Vera - 01.08.1997, Side 29

Vera - 01.08.1997, Side 29
i 5 t a I GrundvallarmarkmiðRSLlðcl kTOSSÍnS konu,“ - nú er það Anna Þrúður sem hefur orðið - „en ég er mjög ákveðin mannrétt- indakona og mér finnst kvenréttindi vera mannréttindi. Eg vil ekki aðskilja þetta. Mér finnst verkefni RKÍ vera fjölbreytt og að- kallandi. Það á ekki að kyngreina né aldurs- greina fólk í verkefnin, heldur eiga verkefn- in að laða til sín einstaklinga sem finna sinn vettvang í ákveðnu hlutverki." „Ég held líka,“ segir Sigrún, „að það sé heppilegra að jafnvægi ríki í kynjaskiptingu og í aldri, þannig að ákveðin breidd mynd- ist innan hreyfingarinnar í þeim verkefnum sem við erum að vinna að. Þetta á bæði við um sjálfboðastarf og í starfsmannahópnum. Enda höfum við nýlega samþykkt starfsregl- ur fyrir deildir þar sem fram kemur að þær skuli leitast við að halda ákveðnu jafnvægi á milli kynjanna." Hafið þið tekið beinan þátt í kvennabar- áttuf „Ég hef kannski alltaf haft það í mér,“ segir Anna Þrúður „ef hallað er á einhvern sem mér finnst minni máttar, þá vil ég gjarn- an standa upp. Ég hef ekki tekið þátt í kvennabaráttu sem slíkri og ég verð að segja að þegar rauðsokkurnar voru upp á sitt besta var ég ekki alveg sátt við hversu mik- ið gekk á. En auðvitað þurfti töluvert til að hreyfa við fólki. Ég held að við séum sæmi- lega settar hér á íslandi, miðað við hve margar konur eru kúgaðar víða um heim. Það er sorglegt að kvennakúgun skuli við- gangast víða um heim enn í dag.“ „Ég hef ekki tekið þátt í neinni skipulagði kvennabaráttu en tel mig samt kvenrétt- indakonu, hef mínar skoðanir og leiðir,“ segir Sigrún. „Ég hef aldrei farið inn í póli- tísk samtök og er ekki mjög pólitísk, alla- vega ekki flokkspólitísk. Rauði krossinn er hinsvegar mannúðarsamtök sem eru mjög heillandi þegar maður fer að starfa með þeim. Þar er í raun og veru verið að berjast fyrir grundvallar mannréttindum, að fólk geti lifað með lágmarks reisn og við mann- sæmandi aðstæður." „Þetta finnst mér vera pólítík," segir Anna Þrúður, „þó að þetta sé ekki flokkspólitík, því þetta er svið sem spannar allt það manneskjulega og er þess vegna svona heillandi." „Stefnan er sú að gera öllum jafn hátt undir höfði,“ segir Sigrún. „Mér finnst ég hafa verið alveg einstaklega lánsöm að fá að vinna fyrir svona hreyfingu og það er mjög gefandi." „Ég tek undir það með Sigrúnu,“ skýtur Anna Þrúður inn í. „Ég held ég hafi alltaf verið ólæknandi hugsjónamanneskja og ef ég væri ung í dag vildi ég vinna sem sendi- fulltrúi, vera á akrinum" og reyna að bæta þann ömurleika sem allsstaðar blasir við. Ég hef fengið mikið út úr öldrunarstarfinu, hef alltaf gefið mér tíma til að tala við eldra fólk og fundist hver og einn koma mér við.“ Pú ntyndir kannski ekki breyta miklu ef þú stceðir aftur á byrjunarreit og ættir að velja þér framtíðarstarf? „Ég færi örugglega í mannúðar - og hug- MANNÚÐ Alþjóðahreyfing Rauða krossins og Rauða hálfmánans, sem spratt upp af löngun til að veita þeim sem særst höfðu á orrustuvelli hjálp án mann- greinarálits, reynir með alþjóðlegu starfi og starfi landsfélaga að koma í veg fyrir og létta þjáningar fólks hvar sem það er statt. Tilgangur hreyfingar- innar er að vernda líf og heilsu og tryggja virðingu fyrir mannlegu lífi. Hún vinnur að gagnkvæmum skilningi, vin- áttu, samstarfi og varanlegum friði meðal allra þjóða. ÓHLUTDRÆGNI Hreyfingin gerir engan mun á milli manna eftir þjóðerni þeirra, kynþætti, trúarbrögðum, kyni, stétt eða stjórn- málaskoðunum. Hún reynir að draga úr þjáningum einstaklinga og tekur þá eingöngu tillit til þarfa hvers og eins en veitir forgang þeim sem verst eru staddir. HLUTLEYSI Svo að hreyfingin megi áfram njóta al- menns trausts skal hún gæta hlutleys- is í ófriði og aldrei taka þátt í sjónastarf. Ég held að þetta sé skrifað í stjörnurnar og það eru líka forréttindi að fá að koma að þessu starfi.“ Er hugsunin um að hjálpa meira ríkjandi hjá konum heldur en körlum? „Ég er ekki viss um það,“ segir Anna Þrúður. „Ég held að konurnar séu þær sem framkvæmi, en hugsjónin lúri jafnt í körlum og kon- um.“ „Það hugsa ég líka,“ segir Sigrún. „Konurnar vinna oftast meira að þessum mál- efnum, en þetta virðist vera hreyfing sem höfðar jafnt til kvenna og karla. Það sér maður hvar sem litið er, meðal sjálfboðaliða, fastráð- ins starfsfólks og sendifull- trúa. Það eru auðvitað mis- munandi ástæður fyrir því að fólk sækist eftir að vinna fyrir Rauða krossinn. Það er félagsskapurinn, þörfin fyrir að láta gott af sér leiða og möguleikinn til jákvæðra áhrifa í alþjóðlegri mannúð- arhreyfingu.“ Sólin er farin að síga í vestur eftir einn deilum vegna stjórnmála, kynþátta, trúarbragða eða hugmyndafræði. SJÁLFSTÆÐI Hreyfingin er sjálfstæð. Þótt landsfélög veiti aðstoð í mannúðarstarfi stjórnvalda og lúti lögum lands síns, verða þau ætíð að varðveita sjálfstæði sitt svo þau geti starfað í samræmi við grundvallarmark- mið hreyfingarinnar. SJÁLFBOÐIN ÞJÓNUSTA Hreyfingin er borin uppi af sjálfboðnu hjálparstarfi og lætur aldrei stjórnast af hagnaðarvon. EINING í hverju landi má aðeins vera eitt landsfélag Rauða krossins eöa Rauða hálfmánans. Það skal vera öllum opiö og vinna mannúðarstarf um landið allt. ALHEIMSHREYFING Hreyfing Rauða krossins og Rauða hálfmánans nær um heim allan og öll landsfélög hafa jafnan rétt og ábyrgð og sömu skyldur til gagnkvæmrar hjálpar. besta blíðviðrisdag sumarsins. Samviskan leyfir mér ekki að halda þeim stöllum leng- ur inni, enda langar okkur allar út í góð- viðrið og því ekki að leyfa okkur það! Svceðanndd! ! ! Bætt heilsa, betri líðan. Afsláttur fyrir eldri borgara. Gott verð Gunnvör Björnsdóttir Sími 551 3958 V 13 29

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.