Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1982, Side 14

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1982, Side 14
94 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ Chloramphenicol vegna hættu á blóðsjúkdómum og svo kölluðu „Gray-syndrome”. Streptomycin vegna hættu á heyrnarskemmd- um eins og hjá fullorðnum. Sulfalyf keppa við bilirubin um albuminbindingu, þannig að gjöf þeirra á siðari hluta meðgöngu getur leitt til hyperbilirubin- emi með kernicterus sem afleiðingu. Trimetoprim, sem er í sam- settum lyfjum eins og Bactrim og Sulfotrim hefur reynst teratogen í dýratilraunum. Það ber því að forðast að ávísa þessum samsettu lyfjum á órfískar konur. Vitað er að trichomonas og sveppasýkingar í leggöngum eru mun tíðari meðal ófrískra kvenna. Lyf til staðbundinnar notkun- ar, Metronidaxol og Nystatin við þessum kvillum eru talin skað- laus. Varast ber hins vegar að gefa þau til inntöku uns frekari vitneskja liggur fyrir. Berkalyf önnur en Streptomycin eru talin skaðlaus en lyf geg maiariu svo sem Quenene og Chloroquene eru varhugaverð. Ógleði og væg verkjalyf Ógleði, verkir og óljós ónot eru algengar kvartanir, sérstaklega í byrjun meðgöngu. Oftast nægir að tala við konurnar, útskýra fyrir þeim eðli óþægindanna og gefa þeim ráðleggingar. Ef það dugar ekki til og þær taka að megrast eða fá merki um ketoacedosu, á að leggja þær á spítala og reyna að lækna þær án Iyfjagjafa, með hvíld og vökvagjöf í æð. Ef allt um þrýtur er gripið til lyfja, antihistaminica. Helst er gefið Coffenautin, sem inniheldur difenhydramin og caffein, eða Postafen sem inniheldur meklozin. Þessi lyf eru talin skaðlítil, en rannsóknum ber ekki saman um skaðsemi þeirra. Þau hafa reynst teratogen í sumum dýratilraunum og ber því að nota þau með varúð. Væg verkjalyf á borð við Aspirin eru ekki talin teratogen og guði sé lof, því að um 65—80% ófrískra kvenna nota þau. Hins vegar er rétt að undirstrika að mikil notkun lyfsins á meðgöngu leiðir til postmaturitas, og hærra perinatal mortalitets. Lyfið minnkar albuminbindigetu, getur leitt til galla á blóðflögum og minnkunar á storkuþætti 7. Þvi er börnum þessara mæðra hætt- ara við blæðingum. Að auki getur mikill styrkleiki lyfsins í serum,

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.