Vera - 01.08.1997, Qupperneq 49
Messa Kvennakirkjunnar vakti feykilega mikla athygli, ekki
síst vegna þess aö henni var úthýst og fór fram í
kastalarústum á bak viö kirkjuna. Á myndinni sést séra
Auður Eir Vilhjálmsdóttir, einnig Svanfríöur Jónasdóttir
alþingiskona og Guörún Agnarsdóttir læknir en þær lásu
bænir í messunni. Hópur íslenskra kvenna, sem voru
þátttakendur á ráöstefnunni, leiddi söng í messunni.
Samtal kvenna
og karla
- jafnréttisráðstefna Norrænu ráðherranefndarinnar
í Valmiera í Lettlandi, 7. til 10. ágúst 1997
Um fimmtíu íslendingar sóttu
jafnréttisráðstefnu í Valmiera í
Lettlandi undir yfirskriftinni
Samtal kvenna og karla (Women and
Men in Dialogue).
Ráðstefnan tókst með miklum
ágætum og var öll framkvæmd
hennar Lettum til mikils sóma. Kynni
af þjóðinni vöktu áhuga fyrir því að
vita meira, en fslendingar og Lettar
eiga margt sameiginlegt, t.d. öðluðust
þjóðirnar báðar sjálfstæði 1918 þó að
Lettar hafi misst það aftur þegar
Rússar hernámu landið í byrjun
seinni heimstyrjaldar.
Bára ljósmyndari tók mikið af
myndum á ráðstefnunni og hér birtast
nokkrar þeirra:
\
otf cjullskatttflti'ph
með íslenskum núltúmsteinum,
pertuni ocj oemöntum
Fyririesarar um stjórnmál taka þátt í pallborösumræöum, t.v. Artis Pabriks frá Lettlandi,
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri, Martin Nilsson frá Svíþjóö sem stjórnaöi
umræöunum, Drude Dahlerup frá Danmörku og Vilija Aleknaite-Abramikiene frá Litháen.
Siguröur Svavars-
son var einn fárra
íslenskra karla sem
tók þátt í ráöstefn-
unni. Hann sést
hér á tali viö annan
karlmann, sem viö
vitum ekki hver er,
og á bak viö þá
sjást ráöstefnu-
gestir í fundarhléi.
Ótrúlega stór
hópur barna
sýndi þjóödansa,
bæöi í útigöröum
og viö setningu
og lokaathöfn
ráöstefnunnar.