Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.03.1922, Page 14
10
TlMARIT V. F. í. 1922.
auka fiskveiðarnar að mun. Staður þessi er Skál-
ar á Langanesi suðaustanverðu.
29. Skálar á Langanesi, bl. XXI.
Fiskipláss þetta er á sunnanverðu Langanesi, það
hefir vaxið upp nú á síðustu árum og eru þar að-
eins nokkur hús, sem þó aðallega eru notuð yfir
sumai’vei’tíðina. þar er enginn verslunarstaður, en
atvinnan er aðallega fólgin í fiskveiðum á nokkra
báta, svo og í kaupum fiskjar og lifrar af öllum
þeim fjölda fiskiskipa, einkum færeyskum, er veið-
ar stunda við Langanes um sumarmánuðina. Eink-
um eru það kaupmenn frá Seyðisfirði, er reka þessa
atvinnu. Lendingin er örðug, þar eð aðeins er örmjó
fjara neðan undir 10—12 m háum lóðrjettum hömr-
um. Aðeins á 2 stöðum eru aflíðandi brekkur, svo
að báta má setja þar upp, en á báðum stöðunum
er mjög lítið afdrep. Vestari lendingin er breiðari,
en þar er svo háttað, að þar er ekki hægt að gera
nokkurt skjól að gagni, nema það hafi mikinn kostn-
að í för með sjer. En út af eystri lendingunni er
tangi og nokkur sker, sem væri ágæt undirstaða
undir h'tinn steypugarð. Slíkur garður, sem að fram-
an endar í kringlóttum garðhaus, er sýndur á bl.
XXI. Rifið er upp úr um fjöru og gert er ráð fyrir,
að garðurinn sje steyptur beint á það, nema að ut-
anverðu: á undirlag úr steypupokum, en að suðaust-
an við garðinn sje stórgrýti honum til styrktar. Á
skerið er gert ráð fyrir að settur sje kringlóttur
kassi úr járnbentri steypu. Breidd garðsins að ofan
er 2,5 m, á honum 1,0 m hár öldubrjótur, og verður
hæð hans að ofan 3,5 m yfir fjöruborð, en 1,9 m
yfir flóðfar. Slíkur garður myndi bæta lendinguna
mjög, því þá hyrfi ólgan, sem kemur um sundið
milli skersins og tangans. Kostnaðurinn yrði um
27,000 kr.
Á Norðurlandi kom Kirk verkfræðingur á
þessa staði: Austan Eyjafjarðar: Raufarhöfn, Kópa-
sker og Tjörnes; í mynni Eyjafjarðar: Dalvík og Ól-
afsfjörð; í Skagafirði: Hofsós og Sauðárkrók; við
Húnaflóa: Kálfshamarsvík, Skagaströnd, Blönduós,
Kollafjörð og paralátursfjörð. Staðhættir eru svo
ólíkir á þessum stöðum, að um nokkurn samanburð
getur ekki verið að ræða.
30. Raufarhöfn, bl. XII.
þessi litla höfn er á Melrakkasljettu austanverðri;
höfnin er í sjálfu sjer ágæt, en þó mætti gera hana
enn þá betri, með tiltölulega litlum kostnaði. I suð-
austanátt leiðir nokkra kviku inn á höfnina, eink-
um um sundið á milli Ilólmans og Höfðans, og veld-
ur nokkrum óróa. En sje hlaðinn garður í sundið
og auk þess gerður um 75,0 m langur hafnararmur
í suðvestur frá Hólmanum, svo sem sýnt er á bl.
XII, myndi fást fullkomin kyrð á höfnina. Dýpi
er fremur lítið á höfninni, en botnrannsóknir, er
gerðar hafa verið, hafa leitt í ljós, að hægt er að
dýpka nokkuð, um —1 m á miklum hluta hafn-
arinnar, svo að á fjöru yrði á talsvert stóru svæði
meira en 3,0 m dýpi, alt að 5,0 m dýpi. Eftir að
þetta skjól hefir fengist, gætu einnig talsvert stór
skip komið þar. En þar eð nú er stórt svæði, með
4,0 m dýpi á höfninni, virðist það ekki svo nauð-
synlegt áð hún sje dýpkuð, fyr en skjólgarðarnir
eru gerðir.
Verslunarstaðurinn er lítill, íbúar eru innan við
100, en á seinni árum hafa fiskveiðar talsvert verið
stundaðar þaðan, einkum síldveiðar, og eiga þessar
veiðar sennilega fyrir sjer að aukast. Auk þess
myndi höfnin verða mikilvæg sem athvarfshöfn, því
að á öllu Norðausturlandi er engin verulega örugg
höfn, er leita megi til undan stormi. Kostnaðurinn
við þessi hafnarvirki, sem minst hefir verið á, má
ætla að verði:
Garður út í Ilólmann.............kr. 25,000,00
Hafnargarður frá Hólmanum í sv,
75,0 m.........................— 120,000.00
alls kr. 145,000,00
þar við bætist dýpkun á um 15 ha
svæði niður í 3—5 m dýpi . . — 600,000,00
31. Kópasker, bl. XIII.
Kópasker er á Melrakkasljettu vestanverðri, þar
eru aðeins örfá verslunarhús — kaupfjelag og útbú
frá verslun á Raufarhöfn, — hefir staður þessi því
hingað til ekki verið mikilvægur. Fiskveiðar í stór-
um stýl eru ekki reknar þaðan. En staðnum er vel
í sveit komið og landskostir góðir, svo að það er eng-
in tilviljun, að nú á síðari árum hefir gildi staðarins
vaxið nokkuð. Lendingin er í sjálfu sjer ekki slæm,
en það vantar góða bátabryggju; hún ætti auðvit-
að að liggja út frá Kópaskerinu í norðanverðri vík-
inni. Skerið nær upp yfir flóðhæð og ætti að gera
um 40 m langan garð frá lanði út í það; frá suður-
enda skersins má svo gera bryggjuna í suðaustur-
átt. Út á 1,0 m dýpi á fjöru, mætti fyrst gera
hana úr kössum úr járnbendri steinsteypu, en
bryggjuna mætti lengja eftir þörfum. En sökum
þess, að vel má fá þarna hafnarkví, með alt
að 4,0 m dýpi, með því að gera 570 m langan
hafnargarð, þarf garðurinn frá landi að vera þann-
ig, að hann geti verið hluti af þessum hafnar-
garði. Siíkur garður er sýndur á bl. XIII og má
ætla að hann kostaði um 500,000 kr. Jafnvel þó að
höfnin yrði ekki mjög stór, virðast hafnarmann-
virki þessi þó hafa mikinn rjett á sjer, bæði vegna
sveitaverslunar og fiskveiða. Út frá hafnargarðin-
um má svo vel gera þverbryggjur fyrir smærri
skip, eftir þörfum.