Vera - 01.08.1997, Side 20

Vera - 01.08.1997, Side 20
Alitamál Álitamál Álitamál Katrín Tbeodórsdóttir, lögfrœðingur Félags einstceðra foreldra Við mat á því hvort brotið sé á rétti feðra kemur tvennt til, annars vegar það álitamál hvort brotið sé á feðr- um við skipan forsjár og hins vegar hvort feður hafi eðlilega umgengi við börn sín þegar þeir fara ekki með forsjá þeirra. Samkvæmt upplýsingum frá dómsmála- ráðuneytinu ganga foreldrar sjálfir frá sam- komulagi um forsjá barna sinna í rúmlega 98% tilvikum við skilnað eða samvistarslit. Ágreining um forsjá barna er hægt að leggja fyrir dómsmálaráðuneytið eða dómstóla. Við athugun á úrskurðum dómsmálaráðu- neytis á fjögurra ára tímabili, frá 1989- 1993, kom í ljós að feðrum var falin forsjá 30% þeirra barna sem ágreiningur stóð um. Á tímabilinu janúar 1993 til júlí 1995 voru kveðnir upp 11 dómar og 20 úrskurðir við skilnað eða samvistarslit foreldra og var móður falin forsjá í 26 þeirra. í dag fara konur með forsjá barna í 96% tilvika. Þessi staða gefur auðvitað tilefni til vanga- veltna. Þungur róður karla. Ég held að áhugi karla til að gegna uppeld- is- og umönnunarhlutverki barna sinna hafi aukist mikið hin síðari ár. Á árinu 1990 þótti það sæta tíðindum þegar karlmenn Ieituðu ráðgjafar hjá Félagi einstæðra for- eldra, sem hafði starfað allt frá árinu 1969, en í dag eru karlmenn milli 30 og 40% þeirra sem leita til félagsins vegna réttar- stöðu sinnar. Þá hygg ég að það sé almennt álit feðra að ekki þýði að deila við móður um forsjá barna sinna, rétturinn sé alltaf hennar megin. En af hverju er róðurinn karlmönnum svo þungur? Til að svara þessu er nauðsynlegt að skoða löggjöf og réttarframkvæmd við lausn forsjármála. Þegar úrlausnaraðili stendur frammi fyrir forsjárdeilu verður hann í úrlausn sinni að taka mið af því sem barninu er fyrir bestu. Og þegar hagsmunir barnsins eru metnir fer fram veigamikil rannsókn á innra sem ytra umhverfi barnsins og er álit sérfræðinga og/eða barnaverndarnefnda oftast liður í þeirri rannsókn. Foreldrar eru skoðaðir, heimilishagir hvors um sig, tengsl systkina, umhverfi og tilfinningaleg tengsl barns við foreldra sína og afstaða þess til beggja, svo eitthvað sé nefnt. Sjónarmiðin sem ráða niðurstöðu úr- lausnaraðila eru mörg en þau sjónarmið sem vega öðrum sjónarmiðum þyngra eru án efa tilfinningaleg tengsl barna og for- eldris, ásamt sjónarmiðinu að komast hjá röskun á stöðu og högum barns þegar báð- ir foreldrar eru hæfir, en svo er í langflest- um tilvikum. Þegar þessi sjónarmið fara saman þarf mikið að koma til til þess að hinu foreldrinu verði falin forsjá. í ljósi þess að tilfinningatengslin eru oft metin meiri við móður og mæður hafa verið at- Afhverju semja foreldrar oftast um að móöirin skuli fara með forsjá? Hafa feöur ekki áhuga? Telja þeir að það sé árangurslaust að krefjast forsjárinnar ef móðirin er því mót- fallin? Tregðast mæður við að gefa Q börnin eftir til föður, jafnvel þó að- stæöur hans séu í mörgum tilvikum betri til að annast börnin? Er kynj- unum mismunað í dómum og úr- skurðum dómstóla og yfirvalda? þætti. Hér á landi vantar hins vegar alla skilnaðarráðgjöf og er fólk því í allavega ástandi þegar það tekur ákvarðanir um mikilvægustu mál fjölskyldunnar til fram- búðar. Valdabarátta. Ef feður vilja aukinn rétt verða þeir að axla meiri ábyrgð á börnunum og taka virkari þátt í lífi þeirra. Þeir verða að Álitamál Er brotið tessa biads: forræðislausra kvæðameiri í uppeldi og umönnun barna leiðir það til þess að konum éer oftar fal- in forsjá barna. Það má því segja að nið- urstöður úrlausnaraðila endurspegli hina hefðbundnu hlutverkaskiptingu inni á heimilunum fremur en að þær feli í sér að karlinn sé lakari kostur sem uppalandi. Umgengni. Börn eiga rétt til samvista við báða for- eldra og því foreldri sem fer með forsjá ber að tryggja þennan rétt. Andstætt því sem gerist með forsjá sem ákveðin er í eitt skipti fyrir öll, verði henni ekki breytt síð- ar, reynir umgengnisrétturinn stöðugt á samskipti foreldranna. Forsjárforeldri, sem í flestum tilvikum er kona, getur vissulega hamlað umgengni milli föður og barns ef vilji er til þess. Að sama skapi getur hún lítið gert ef faðir neitar að sinna barni sínu. Það er auðvelt að setja sig í spor foreldris sem gjarnan vill taka á- byrgð á uppeldi barna sinna en er hindrað í því. Foreldrar sem koma úr erfiðum samböndum með óuppgerðar tilfinningar freistast því miður oft til að beita börnun- um fyrir sig í átökum við hitt. Barnið verður auðvitað alltaf undir í slíkum átök- um. í Noregi er fólki sem stendur í skiln- aði eða sambúðarslitum gert skylt að sækja 2-3 tíma til að ganga frá forsjá og umgengni, þó samkomulag sé um alla koma meir inn í umönnunar- og uppeldis- hlutverkið. Þeir verða enn frekar en áður að gera ráð fyrir fjölskyldunni í starfsum- hverfi sínu. Þeir verða að nýta rétt sinn til fæðingarorlofs og gera ráð fyrir því að þurfa að vera heima þegar börnin veikj- ast, fara með börnin í ungbarnaskoðun, sprautur, fara á foreldrafundina og barnaafmælin. Ekki er sjálfgefið að mæður afsali sér þeim völdum og þeirri ábyrgð sem þær hafa inni á heimilunum. Við skilnað og samvistarslit halda konur fast í börnin og alla ábyrgðina. I skýrslu, sem kom út á vegum félagsmálaráðuneytisins 1995 um barnafjölskylduna, kemur fram að ís- lenskar konur eru ófúsar að gefa feðrum hlutdeild í ábyrgðinni á börnum sínum eftir skilnað, að öðru leyti en því sem snýr að fjárhagslegri ábyrgð. Það eru mörg dæmi þess að konur ríghaldi í forsjá fjög- urra til fimm barna sinna þrátt fyrir ágætan föður sem stendur mun betur að vígi fjárhagslega og sem er tilbúinn til að taka hluta af börnunum til sín. Konur verða að sleppa hendinni af ábyrgðinni yfir til karla og karlarnir verða að gefa fjölskyldulífi meiri tíma. Með því styrkist staða feðra og konur hafa meiri möguleika til að standa jafnfætis körlum í samkeppninni á vinnumarkaðinum. 20 v ra

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.