
tima sent Irá ser. Sterk lög. fallegar útsetningar, tilfinningarikir og
sterkir textar. Aöstoöarmenn Bubba á þessari plötu eru margir Iremstu
tónlistarmenn landsins.
____________?
------ ___________________________________
-—7 0& ^ -h **ce
gramm
Laugaveg 17 Sími: 12040.
n?)
36