Vera - 01.08.1997, Síða 23
Þekkir þú Hófí og Lindu?
Jamaica er einn af mörgum áfangastöðum íslenskra
skiptinema sem dvelja utan tæpt ár til að kynnast
menningu annarra landa á dýpri hátt en hinn hefð-
bundni ferðamaður. Eyjan er um tíu
sinnum minni en fsland og ein af
mörgum í Karabíska hafinu sem til-
heyra eyjaklasanum Vestur-Indíum.
Þarna skín sólin. Elegant ferðamenn
sötra drykk í sólarlagslitum undir
skugga pálmatrjánna. Limbódans er
stiginn fram eftir nóttu. Staðreynd er
þó að vistin í Paradís hefur ekki verið
átakalaus og klisjukennd ímynd okk-
ar Vesturlandabúa af Jamaica sam-
ræmist lítt kjörum almennings í land-
inu.
Joan McDonalds starfar sem sjálf-
boðaliði á vegum skiptinemasamtaka
AFS á Jamaica og í garðveislu, sem
haldin var fyrir ráðstefnugesti sam-
takanna, gekk þessi tígulega kona að
mér, kynnti sig og spurði í næstu
andrá: „Þekkir þú Hófí og Lindu?“
Nöfnin hljómuðu kunnuglega í eyr-
um mér og ég rifjaði í snarhasti upp
nöfn þeirra skiptinema sem dvalið
höfðu á Jamaica. Þegar ég svo loks
kveikti á perunni hafði ég ekki hug-
mynd um hvort ég ætti að svara kon-
unni með já-i eða nei-i! Við fórum því
út í allt aðra sálma og að endingu
bauð Joan mér í kvöldverð á heimili
sitt og barna sinna ásamt heimilisvin-
inum Vivette.
Baráttan fyrir hempunni
„Hér búa upparnir,“ tjáir Vivette mér
glettnislega þegar við rennum í hlað á
heimili Joan og barna hennar tveggja,
Rick 16 ára og Ashley 5 ára. Það fer
ekki framhjá mér að þær vinkonur
hafa ólíkan lífsstíl. Joan starfar sem
viðskiptafræðingur í einu af stærstu
fyrirtækjum landsins en Vivette er
prestur og starfar við kirkju í miðbæ
Kingston við að aðstoða ungar, heim-
ilislausar stúlkur. Hún er ein af fjór-
um fyrstu konunum á Jamaica sem
vígð var til prests við Ensku biskupa-
kirkjuna þar í landi. Með baráttu
sera Auðar Eir í huga leikur mér for-
vitni á að vita hvort það hafi verið
auðsótt mál fyrir konu frá Jamaica að
gerast prestur þar í landi.
,,0-nei,“ tjáir Vivette mér. „Þetta
befur kostað stríð og við þurftum að
berjast lengi þar til yfir lauk. Trúin og
kirkjusókn er stór hluti menningar
okkar. Um þrír fjórðu landsmanna eru kristinnar trú-
ar og allt frá miðri 17. öld, þegar Jamaica varð bresk
nýlenda, hefur stærstur hluti íbúanna tilheyrt Ensku
biskupakirkjunni. Meirihluti kirkjugesta eru konur og
Hagskínna
Sögulegar hagtölur um ísland
m
-tasí'
I lagstofa íslands
í fyrsta sinn á isiandi, sösuieg tölfræðihandbók, byggð upp á skýran og einfaldan hátt.
Aðgengílegt uppsláttarrit og uiðtækt heimildarrit öllum heim sem vilja
kynna sér bróun bióðféiagsins í tölum.