Vera - 01.08.1997, Side 46

Vera - 01.08.1997, Side 46
Þau hafa stádfest samvist sína Lög um staðfesta samvist samkyn- hneigðra gengu ígildi 27. júní 1996. Staðfest samvist veitir sömu lagalegu réttindin og hjónaband að frátöldum réttindum til kirkjulegr- ar vígslu og cettleiðingar barna eða tceknifrjóvgunar. Lögin um staðfesta samvist voru mikil lagaleg réttarbót fyrir þá sem höfðu stofnað heimili og búið sam- an árum saman og þau voru einnig mikill siðferðilegur sigur fyr- ir samkynhneigða. Margir hafa nýtt sér réttindin og haldið veislu af því tilefni með fjölskyldu og vin- um. 1. desember 1996 höfðu 17 pör staðfest samvist sína en Hag- stofan gefur ekki upp tölur aftur fyrr en 1. desember n.k. Vera fékk „brúðkaupsmyndir" af nokkrum pörum og vill um leið óska öllum þeim sem tekið hafa ákvörðun um að staðfesta samvist sína til hamingju. 46 wfm Jóhann Örn Hreiðarsson, skrifstofu- maður hjá Flugfélagi íslands, og Sigurð- ur Einarsson, lagerstjóri hjá Máli og Menningu, staðfestu samvist sína 12. apríl 1997 eftir að hafa búið saman í sex ár. 150 gestir voru viðstaddir þegar fulltrúi sýslumanns gaf þá saman og á myndinni sést lítill vinur þeirra, Lúðvík, afhenda þeim hringana. Sýslumaður Þingeyinga gerði sér ferð upp á Hólsfjöll þanO 12. júlí 1996 til þess að staðfesta samvist Margrétar Páln Ólafsdóttur leikskólastjóra og Lilju S. Sigurðardóttur leið' beinanda á leikskóla. Þær stöllur hafa byggt sér sumarhús a æskuslóðum Margrétar og fögnuðu þar ásamt fjölskyld11 og vinum. Þær höfðu þá búið saman í sex ár. Anna Auðunsdóttir leiðbeinandi á leikskóla hjá Félagsstofnun stúdenta og Hanna Rún Þór, starfsmaður á Landspítalanum í Kópavogi, staðfestu samvist sína 31. ágúst 1996 að við- stöddum fjölda vina og ættingja. Þær höfðu þá búið saman í 12 ár. Bára Kristinsdóttir ljósmynd' ari og Arndís Björg Siguf' geirsdóttir rekstrarstjóri not' uðu gamlársdag, 31. desent' ber 1996, til að staðfesta samvist sína og héldu af þvl tilefni litla fjölskylduveislu- Þær höfðu þá búið saman * 17 ár. Til þess að fá mynd a> ljósmyndaranum sjálfu® fóru þær stöllur í skyndi' myndavél!

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.