Vera - 01.08.1997, Síða 25
Fegurðardrottningin Joan ásamt börnum
sínum og vinkonunni Vivette sem var
meðal fjögurra kvenna sem fyrstar
hlutu prestsvígslu á Jamaica í
desember 1996. T.h. er mynd frá þeirri
athöfn en í miðjunni er þjóðhetjan Bob
Marley. „Hjarta hans var oft aö springa
yfir óréttlæti heimsins, “ segir vinkona
hans, Joan.
manns“ og ekki er laust við að mér finnist
ungu mennirnir sem flauta eða hrópa á eftir
mér fremur gera það af skyldurækni en á-
huga. Þeir hrökkva í kút ef ég svo mikið sem
lít til þeirra. En töffaraháttur Evrópukon-
unnar gegn köllum karlmennskunnar á göt-
um úti hefur lítið að gera með raunveruleik-
ann sem blasir við inni á heimilum landsins.
Aðstoða konur við að kaupa
tvinna eða greiða þeim leið
til stjórnmálaþátttóku?
Á þriðja tug stofnana og samtaka á Jamaica
vinna með beinum eða óbeinum hætti að
málefnum kvenna og eru þau flest aðilar að
AWOJA (Association of Women's Organiza-
tions in Jamaica), landssamtökum kvenna
sem voru stofnuð eftir kvennaráðstefnuna í
Nairobi í Kenya árið 1985. Markmið
AWOJA er að sameina krafta sem flestra
kvennasamtaka í landinu og að hafa yfirsýn
yfir það sem er að gerast í málefnum kvenna
í landinu, einnig að auka þrýsting á stjórn-
völd og greiða konum leið að bættum lífs-
kjörum í framtíðinni.
„Megináhersla flestra kvennasamtaka
okkar er á menntun og þjálfun konum til
handa,“ segir Joan. „Boðið er upp á nám-
skeið og verkþjálfun í hinum ýmsu greinum
en almenn fræðsla gegnir veigamiklu hlut-
verki. Sumar kvennanna, sem sækja nám-
skeiðin hjá einhverjum samtakanna, vita
kannski ekki að til eru getnaðarvarnir. Aðr-
ar hafa ekki efni á saumavélum, efnum eða
tvinna þannig að mörg kvennasamtakanna
beita sér fyrir að hjálpa konum að koma
undir sig fótunum, með því að lána þeim
tæki og þjálfa þær þannig að þær geti unnið
sjálfstætt. Fæst kvennasamtakanna hafa
launaða starfsmenn og tækjabúnaður, s.s.
tölvur og slíkt, heyrir til undantekninga.
Flest samtökin byggjast svo til eingöngu á
samstöðu kvenna af öllum stigum þjóðfél-
agsins og sjálfboðaliðastarfi þeirra. Ein sam-
tök vinna t.d. að því að hafa eftirlit með of-
beldi í sjónvarpi og önnur berjast fyrir því
að auka stjórnmálaþátttöku kvenna í land-
inu. Mörg af þessum þrjátíu kvennasamtök-
um eru í tengslum við kirkjuna en á heildina
litið er þetta afar fjölbreytilegt starf sem
unnið er að í þágu kvenna á Jamaica, þrátt
fyrir að enn séu konur ekki búnar að stofna
pólitískt kvennaframboð eins og á íslandi,“
segir Joan og brosir. Og Vivette bætir við að
efnahags- og félagslegt ástand Jamaica í
framtíðinni muni án efa velta á virkri þátt-
töku kvenna í öllum geiruni þjóðfélagsins.
„Það er staðreynd að stór hluti þjóðfélagsins
er á mörkum hungursneyðar og því er mik-
ilvægt að kvennasamtökin í landinu beiti sér
fyrir stefnumörkun og skipulagssnilli sem
leiðir að bættum hag fólksins."
Fáir dreypa á smjörinu
Á ferð minni um Jamaica verð ég vör við
þær miklu andhverfur sem ríkja í þjóðfélag-
inu. Einn daginn sit ég í fínu galaboði há-
stéttarinnar og bý á fínasta hótelinu í
Kingston og hinn næsta ferðast ég ein míns
liðs og bý á ódýrum hótelum. Á göngu
minni rekst ég m.a. á gamla konu sem býð-
ur mér stolt sæti á heimili sínu, trébekknum
sem hún situr á. „Þetta er minn bekkur og
þú mátt fá þér sæti ef þú tekur mynd af mér
og sendir mér hana,“ segir sú gamla. Hún er
ekki ánægð fyrr en ég er búin að mynda
hana í öllum helstu pósum og þegar ég spyr
hvert ég eigi að senda myndirnar af henni
svarar hún skellihlæjandi: „Nú hingað á
bekkinn!“
Á norðurhluta eyjarinnar, ferðamanna-
paradísinni Montego Bay, fljúga flugvélar
sneisafullar af ferðamönnum inn á nokkurra
mínútna fresti en ég undra mig á því hvar
allir ferðamennirnir séu. Hótelið sem ég bý á
og man sinn fífill fegri er svo til tómt og fáir
ferðamenn á götum úti. En inn streyma flug-
vélarnar. Innfæddir fræða mig á því að líkt
og á færibandi sé ferðamönnum staflað inn
á stóru samsteypuhótelin sem búa yfir öllu
því sem hugurinn girnist þar á meðal golf-
völlurn og einkaströndum þar sem íbúum
Iandsins er meinaður aðgangur. Uti við hót-
elhliðin og á götum úti sitja konur með
ávexti eða handiðn til sölu í þeirri von að
geta brauðfætt fjölskylduna. Einu samskipti
ferðamanna við landsmenn er þegar prúttað
er um verð vörunnar.
Fegurð landsins, himneskt eyjaloftslagið,
hvítur skeljasandurinn og tær sjórinn er
helsta auðlind Jamaica En meirihluti íbúa
Jamaica mun sennilega þurfa að bíða hinnar
einu sönnu vistar að ofan til að upplifa Para-
dís. Aðeins örfáir dreypa á smjörinu.
V TB25