Vera - 01.08.1997, Qupperneq 16
m s k e i ö
Guðlaug Helgadóttir er 62 ára og
vinnur í afgreiðslu íþróttamiðstöðvar
Garðabcejar. Hún befur undanfarin
ár sótt fjöldann allan af námskeiðum
hjá ýmsum aðilum; lcert leiklist hjá
Ævari Kvaran, tungumál, dans og
lcert að sníða, svo eitthvað sé nefnt.
Guðlaug er sammála Guðrúnu hjá
Námsflokkunum um að það sé
auðveldara að byrja aftur að lcera
með því að scekja námskeið, auk þess
sem úrvalið sem í boði er sé mjög
fjölbreytt. Eftir að hafa sótt alls
konar námskeið í mörg ár dreif hún
sig í öldungadeild MH og kláraði
stúdentsprófið 1983. Síðan þá hefur
hún sótt tíma í Háskólanum, aðallega
í sálfrceði og félagsvísindum sem hún
hefur mikinn áhuga á.
Guðlaug segist haldin einskonar námskeiðsfíkn. Nú síðast sótti hún námskeiö í skapandi skrifum
í Tómstundaskólanum og fannst það mjög spennandi.
MYNDLISTASKOLINN
THE REYKJAVÍK SCHOOL OF ART
I REYKJAVIK
TRYGGVAGÖTU 15-TOT REVKJAVÍK • SÍMI 551 1990
UNDIRBUNINGSNAM
FR AMH ALDSDEILDIR
ÁHUGAMANNADEILDIR
Haustönn og vorönn: hvert námsskeið varir í 13 vikur.
Barna og unglingadeildir: fyrir nemendur 6-16 ára.
Almennar deildir: fyrir nemendur 16 ára og eldri.
Áfangar í grun nmenntun myndlistar
og fyrir lengra komna.
Sfcrifar fer&asaga
frá Sahur-fífríka
etta er meðfædd forvitni - eins konar námskeiðafíkn
má segja. Ég verð alltaf að vera að bæta við mig
þekkingu og þó ég sæki öðru hvoru tíma í
Háskólanum er ég ekki hætt að sækja námskeið. Nú
síðast fór ég á námskeið í Tómstundaskólanum þar
sem Ingólfur Margeirsson kenndi skapandi skrif. Það var
eitthvað sem hafði blundað í mér lengi eða líklega alveg síðan
ég var að skrifa ritgerðirnar í MH. Ég fann að ég átti auðvelt
með að skrifa og held meira að segja að ég eigi hraðamet í
ritgerðarsmíð. Eitt sinn skrifaði ég ritgerð um leið og ég eldaði
kjötsúpu, eða á u.þ.b. einum klukkutíma! Síðan er alltaf talað
um kjötsúpuritgerðina, annars fjallaði hún um samanburð á
Eddukvæðum og Ijóðum Stephans G. Þrátt fyrir hversu stuttan
tíma tók að skrifa hana fékk ég góða einkunn, og mig minnir
að kjötsúpan hafi tekist ágætlega líka,“ segir Guðlaug og hlær
dátt.
Á námskeiðinu í skapandi skrifum leggur Ingólfur áherslu á
að fólk skrifi um eigin reynslu og þar byrjaði Guðlaug að skrifa
ferðasögur. Þessi skrif undu upp á sig enda hefur hún ferðast
víða og nú er hún að leggja lokahönd á ferðasögu þar sem hún
segir frá ferðalagi sínu til Suður-Afríku. „Ég hef mjög gaman af
þessu stússi og námskeiðið hans Ingólfs var mjög lifandi og
skemmtilegt. Þar var fólk á öllum aldri og úr öllum stéttum
þjóðfélagsins. Ingólfur lagði áherslu á að við skrifuðum um
eitthvað sem við hefðum áhuga á, þess vegna fór ég að skrifa
ferðasögur. Söguna frá Suður-Afríku kalla ég Töfra Afríku
enda heillaðist ég af landi og þjóð. Ég reyni að flétta saman
persónulegri reynslu og alls konar fræðandi upplýsingum. Mig
langar að gefa þessa sögu út því ég held að svona ferðasaga
nýtist bæði fólki sem situr heima og vill fræðast um land og
þjóð og einnig þeim sem hyggja á ferðalög“, segir Guðlaug.
16