Vera - 01.08.1997, Síða 12

Vera - 01.08.1997, Síða 12
 ynjaskiptur vinnumarkaður kyntengda orðræða var löngu orðin til áður en konur urðu fjölmennar í stéttinni. Þá eru til sérgreinar með allnokkra kvenna- eða karlaslagsíðu sem hvorki eru lágt né hátt skrif- aðar. Ef virðingin réðist af kynferði þeirra sem ynnu störfin væru þessar greinar efst og neðst í goggunarröðinni. Þá eiga fleiri atriði þátt í að skapa sérgreinum virðingu en kyntengd orðræða. Má þar nefna hve sérhæft og afmarkað þekking- arsviðið er: því sérhæfðara, þeim mun meiri virðing (sem m.a. skýrir litla virðingu heimilislækninga). Annað atriði er staðsetning lækninganna, það læknastarf sem unnið er utan heilbrigðisstofnana nýtur minni virðingar en það sem stund- að er innan þeirra. Enn má nefna að lækningar sem tengj- ast félags- og sálfræðilegum þáttum njóta minni virðingar en það sem er læknisfræðilegt í hefðbundnum raunvísindaleg- um skilningi. Hugmyndir, menning og viðhorf tungu- málsins Ein helsta niðurstaða rannsóknarinnar er að orðræða virð- ingarinnar, þ.e. hugmyndir, menning og viðhorf sem tungu- málið ljáir búning, eigi meiri þátt í að beina konum og körl- um inn á ólíkar sérgreinabrautir en þættir á borð við vinnu- tíma, fjölskylduaðstæður eða raunverulegt innihald sér- greinanna. Ekkert samband fannst milli fjölskylduaðstæðna eða barnafjölda og sérgreinavals. Ekki voru heldur mikil tengsl milli orðræðunnar og innihalds sérgreinanna. Þrátt fyrir það er ofurvirðingu sumra sérgreina viðhaldið á kostn- að annarra. Sjálfsupphafning og harðneskjulegt, keppnis- þrungið andrúmsloft karlagreinanna fælir konur frá - og einnig marga karla. Ekkert bendir til að þetta breytist nema konur (og karlar) takist á við þessar hindranir, brjóti múr- ana og breyti móralnum. En fyrsta skrefið er auðvitað að öðlast þekkingu á þeim ósýnilegu og óáþreifanlegu öflum sem stjórna mannlegum athöfnum meira en okkur grunar. Fyrir frúarbíla, frökenabíla, ungfrúarbíla, jómfrúarbíla, ekkjubíla, heimasætubíla, hattkonubíla ina líka Borgartúni 26, Reykjavík Bíldshöfa 14, Reykjavik Skeifunni 5, Reykjavík Bæjarhrauni 6, Hafnarfirði Jón Már vökvar blómin hjá Ólafi Jónssyni sem hann kemur til einu sinni í viku á vegum heimaþjónustu borgarinnar. AÐ SÝNA NÆRGÆTN 0G ÞJÓNUSTULUND Á undanförnum árum hefur lítið verið rætt um kynskiptan vinnumarkað ogjnvaða áhrif hann hefur haft á launamun kynjanna. Ástæðan er meðal annars lítill áhugi innan verkalýðshreyfingarinnar sem í besta falli lítur á jafnréttis- umræðu sem áhugamál örfárra kvenna. Þannig erum við meðal annars langt á eftir öðrum Norðurlöndum í því að karlar sinni umönnunarstörfum. s Ilauslegu spjalli við Þórunni Sveinbjörnsdóttur formann Sóknar kom fram að frá árinu 1988 hefur karlkyns félögum í Sókn fjölgað úr 3,6% eða 100, í um það bil 10% eða 300, á þessu ári. Karlar á starfssvæði Sóknar sinna ýmsum störf- um svo sem á leikskólum, umönnun geðsjúkra og við heima- þjónustu. Algengt er að karlar kvarti yfir lágum launum á leikskól- um eftir nokkurra mánaða störf. Umkvartanir vegna launa virðast ekki vera eins miklar í öðrum störfum. Þá vantar tilfinnanlega stefnumörkun í fjölgun karla í vinnu hjá Dagvist barna. Karlar hafa getið sér gott orð við umönnun geðsjúkra, en athygli vekur að þeir virðast hafa einna minnstan áhuga á að starfa við ræstingar. Eftir því sem öldruðu fólki fjölgar eykst þörfin fyrir heimaþjón- ustu. Þar opnast því nýr starfsvettvangur fyrir karlmenn. í Dan- mörku hefur þeim fjölgað vegna þess að mikið veikt fólk er haft heima hjá sér miklu lengur en hér á landi. Hér vantar líka mark- vissari stefnu í málefnum aldraðra. Eitthvað er um að karlmenn sem lengi hafa búið einir vilji ekki konur til að taka til heima hjá sér. Um þetta hefur lítið verið fjallað. Líkar vel að geta orðið að liði Jón Már Þorvaldsson er einn þeirra karla sem sinnir heimaþjón- ustu. Jón Már er lærður prentari og vann við sína iðn í 30 ár bæði og alla h Sími 562 2262

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.