Vera - 01.08.1997, Page 15
Sj'á/fs-
gegnum
íeik
í Skemmtihúsinu, vinnustofu leik-
ara við Laufásveg, er verið að
skipuleggja námskeið sem hefjast á
í byrjun september. Blaðakona Veru
brá undir sig betri fcetinum og hitti
að máli þcer Helgu E. Jónsdóttur og
Sögu Jónsdóttur leikkonur en þcer
standa fyrir þessum námskeiðum
sem þcer kalla LEIKUR OG LIST.
Fyrstu spurningunni sem skaut upp í hugann var
auðvitað: Er þetta svona leiklistarnámskeið fyrir full-
orðna?
„Þetta er ekki leiklistarnámskeið í hefðbundnum
skilningi og ekkert frekar ætlað þeim sem hyggja á
leiklistarnám eða vilja leggja fyrir sig leiklist. Nám-
skeiðin verða byggð upp með tilliti til þátttakenda.
Við leggjum áherslu á framsögn, að nota röddina, ein-
beitingu, tjáningu og rétta öndun sem er grundvallar-
atriði. Síðast en ekki síst viljum við leika okkur með
fólki. Við viljum miðla fólki af þekkingu okkar og
reynslu í leikhúsinu og frá margvíslegum námskeiðum
sem við höfum sótt í gegnum árin.“
Þau námskeið sem hafa verið í boði til sjálfseflingar
og líkamsræktar eru mörg hver sérhæf, þ.e. eróbik og
fitubrennsla eða ræðumennska og fundarsköp. Með
þessu nýja námskeiði vilja Helga og Saga gera tilraun
til að samræma líkamsrækt og sjálfseflingu, eins kon-
ar sjálfsrækt í víðasta skilningi þess orðs.
„Það er svo gaman að fylgjast með fólki uppgötva
hæfileika sína. Kannski er hægt að líkja svona starfi
við ljóðmóðurstarf, við aðstoðum við fæðinguna,"
segir Helga og brosir. „Fólk veit oft ekki hversu
óhemju mikil orka býr innra með því. Með því að
beita líkama þínum rétt og virkja öndunina geturðu
ráðið við flóknustu verkefni.“
Og ég var auðvitað tekin í smá sýnikennslu á fjalar-
gólfinu. Eftir örlitlar styrkleikaæfingar komumst við
að því að við Helga værum álíka sterkar en eftir að
hún setti sig í stellingar og safnaði ofan í sig helmingn-
um af andrúmslofti herbergisins, tókst henni næstum
að fleygja mér á dyr!
Námskeiðin verða öllurn opin, konum og körlum
sem náð hafa 16 ára aldri. Helga og Saga leggja
áherslu á að námskeiðin geti nýst jafnt einstaklingum
sem hjónum, vinahópum og/eða starfsmannahópum.
„Eg held að svona námskeið eigi mikið erindi til
fólks í dag. Með aukinni orku og sjálfsöryggi ætti
okkur að líða betur,“ segir Saga að lokum.
Saga Jónsdóttir og
Helga E. Jónsdóttir í
dyrum Skemmtihússins.
Nýtt bragð
Nýjar hugmyndir
LA BAGUETTE
frystivöruverslun og heildsölubirgðir,
GLÆSIBÆ, SÍMI588 2759,
HAFNARSTRÆTI20, SÍMI562 1998.
EKTA FRANSKT BAKKELSI,
GRÆNMETI, ÁVEXTIR.
Frábærar tilbúnar máltíðir.
Styttri tími í eldhúsinu.
Meiri frítími.
Heitt og frosið fæst í Hafnarstræti 20.
Verið velkomin.
v ra 15