Vera - 01.02.1989, Page 37

Vera - 01.02.1989, Page 37
Auðvitað eru ekki allir dagar þingsins sem þessi og reyndar fæstir, en dagar í líkingu við þann sem hér var rakinn eru samt ekkert einsdæmi, langir dagar, vaðið úr einu í annað, mikilvæg mál eru rædd, jafnvel utan dagskrár, þannig að lítill tími gefst til undirbúnings. Það er á svona dögum sem spurningar vakna. Er ekki þetta starf og það vinnuálag sem því fylgir kvenskemm- andi og fjölskylduskemmandi og þurfa þingkonurnar okkar endilega að leggja svona hart að sér? Erum við hvort sem er ekki í stjórnarandstöðu og fáum engu breytt? Starfskona þingflokks ákvað að leita til Kristín- ar Halldórsdóttur með þessar hugleiðingar sínar og fara hennar svör hér á eftir. ,,Það sem erfiðast er að sætta sig við í þessu starfi er einmitt það, hvað öll vinna verður ósamfelld og ómarkviss. Þó hefur verið reynt að vinna gegn þessu með því að bæta skipulagið. Til dæmis voru þingmál áður fyrr á dagskrá alveg frá þvi þau voru lögð fram þangað til mælt var fyrir þeim, jafnvel í nokkrar vikur. Nú eru mál ekki sett á dagskrá fyrr en nokkurn veginn er vitað að þau verði tekin fyrir og auðveldar það mjög undirbúning. En umræður fara oft langt út fyrir boðaða dagskrá og standa miklu lengur en áætlað er. Því geta valdið einhverjar ákveönar aðstæður í þjóðfélaginu og vissulega nota sumir þessa aðferð til að erta og vekja á sér athygli. Það þarf þó ekki að helgast af einhverj- urn lágum hvötum. Menn vilja vekja athygli almennings °9 fjölmiöla á því sem er að gerast, reyna að hafa áhrif á gang mála. Sem dæmi um slíkt get ég nefnt, að þótt é9 sé ekki kona langra ræðna þá lagði ég það á mig aö tala í tvo klukkutíma í fyrstu umræðu um matarskatt- ir>n á sínum tíma. Ég gætti þess þó að fara ekki út fyrir efniö, því mér leiðist sá siður að gaspra í strákslegum tón um allt og ekkert, það er ekki við hæfi svo virðu- tagrar stofnunar sem Alþingi er. Umræður verða jafnan mestar um fjármálin, sem taka í rauninni allt of langan tíma, stjórnmálamenn telja sig hafa miklar skoðanir á þeim. Það fer stundum í taug- arnar á okkur sem finnst ýmis önnur mál mættu skipa verðugri sess. Við gagnrýnum val forgangsverkefna, en svo drögumst við inn í þetta, höfum ekki getað staðið gegn því. Þetta er erfitt að sætta sig við en engin aug- Ijós leið út úr ógöngunum." En hlutverk stjórnarandstöðunnar — hvert er það? „Hlutverk stjórnarandstöðu er mikilvægt og felst í því að veita aðhald. Mörg dæmi eru þess að stjórnarand- staða hefur áhrif á framgang mála. Almennt er talið að stjórnarandstaða sé á móti öllum málum stjórnar en það er rangt. Mörg mál eru afgreidd í ágætu samkomulagi. Þingmál sem allir telja nauðsynlegar úrbætur á löggjöf eru lögð fram af ríkisstjórninni, en svo vinna fulltrúar allra flokka að því að bæta málið í nefnd. Stjórnarandstæð- ingar eru oftast gagnrýnni stjórnarsinnum. Það er of al- gengt að stjórnarþingmenn taki athugasemdalaust við málum stjórnarinnar, telji málið afgreitt, bara sé eftir að stimpla það. Oftast er það því vegna tilmæla stjórnar- andstöðuþingmanna að mál eru send út til umsagnar ýmissa aðila eða fólk fengið til funda við þingnefndir. Árangur þeirra sem eru i stjórnarandstöðu er ekki allt- af sýnilegur. Fjölmiðlar segja fyrst og fremst frá því sem ríkisstjórnin er að gera. Stjórnarandstaðan er oft hávær á þingfundum, en áhrif hennar koma þó líklega meira fram í nefndarstörfum og öðrum hljóðlegum störfum. Erfitt er að leggja mat á þau áhrif sem Kvennalistinn hefur bara með því að við konurnar erum þarna. Við erum viss áminning, viðvera okkar hefur áhrif á það sem menn segja. Vissulega er þátttaka i ríkisstjórn líklegri til árang- urs, en það er ekki endilega eina örugga leiðin til áhrifa. Oft hafa fylgjendur ákveðinnar stefnu orðið fyrir von- brigðum þegar fulltrúar þeirra hafa komist í stjórn. Að rjúka í ríkisstjórn bara ef það býðst flokkast undir valda- fíkn. En það hlýtur að vera árangursríkara að vera í stjórn? ,,Já, aðstöðumunur stjórnar og stjórnarandstæðinga er verulegur. Stjórnin hefur t.d. um sig fjölmennt lið starfsmanna sem hægt er að láta vinna fyrir sig, s.s. semja frumvörp um hin og þessi málefni. Slíkt verða stjórnarandstöðuþingmenn, a.m.k. litlu flokkanna, að gera sjálfir eða treysta á vinnu sjálfboðaliða til þess. Hinu má ekki gleyma að fólk í stjórnarandstöðu hefur þau for- réttindi, að þurfa miklu síður að gera málamiðlanir. Stjórnarmenn eru oft bundnir af samkomulagi sem þeir hafa jafnvel ekki haft neitt um að segja. Þeir þurfa að greiða atkvæði og styöja mál sem þeir myndu annars ekki gera og hafna öðru sem þeir vildu gjarnan styðja. í þessu kerfi margra flokka þarfnast stjórnarsamstarf mikilla málamiðlana. Þaö gæti orðið Kvennalistakonum erfitt að beygja sig undir slíka nauðsyn. Hlutverk stjórnarandstöðu er oft mistúlkað og vanmet- ið, talið ábyrgðarlaust rifrildishlutverk. Það er alrangt, stjórnarandstaða er að sjálfsögðu nauðsynlegur þáttur í lýðræðisþjóðfélagi. Það sem er opið fyrir almenningi eru þingfundirnir og þar ræða menn fyrst og fremst ágreiningsefni. Fréttamenn hafatakmarkaða þekkingu á þingstörfum, því miður, og virðast oft hafa mestan áhuga á því þegar þingmenn espast upp í hita leiksins. Það sem nær best til fjölmiðla er hnútukast og illindi. Kannski er það þess vegna sem Kvennalistinn nær svo illa eyrum fréttamanna að þær eru frábitnar slíku, en vilja reyna að vera málefnalegar og kurteisar." Já stelpur, þótt strákarnir á fjölmiðlunum beri okkur aðallega vopnaskak kynbræðra sinna, þá eru þær þarna konurnar okkar og hafa heilmikil heillaáhrif, minnumst þess. Sigrún Helgadóttir 37

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.