Vera - 01.08.1997, Blaðsíða 24

Vera - 01.08.1997, Blaðsíða 24
þær eru mun virkari innan kirkjunnar held- ur en karlar. I fyrstu mættum við litlum skilningi kirkjuyfirvalda enda sitja þar til borðs einungis herramenn. Við vorum fjór- ar konur sem rufum múrinn með því að ger- ast fyrstu kvendjáknar á eyjunni árið 1994. Að vísu hefur þetta málefni verið í deiglunni innan biskupakirkjunnar á Vestur-Indíum allt frá sjötta áratugnum og prestsvígsla kvenna var samþykkt innan hennar fyrir um áratug síðan. En framan af mættum við skilningsleysi og daufum eyrum. Hvers kyns skrifræðislegum hindrunum var beitt að okkur í fyrstu og málefnið var einfaldlega hunsað. Eftir áralanga baráttu fékk köllun mín þó náð og blessun yfirvalda og í desem- ber síðastliðnum vorum við fjórar konur, sem áður höfðum starfað sem djáknar í nokkur ár, vígðar til prests.“ Nú eru tvö ár frá því að Enska biskupa- kirkjan á Englandi veitti konutn inngöngu til prestsvígslu. Ihaldsamar raddir þar í landi mótmæltu barðlega og nokkrir karl- prestar yfirgáfu kirkjuna. Sögðu karlkyns prestar á Jamaica sig úr kirkjunni líkt og á Englandi þegar þið hlutuð vígslui „Prestsvígsla kvenna hefur verið eitt aðal- deiluefni Ensku biskupakirkjunnar og Róm- versk kaþólsku kirkjunnar um nokkurt skeið. Erkibiskupinn af Canterbury á Englandi og páfinn deildu hart um þetta málefni ekki alls fyrir löngu. Nei, ég veit ekki dæmi þess að nokkur prestur hafi yfir- gefið Ensku biskupakirkjuna á Jamaica í mótmælaskyni. En vissulega höfum við mætt andstreymi og vorum í fyrstu virtar að vettugi." Og Vivette tjáir mér að án stuðn- ings sinna nánustu og ekki síst Joan hefði hún sennilega ekki komist í gegnum þetta erfiða tímabil. „Joan veitti mér ómetanlegan andlegan stuðning á meðan á stríðinu stóð. Hún hreinlega barði mig áfram og þar sem Joan er nokkuð þekkt í þjóðfélaginu efast ég ekki um að það hefur hjálpað til að hún stóð opinberlega við bakið á mér.“ Arfleifð þrælanna byggist á munnmælum Það er undarlegt að vera stödd í þjóðfélagi sunnan miðbaugar og mæta þar breskara yfirbragði hjá efri stéttinni en á Bretlandi sjálfu. Jamaica var bresk nýlenda allt til árs- ins 1962 og saga eyjarinnar er blóði drifin. Kristófer Kólumbus uppgötvaði eyjuna ásamt fylgdarliði á 16. öld og á skömmum tíma tókst Evrópumönnunum að útrýma þeim hundrað þúsund frumbyggjum, Arawaks indíánum, sem þá byggðu eyna. Er Bretar fóru að þenja út heimsveldi sitt seint á 17. öld unnu þeir eyna af Spánverjum og fluttu með sér þúsundir svartra þræla frá Afríku til að vinna á sykur- og kaffi- plantekrunum. Afkomendur þrælanna eru uppistaða þess þjóðfélags sem Jamaica er í dag. „Hvað uppruna okkar varðar höfum við á litlu að byggja," segir Joan. „Þrælaánauð var aflögð seint á 19. öld og í kjölfarið upp- hófust blóðug átök milli þrælanna og ný- lenduherranna. Þúsundir þræla voru hengd- ir, skotnir eða murkuð úr þeim líftóran. Fæstir þeirra sem af lifðu voru læsir eða skrifandi þannig að arfleifð okkar byggist á munnmælum. Eftirnafn mitt, McDonalds, er t.d. skoskt að uppruna en ég hef enga vit- neskju um hvaðan það kemur.