Vera - 01.08.1997, Page 27

Vera - 01.08.1997, Page 27
„Á vissan hátt er Rauði krossinn íhaldssöm hreyf- ing, ekki síst í N- Evrópu þótt þar hafi átt sér stað breytingar á síð- ustu árum. Konur eru sjaldnast þar í æðstu stjórnunar- stöðum.“ INUM Anna Þrúöur Þorkelsdóttir, formaöur Rauöa kross íslands, og Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri, eru báöar Austfiröingar. Þær njóta þess aö leggja hinni alþjóölegu mannúöarhreyfingu liö. en Anna Þrúður gifti sig ung og flutti til Noregs með eiginmanninum. „Þegar ég kom heim sá ég auglýst námskeið hjá kvennadeild RKI um hvernig gerast ætti sjálfboðaliði," segir hún. „Ég átti orðið þrjú börn og mig langaði til að gera eitthvað annað en að vera eingöngu heima og þá þótti það lúxus að hugsa sér að vinna úti. Skólaganga mín hefur verið afskaplega óskipulögð. Ég er í raun námskeiðasjúk og það er mín leið til að rækta sjálfa mig. Ég hef t.d. sótt námskeið í myndlist, leirmótun, þýsku og kláraði m.a. Leiðsöguskólann. Ég fór í öldungadeild í Breiðholti en tók aldrei allar greinarnar heldur fleytti bara rjómann ofan af því námsefni sem mér fannst skemmtilegast og myndi nýtast mér best. Ég fór á öll námskeið sem ég gat fundið, þ.m.t. hjá RKI sem sjálfboðaliði í nýstofnuðu félagsstarfi fyrir aldr- aða. Þannig hófust kynni mín af öldrunarstarfinu. Þrátt fyrir að hafa ekki lokið stúdentsprófi fékk ég inngöngu í félagsvísindadeild Háskólans en hélt jafnframt áfrarn 60% starfi hjá Reykjavíkurborg. Ég tók fyrst þjóðfræðina, síðan mannfræðina og lauk BA prófi í febrúar 1996 eftir fjögurra ára nám, en þar með er ekki sagt að ég sé hætt í námi.“ Þú sagðir að ekkert í lífi þínu hefði verið skipu- lagt - en nú þarf heilmikið skipulag til þess að láta vinnu, nám og heimili ganga upp. Ert þú sjálf skipulögð? „Ég veit ekki hvað ég á að segja,“ svarar hún og bætir við: „Ég held að ég geri bara hlutina, sleppi einhverju öðru í staðinn, t.d. því að horfa á sjón- varp. Mér bauðst síðan hlutastarf hjá Félagsmála- stofnun Reykjavíkurborgar og hef haft það síðan sem forstöðukona í félagsmiðstöðvum fyrir aldraða. Síðustu tíu ár hef ég svo gengt stöðu yfirmanns fé- lagsstarfs aldraðra. Með þessu var ég alltaf í ein- hverju Rauða krossstarfi, eins og heimsóknarþjón- ustu til aldraðra og sjúka. Þegar ég fór svo að starfa í félagsstarfinu sem launaður starfsmaður kom sú uppástunga fram á aðalfundi norður á Akureyri að Þótt mér hafi ekki vaxið það í augum að eiga ung barn og stunda jafnframt nám fjarri heima- slóðum, þá reyndist það mjög erfitt til- finningalega að vera svona oft fjarri dóttur minni. „Ég held ég hafi alltaf verið ólæknandi hug- sjónamanneskja og ef ég væri ung í dag vildi ég vinna sem sendi- fulltrúi, „vera á akrinum" og reyna að bæta þann ömurleika sem allsstaðar blasir við.“ ég færi inn í stjórn Rauða krossins. Það var á ári aldraðra 1981. Pegar þú fórst á þitt fyrsta námskeið hjá Rauða krossinum, sástu þá fyrir þér að þú œttir eftir að verða fomtaður hreyfingarinnar? „Nei, það var nú víst alveg ábyggilegt,“ svarar hún. „Þrátt fyrir að ég væri búin að vera varafor- maður síðan 1987 sá ég mig ekki fyrir mér sem for- mann RKÍ fyrr en á allra síðustu mínútunum fyrir aðalfundinn í fyrra.“ Nú er starfsemi RKI mjög fjölbreytt og spannar ólík svið. Eru einhver verkefni hreyfittgarinnar ykkur hugleiknari en önnur? „Ég hef unnið að ýmsum verkefnum,“ segir Anna Þrúður „en mest spennandi var að koma á fót Rauða- krosshúsinu fyrir unglinga. Þarna urðu þáttaskil í starfseminni, að taka að okkur og sjá urn rekstur ákveðins verkefnis. Á ári æskunnar var ákveðið að gera eitthvað fyrir börn og unglinga. Ég var fulltrúi stjórnar í þessu verkefni en átta deildir stóðu að þessu. Okkur langaði til að gera áþreifanlega könnun urn það hvort grundvöllur væri fyrir að stofna neyð- arathvarf og höfðurn fyrst og fremst í huga vímuefna- börn og unglinga. Það reyndist vera þörf fyrir þetta verkefni en vímuefnin voru ekki aðalvandamálið þá, heldur svo margt annað líka. Þetta var þarft for- varnaverkefni og mér þykir mjög vænt um það. Það eru fleiri verkefni sem mér þykir vænt um, en fyrsta verkefni mitt í stjórn Rauða krossins var að koma á fót Múlabæ, dagvist fyrir aldraða. Nú er í bígerð að setja á fót menntasmiðju sem á að styðja fólk sem hefur ekki ráðið við núverandi náms- og lífskerfi til að byggja sig upp. Von mín er að þetta gangi eftir og að menntasmiðjan komist í gagnið á næsta ári. Ég er þakklát og mér finnst gaman að fá að vinna verkefni sem skilar árangri. Ég er svona ekta grasrótarkerling en líklega væri ég ekki í þessari stöðu í dag ef ég hefði ekki fengið mikinn stuðning frá fólki í deildum Rauða krossins um land allt.“ v ia 27

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.