Vera - 01.08.1997, Page 41
hafa fengið að Iifa um tíma í bland við guðina frá Ólympus. Við
sjáum þennan arf seinna í verkum Platós um kenningar Sókrates-
ar. Þar kemur fram, þótt dulið sé, að einn helsti kennari Sókrates-
ar var Díótíma, kona sem kenndi honum um viskuna sem byggir
á ást. Ástin er bæði vegvísirinn og vegurinn í átt til hinnar æðstu
visku.
Virðing fyrir konunni sem
skapanda og takanda lífs
Menningararfurinn frá Anatólíu og Krít barst alla leið til íslands
stranda í upphafi byggðar. Líklega hafa völvurnar og konur eins
og Auður djúpúðga og Þórunn hyrna (sbr. hin hyrnda gyðja),
Melkorka o.fl. búið yfir þekkingu á þessum fræðum, sem þær
hafa miðlað áfram. Völuspá er e.t.v. skýrasta dæmið sem við enn
eigum um þennan arf, en sögurnar og kvæðin eru í raun öll full af
upplýsingum um þennan tíma, þessa menningu, þó oft séu hulur
fyrir og krossar undir og ofan á. Það voru ekki bara konurnar sem
fluttu arfinn áfram, karlar áttu þar sinn þátt líka, á sinn hátt. í
Eddu skrifar Snorri um Tróju, sem fegursta og besta stað í heimi
og upphafleg heimkynni þess fólks sem síðar tók að sér hlutverk
goða meðal íbúa norðurheims. Trója Snorra er þó ekki bara
Trója, hún felur í sér menningarsamfélögin sem ég nefni hér að
framan. Snorri segir okkur frá Iðavöllum þar sem stóðu hallir ása
og ásynja, hver annarri fegurri. Það vill svo til að bæði í Anatólíu
og á Krít eru fjöll sem bera nafnið Iða og við rætur þessara fjalla
eru þá vissulega Iðavellir. Drottning fjallanna á báðum stöðum,
með mörg þúsund ára millibili, er gyðjan mikla, sem ekur vagni
með tveimur ljónum spenntum fyrir. Hún er kölluð Cybele í heim-
ildum frá Krít og síðar frá Róm. Landshluti sá í Anatólíu, þar sem
veldi hennar var sem mest, er kallað Frygia. Gaman er að bera
þessar sagnir saman við heimildir okkar frá Snorra um eiginkonu
Þórs sem hét Sibyl (það er auk þess nafn einnar frægustu völvu
allra tíma og er síðar notað sem samheiti yfir völvur) „en vér köll-
um Sif“, og eiginkonu Óðins sem hét Frygia, „en vér köllum
Frigg“, og að síðustu en ekki síst við Freyju, sem „er hún fer, þá
ekur hún köttum tveim og situr í reið“ (Snorra-Edda). Ekki er
nokkur vafi á að okkar eigin goðsagnir, hversu mengaðar sem þær
eru af meðferð karlveldisins, heiðins og kristins, þúa yfir enda-
lausum brunnum visku um forna menningu og trú, þar sem sam-
skipti og hlutverk karla og kvenna voru í meginatriðum gjörólík
því sem við þekkjum frá svokallaðri söguöld. Af þeirri menningu
mættum við mikið læra.
Þótt hvergi hafi fundist neitt sem er fullkomlega sambærilegt
við fegurð og ríkidæmi Catal Huyuk forðum og Krítar síðar, þá er
margt í fornleifafundum frá Evrópu fornaldar sem minnir á þessi
samfélög og sýnir að öll Evrópa hefur byggt á svipuðum grunni
friðar og gleði og virðingar fyrir konunni sem skapanda og tak-
anda lífs. Minnið um Urði, Verðandi og Skuld, konurnar, nornirn-
ar sem skapa mönnum og goðum örlög og vökva sérhvern dag
askinn, veraldartréð, táknið fyrir lífsorku heimsins, er minning
um hina miklu gyðju fornaldar. Ef til vill lifir hún líka í álfkon-
unni og seinni tíma myndin af henni sem dauðagyðju býr jafnvel
í Grýlu. Sérhver kona finnur hana í sjálfri sér og hún býr í hverj-
um karli, sem finnur hana í konunni sem hann elskar og/eða ótt-
ast.
í Iok júní kom ég heim í eins konar frí. Hér mættu mér grænir
ilmandi dalir, bjartar nætur með björtum draumum, gullin kvöld,
vinátta og fjölskylda,- ræturnar mínar -, og engu síðra fuglalíf og
mý en þar vestra. Það mættu mér líka fregnir af Víkingahátið í
Hafnarfirði. Ekki vil ég segja neitt neikvætt um þá hátíð, því ég
var þar ekki og veit ekki nóg um hvernig hún fór fram. Hins veg-
ar sá ég fréttaþætti þaðan og varð ekki upp með mér af arfinum.
Pínlega hallærislegir, þunglamalegir „víkingar" lömdu þar á hver
öðrum, í einhvers konar lélegri stælingu á berserksgangi, og mik-
ið var um söluvarning. Mér finnst hálfsorglegt ef við ætlum okk-
ur ekki að kafa dýpra í arfleifð okkar en í ruddamennsku miðald-
Hof meö fæðandi
gyðju fyrir ofan
nautshöfuð sem
fannst í borginni
Catal Huyuk frá
7000 f.kr.
V'
vjfc
anna, sem enn ræður ríkjum og leiðir okkur beint til ragnaraka,
„hart er í heimi, hórdómur mikill, skeggöld, skálmöld, skildir eru
klofnir, vindöld, vargöld, áður veröld steypist...“(Völuspá). Þar
bak við býr táknmál sem gæti vísað okkur veginn inn í nýtt árþús-
und, þar sem völvan sér „upp koma öðru sinni, jörð úr ægi, iðja-
græna“.
Megi Hún með sín mörgu nöfn og mögnuðu andlit vera með
ykkur á þessu sumri og hausti.
Systurkveðja, Valgerður H. Bjarnadóttir
Iðntæknistof nun 11
- Skemmtileg fræðsla í fullri alvöru -
Fræðslusvið Iðntæknistofnunar býr yfir langri rcynslu af
þróun og rekstri námskeiða. Við þróum námskeið að
eigin frumkvæði eða í samstarfi við fyrirtæki, félaga-
samtök og stofnanir, allt frá grunnhugmynd. Við sjáum
um gerð náms- og kennslugagna, einnig skipulagningu
og rekstur námskeiða ef þess er óskað.
Við höfum reynslu af
• ráðgjöf í starfsmenntunarmálum fyrirtækja
og samtaka
• að gera flókið og sérhæft efni aðgengilegt
• að velja kennsluaðferðir og kennslutæki
• að vinna náms- og kennslugögn
• að skipuleggja og reka námskeið
Auk þess að þróa og reka námskeið fyrir aðra, bjóð-
um við upp á fjölbreytt úrval eigin námskeiða.
Kynntu pér pjónustu okkar
og ndmskeiðsframboð
Sími: 570 7100 http://www.iti.is
41