Ljósmæðrablaðið - 01.12.1982, Page 16
96
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
dæmis er fæðingarþyngd og Apgarstig eðlilegt hjá börnum, sem
hafa neytt lyfsins í móðurlegi. Fráhvarfseinkenni koma þó stund-
um fram hafi lyfið verið gefið í stórum skömmtum út alla með-
gönguna. Fráhvarfseinkennin eru einkum órói, mikill grátur,
vöðvaspenna eða einkenni andstæð verkun lyfsins.
Lithium og Bromid sem geðlyf eru varhugaverð hvort á sínu
sviði. Sé Lithiumgjöf á meðgöngu nauðsynleg, ber að fylgjast
rækilega með skjaldkirtilsstarfsemi móður og barnsins strax eftir
fæðingu, þar sem Lithium getur leitt til stækkunar á skjaldkirtli
og brenglaðrar skjaldkirtilsstarfsemi með vanstarfsemi á skjald-
kirtli sem afleiðingu. Lithium er og teratogen og leiðir til hjarta-
galla sé það gefið snemma á meðgöngu.
„M-A-0 inhibatorar” eru bannfærðir á meðgöngu.
Krampalyf
Ein af hverjum 200 konum er flogaveik og þær sem eru á lyfja-
meðferð eru á henni stöðugt. Helstu lyfin í þessum flokki eru
Fenytoin og skyld sambönd og Valproinsyra (Depakin, Orfiril).
Fenytoin er talið teratogen og veldur svokölluðu „Hydation
syndrome” (microcephaly, mental retardatio, dysmaturitas,
multible anomalies). Rannsóknir hafa leitt í ljós að 11—30%
barna þessara kvenna fá syndromið, burtséð frá tíðni krampa-
kasta á meðgöngu. Tíðni illkynja mesenchymal æxla er meiri hjá
þessum börnum og er það talið stafa af því hvernig Fenytoinið
brotnar niður hjá fóstrinu í móðurlegi.
Lyfið Trimetadion, sem notað er við petit mal köstum, er
hættulegt eins og Fenytoin.
Valproinsyra (Depakin, Orfiril), sem hefur verið notað við
flogaveiki í nokkur ár, er varhugavert, þar sem vitað er um fjölda
sjúklinga, sem látist hafa af lifrarskemmdum eftir töku lyfsins.
Það eru einkum börn sem hafa orðið fyrir barðinu á þessu lyfi.
Lyfið verður þvi að teljast varhugavert á meðgöngu.
En hvað á þá að gefa ófrískum flogaveikum konum? Greinum
ber ekki saman. Þó virðist ljóst að kjörlyfið sé Phenemal
(Phenobarbital). Það hefur verið notað í áratugi og í læknatíma-
ritum er tæpast að finna staf um teratogenverkun þess. Það er því
mælt með því, sé það unnt sjúkdómsins vegna, að flogaveikar
konur séu teknar af Fenytoini og eða Depakini og settar á