Vera - 01.08.1997, Blaðsíða 3
Kynjaskiptur vinnumarkaður 6
er þemaefni blaðsins. Hvað veldur því að konur og
karlar skiptast í störf eftir kyni og af hverju njóta störf
sem karlar gegna meiri virðingar en kvennastörfin?
Sólveig Jónasdóttir ræddi við dr. Guðbjörgu Lindu
Rafnsdóttur félagsfræðing en hún hefur rannsakað
kynjaskiptan vinnumarkað sérstaklega.
Kynlegar auglýsingar 8
Undanfarið hefur færst í vöxt að beitt sé jákvæðri mismunun í at-
vinnuauglýsingum og það kyn sem er í minnihluta í starfsgrein
hvatt til að sækja um. Svala Jónsdóttir kannaði málið og athugaði
einnig hvaða námsgreinar kynin velja sér í Háskóla íslands.
Karlar eru þar sem virðingin er mest 11
Þorgerður Einarsdóttir lauk nýlega doktorsprófi f félagsfræði frá
Gautaborgarháskóla. [ ritgerð sinni kryfur hún þá skiptingu sem er
ríkjandi innan læknastéttarinnar eftir kyni og virðingu og segir hér
frá niðurstöðum sínum.
Að sýna nærgætni og þjónustulund
Karlmönnum hef-
ur fjölgað talsvert
í starfsmannafé-
laginu Sókn, eða
úr 100 árið 1988
300. Það gefur
vísbendingu um
að þeir taki í
auknum mæli að
sér umönnunar-
störf og er hér
rætt við rúmlega
sextugan karl-
mann sem vinnur við heimilishjálp.
Konur og námskeið 14-19
Konur eru yfirleitt 70-80% þeirra sem
sækja hin ýmsu námskeið sem í boði eru á
hverju hausti. Vera ræddi við Guðlaugu
Helgadóttur sem hefur m.a. sótt námskeið í
skapandi skrifum, Sögu og Helgu E. Jóns-
dætur sem bjóða upp á námskeið í sjálfs-
eflingu í gegnum leik og Ágústu Johnson
likamsræktarkonu. Einnig er lýsing á jóga-
tíma sem ein ritnefndarkona brá sér f með
mömmu sinni.
Er brotið á rétti forræðislausra feðra? 20
Sú spurning er álitamál að þessu sinni. Katrín Theodórsdóttir, lög-
fræðingur Félags einstæðra foreldra, og Ottó Sverrisson frá
Ábyrgum feðrum segja sína skoðun á málinu.
Hringsól á Jamaica 22
Ritnefndarkonan Jóna Fanney Friðriks-
ðóttir átti þess kost að ferðast um Jama-
ica fyrir nokkru. Hún kynntist m.a. spenn-
andi konum sem starfa f kvennasamtök-
um á eynni. Önnur er fyrrverandi fegurö-
ardrottning en hin prestur og var í hópi
fjögurra kvenna sem fyrstar hlutu prest-
kígslu í landinu f desember sl.
íslenskt Aktu-Taktu leikhús 30
Þær starfa í London og kalla leikhús sitt The lcelandic Take Away
Theatre. Ágústa Skúladóttir og Vala Þórsdóttir voru að æfa nýtt
leikrit, Sítrónustysturnar, þegar Vera náði tali af þeim.
Leyndardómsfullt líf Marilyn Monroe 36
Eva María Jónsdóttir las nýlega ævisögu Marilyn Monroe og segir
hér frá bókinni. Þar kemur ýmislegt merkilegt fram sem ekki fellur
undir hina stöðluðu mynd af Ijóskunni sem átti ekki að hafa haft
mikið vit f kollinum.
Tungumál gyöjunnar 38
Hvískur frá Kyrrahafi köllum við bréfin
sem Valgerður H. Bjarnadóttir sendir
Veru frá San Francisco þar sem hún
stundar nám f helgum kvennafræðum.
Auk frásagna af gyðjunni veltir Valgerður
fyrir sér orðanotkun, m.a. orðinu Kvenna-
listi.
Af vinnu, ást og valdi 42
ítalska fræðikonan Donalda Francescato
var nýlega hér á landi og sagði frá rann-
sóknum sfnum. Er kynbundinn munur á
því hvort fólki finnist það geta haft áhrif á
umhverfi sitt? er ein af spurningunum sem
hún veltir fyrir sér.
Antónía og ættin hennar 45
Anna Ó. Björnsson fór á myndbandaleigu og fékk Óskarsverð-
launamyndina Antonia’s Line - fyrstu myndina undir leikstjórn
konu sem fær Óskarsverðlaun. Anna er himinlifandi yfir myndinni
og hvetur alla til að sjá hana.
Þau hafa staðfest samvist sína 46
Konurnar að baki Rauða krossinum 26
Hjá Rauða krossi íslands eru tvær konur i æðstu stöðum en það
er ekki algengt hjá Rauöa krossfélögum í Noruður-Evrópu. Agla
S. Björnsdóttir ræddi við Önnu Þrúði Þorkelsdóttur, formann
Rauða krossins, og Sigrúnu Árnadóttur framkvæmdastjóra um
starfið og hugsjónir hreyfingarinnar.
Doris Lessing og femínisminn 32
Sigþrúður Gunnlaugsdóttir er við bókmenntanám ( Kanada og
hefur einbeitt sér sérstaklega að hinum fræga rithöfundi Doris
Lessing. Margir Ifta á bókina The Golden Notebook sem grunn-
fexta kvenfrelsisbaráttunnar en sjálf er Lessing ekki sátt við þá
skilgreiningu.
Nú er rúmt ár síðan
samkynhneigðir
fengu réttindi sem
líkja má við hjóna-
band gagnkyn-
hneigðra. Ekki er
vitað nákvæmlega
hve mörg pör hafa
nýtt sér þennan rétt,
líklega um þrjátíu,
en hér birtast „brúð-
kaupsmyndir" af tólf
pörum. Vera óskar
þeim og öllum hin-
um til hamingju.
tímarit um konur
og kvenfrelsi
4/97 - 16. árg.
Austurstraeti 16,
101 Reykjavík
s: 552 2188
og 552 6310
fax: 552 7560
Vera@centrum.is
http://www.centrum.is/Vera
útgefandi
Samtök um kvennalista
ritnefnd
Agla Sigríöur Björnsdóttir,
Annadís G. Rúdólfsdóttir,
Drífa H. Kristjánsdóttir,
Hugrún Hjaltadóttir,
Jóna Fanney Friðriksdóttir,
Ragnhildur Helgadóttir,
Sigrún Erla Egilsdóttir,
Sigurbjörg Ásgeirsdóttir,
Sólveig Jónasdóttir,
Stefanía Óskarsdóttir,
Svala Jónsdóttir,
Vala S. Valdimarsdóttir
ritstýra og ábyrgðarkona
Elísabet Þorgeirsdóttir
skrifstofustýra
Vala S. Valdimarsdóttir
útlit og tölvuumbrot
Margrét Rósa Sigurðardóttir
Ijósmyndir Bára o.fl.
auglýsingar
Áslaug Nielsen
sími 533 1850
fax 533 1855
filmuvinna
Offsetþjónustan hf.
prentun Grafík
plastpökkun
Vinnuheimiliö Bjarkarás
©VERA ISSN
1021-8793
ath. Greinarí Veru eru
birtar á ábyrgð höfunda
og eru ekki endilega
stefna útgefenda.
vara 3