Vera - 01.08.1997, Page 45

Vera - 01.08.1997, Page 45
ANTÓNÍA og Feministi fer á bíó Hollenski leikstjórinn Marleen Gorris var orðin 48 ára er hún hreppti Óskar- inn fyrir þriðju kvikmynd sína í fullri lengcI. Myndin ,,Antonia’s Line“ eins og hún heitir á íslenskum myndbanda- leigum, er einfaldlega framúrskarandi. Anna Ólafsdóttir Björnsson cettin hennar egar þær koma þrammandi eftir þorpsgötunni, móðirin og dóttirin, komnar til að vera við jarðarför ill- skeyttu ættmóðurinnar, er erfitt að sjá fyrir það sem í vændum er. Þær eru hvorttveggja í senn framandlegar og á ör- uggum heimaslóðum. Það næsta sem sést er að þær eru teknar við daglegum rekstri búsins sem sú gamla átti og þær eru ekkert á leiðinni til baka til þess lífs sem þær áður lifðu. Við fáum lítið að vita urn hvað þær hafa gert í borginni, því þaðan eru þær að koma, það er augljóst á klæðaburði og fasi þeirra, en kafla- skipti hafa orðið í lífi þeirra þegar þær taka við ættarsetrinu. Ættarsetrið er engin glæsihöll en með dugnaði móðurinnar, Antóníu sjálfrar, af- komenda hennar og þess fjölskrúðuga hóps sem hún safnar að sér af dyggu heimilisfólki, er það samt myndarleg eign sem getur framfleytt allmörgum sálum. Óskarsverðlaun 1995 - besta kvikmyndin á „erlendri“ tungu Gaman hefði verið að sjá þessa Óskarsverð- launakvikmynd frá 1995 á hvíta tjaldinu, þar sem hún hefði án efa notið sín betur en á skján- um. Það stendur hins vegar ekki til boða. Kvik- myndin „Antonia’s line“, eins og hún heitir á myndbandaleigunum, hefur verið fáanleg frá því í apríl á þessu ári en var ekki sýnd í kvik- myndahúsum ef mínar upplýsingar eru réttar. Myndin hreppti Óskarinn sem besta kvik- tnyndin á erlendri tungu fyrir liðlega tveimur arum en hefur ekki verið otað að áhorfendum þrátt fyrir það. Það er synd því þessa mynd ætti enginn að láta fara fram hjá sér. Hún virð- ist höfða til allra aldurshópa án þess að vera eitthvcrt skoðanalaust miðjumoð eða meðal- tal, enda þess ekki að vænta frá leikstjóranum, Marleen Gorris. Þetta er þriðja kvikmynd hennar í fullri lengd á fjórtán árum, sem sýnir ef til vill að jafnvel í Hollandi, þar sem mynd- arlega hefur verið stutt við bakið á listamönn- um, eiga jafn merkilegir leikstjórar og Marleen Gorris erfitt uppdráttar. Ég sá af tilviljun fyrstu kvikmynd hennar á kvikmyndahátíð á Sikiley fyrir fimmtán árum og hef síðan þá verið að bíða eftir að heyra meira frá leikstjóranum, því kvikmyndin var mögnuð þótt af nokkrum vanefnum væri gerð. Hún hlaut nokkra al- þjóðlega útbreiðslu undir enska nafninu „A Question of Silence“ en er því miður ekki fá- anleg á þeim myndbandaleigum sem skást hafa staðið sig hér á landi og áreiðanlega ekki á hinum. Næsta mynd Marleen Gorris, „Bro- ken Mirrors“ náði ekki sömu viðurkenningu. Þema fyrstu myndarinnar, um þögnina, var makleg málagjöld eða réttlát hefnd kvenna sem eru órétti beittar. Kvenkyns gagnrýnendur hófu hana til skýjanna meðan karlar létu það eftir sér að koma með athugasemdir á borð við þessa: „Maður óskar þess að myndin væri ekki svona einsýn feministamynd“. Bæði söguþráð- ur og -svið voru mjög nýstárleg. Þema fyrstu ntyndarinnar, réttlát hefnd, skýtur aftur upp kollinum í myndinni um Antóníu og ættina hennar, sterkan kvenlegg sem sýnir konur í margbreytileik sínum. Lífið er ekki alltaf rétt- látt og stundum sýður í rnanni reiðin en það sem Marleen Gorris tekst á svo yndislegan hátt að gera, er að fjalla með mjög svörtum húmor uni gleði og sorgir þannig að það er hægt að klappa, blístra og segja „Já!