“ Glæsimyndir af fyrirsætuferli Joan prýða veggi heimilisins og innan um rekst ég á mynd af henni og Bob Marley sem var góð- ur vinur hennar í lifanda lífi. „Marley var yndisleg manneskja. Hjarta hans var stund- um að springa yfir óréttlæti heimsins. Ósjaldan tókum við okkur til hér í garnla daga og elduðum mat í gríðarstórum pott- um heima hjá honum og héldum niður í miðbæ Kingston til að útdeila matnum til bágstaddra. Fólkið hreinlega dýrkaði hann.“ Óneitanlega setja Vesturlandabúar sama- sem merki á milli Jamaica og Bob Marley og tal okkar berst að klisjukenndri ímynd eyj- arinnar: romm, raggí og rastatrú. „Rasta- trúin hefur ekkert með letilíf, raggí og hass- reykingar að gera. Rastarnir eru heittrúar- fólk sem lifir yfirleitt hófsömu lífi. Þeir byggja trú sína á sjálfsvitund og lífsspeki svartra í Afríku. Það mætti kannski segja að í gegnum trúna séu rastarnir að leita að uppruna sínum á andlegan hátt þar sem engar heimildir eru til um upprunann nema heil heimsálfa: Afríka. Hitt er svo annað mál að margt sem lýtur að rastatrúnni hefur náð rótum í tískuheiminum, t.d. hár- greiðsla, en rastar hvorki greiða né þvo hár- ið með sápu og kallast það „dreadlocks". Konur spjara sig betur í þjóðfélaginu Á ráðstefnu AFS fyrr um daginn var kynnt nýleg könnun félagsmálaráðuneytisins á fjölskyldulífi íbúa í Karabíska hafinu. Ein af niðurstöðum þessarar rannsóknar var að konur í Karabíska hafinu óska þess heldur að eignast stúlkur en drengi. Þessi niður- staða finnst mér á skjön við það sem tíðkast í öðrum menningarheimum þar sem stúlku- börn eru enn þann dag í dag borin út. Ástæðuna telja þær Joan og Vivette helst vera þá að vegna strangs uppeldis standi stúlkur yfirleitt framar drengjum. „Ungir menn, og þá erum við að tala um lægri stétt þjóðfélagsins, ná í flestum tilfell- um ekki eins Iangt og konurnar. Frá blautu barnsbeini búa stelpur við mikinn aga og aðlagast því betur seinna meir. Vissulega er þetta kúgun því að á meðan strákarnir dangla um og gera það sem þeim sýnist, bera ungar stúlkur ábyrgð og hafa skyldum að gegna innan heimilisins. En fyrir vikið aðlagast þær lífinu betur seinna meir og bera höfuð og herðar yfir strákana í skólum landsins. Karlmenn, sérstaklega úr röðum lágstétt- arinnar, eiga erfitt með að skilgreina sig í þjóðfélaginu. Uppeldi þeirra byggist á því að þeir valsa um í stefnuleysi án nokkurra kvaða en síðar ætlast þjóðfélagið til þess af þeim að þeir gerist fyrirvinnur og húsbænd- ur heimila sinna. Hlutverkaskipan hefur breyst mikið síðustu áratugi. Stór hluti kvenna vinnur nú utan heimilisins því börn- in eru mörg og tekjur einnar fyrirvinnu duga lítt, þ.e.a.s. ef að karlmaðurinn hefur þá atvinnu yfirhöfuð. Og í þessari kreppu sinni sækja margir karlmenn sjálfstraust sitt í kynveruhlutverkið og reyna að halda uppi heiðri sínum með „maschóisma”. Daglega koma til mín í kirkjuna ungar konur, jafnvel vanfærar, sem hafa mátt þola barsmíðar eig- inmannsins sem oftast er atvinnulaus,“ seg- ir Vivette. „Við hlúum að þeim og það sem mestu máli skiptir fyrir konur er að þær hljóti fræðslu. Þá á ég bæði við að þær séu upplýstar um réttindi sín og að þær fái vit- neskju um möguleika sína í þjóðfélaginu." Á ferð minni um eyna síðar er mér oft hugsað til samtals okkar um „maschóis- 24 v ra

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.