“ af mikilli innlif- un fyrir framan sjónvarpið heima hjá sér. Eftir á að hyggja er kannski bara betra að horfa á myndina heima, frekar en í því dauðyflislega andrúmslofti sem einkennir íslenskar kvik- myndasýningar. Persónusköpun í sérflokki Kvikmyndin um Antóníu fjallar um líf og dauða, hatur og ást og fólk. Persónusköpun stendur óraveg framar en tíðast er um það kvikmyndaefni sem helst er á boðstólum, jafn- vel vönduðustu myndir. Þótt persónur mynd- arinnar skipti tugum eru þær flestar dregnar svo skýrum dráttum að þær verða eftirminni- legar og gefa innsýn inn í fjölbreytt líf fólksins í sveitinni og litla þorpinu. Þetta eru engar staðaltýpur heldur fólk af holdi og blóði, lif- andi og ólgandi. Það er helst Antónía sjálf sem er svolítið óræð og ég lét það eftir mér að sjá í henni brot af svo mörgum konum sem ég þekki, sterkum, ákveðnum, alltaf stoð og stytta annarra en stundum á kostnað sjálfra sín. Samt er Antónía ekkert fórnarlamb, þvert á móti. Hún er gerandi og drifkraftur sögunn- ar frá því hún kemur til skjalanna, en þó ekki á þann hátt að allt hrynji í rúst þegar hennar nýtur ekki lengur við. Einn að höfuðkostum þessarar kvikmyndar (en þeir eru margir) er fólkið sem Marleen Gorris velur sér að við- fangi. Hetjurnar eru ögrandi og breyskar, fúl- mennin að gera nákvæmlega það sem fúl- menni allra tíma hafa verið að gera, níðast á fólki í vesaldómi sínum. Samskipti þeirra eru flókin og alls ekki fyrirsjáanleg, þótt undiralda myndarinnar búi niann oft undir hvað er í vændum. Námsgáfur, verksvit, frjósemi, yfir- náttúrulegir hæfileikar og listtjáning eru drjúg- ur þáttur í yrkisefni myndarinnar og þær spurningar eru ofarlega í huganum hvernig þessir margvíslegu eiginleikar verða sumum til hamingju og öðrurn erfitt veganesti. Kvenkynssagan er mannkyns- saga Þessi kvikmynd er bæði mikil mannkynssaga og mikil kvenkynssaga. Þýska tímaritið Emma flokkar myndina reyndar fyrst og fremst sem það síðarnefnda en mér finnst miklu raunsann- ari mannkynssögu að hafa í þessari kvikmynd um árin eftir síðari heimsstyrjöldina en flestar aðrar kvikmyndir frá fjölmennari þjóðurn og af „dæmigerðara" fólki. Það er galdur þessar- ar kvikmyndar. Kvikmyndin um Antóníu og ættina hennar er fyrsta kvikmyndin undir stjórn kvenleikstjóra sem hlýtur Óskarinn. Ég held því til haga vegna upplýsingagildisins, fremur en að mér finnist ánægjulegt að þurfa að festa það á blað. Það segir mér enginn að þetta sé fyrsta kvikmynd konu sem eigi viður- kenninguna skilið. En vissulega tókst valið vel, loksins þegar að því kom. 45

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.