Ljósmæðrablaðið - 01.11.1992, Side 19
HILDUR KRISTJÁNSDÓTTIR, ljósmóðir:
Norburlandaþingíb í
Kaupmannahöfn 1992
13 Norðurlandaþing ljósmæðra var
haldið í Kaupmannahöfn 4.-6. sept-
ember 1992. Þema þingsins var Fagleg
þróun Ijósmæðra, engin framtíð án
hennar.
Þetta var alveg sérstaklega ánægju-
legt þing og mjög fjölmennt. Um 500
Ijósmæður frá öllum Norðurlöndunum
sóttu það. Frá Islandi komu 23 ljósmæð-
ur og má telja það mjög góða þátttöku.
Danska ljósmæðrafélagið átti 90 ára af-
mæli og í tilefni af því var opnuð sýning
á Rigshospitalet í Kaupmannahöfn á
ýmsum munum tengdum ljósmæðrum,
menntun þeirra og störfum, gömlum sem
nýjum. Einnig var gefin út saga ljós-
mæðra í Danmörku. Borgarstjórinn í
Kaupmannahöfn bauð til eftirmiðdags-
drykkju í Ráðhúsinu og afmælishóf var
haldið á Sheraton hótelinu í lok þingsins.
Hér á eftir verður birt fagleg dagskrá með
samantekt erinda sem flutt voru á þing-
inu. Þetta rit er hægt að fá Ijósritað á
skrifstofu félagsins. Hvet ég ljósmæður
sem ekki voru á þinginu til að nýta sér
Þetta tilboð.
Fagleg dagskrá.
Dagur 1.
Susanne Heltzen, Danmark, fulltrúi
Ljósmæðrablaðið____________________
neytendasamtakanna, Forældre og Föd-
sel: „Kendt jordemoder-behou og realit-
et“. (Þekktu ljósmóðurina — þarfir og
raunveruleikinn).
Susanne Houd, program director,
pre-registration Midwifery program,
Ontario, Canada. (Jette Malmborg ljós-
móðir og námsráðgjafi kynnti efnið þar
sem Susanne gat ekki komið sjálf).
„Födslerne i Danmark, lille land-store
forskelle, HVORFOR?“ (Fæðingar í
Danmörku, lítið land-mikill munur, af
hverju??).
Sonja Sjöli, ljósmóðir, formaður
Norska ljósmæðrafélagsins. „Jordmor
der, mor bor“. (Ljósmóðirin þar sem
móðirin býr).
Elisabeth Dejin-Karlsson, Svíþjóð,
ljósmóðir í rannsóknarnámi. „Kualitets-
sakring-utueckling au grkesprofession-
en“. (Gæðaeftirlit-þróun fagmennsku).
Hanne Kjærgaard Nielsen, Dan-
mörku, yfirljósmóðir og Eva Kongsgaard,
Danmörku, ljósmóðir. „Kualitetssikring
i jordemoderarbejdet“. (Gæðaeftirlit í
ljósmæðrastörfum).
Randi Iversen, Danmörku, kliniskur
ljósmæðrakennari, varaformaður Danska
ljósmæðrafélagsins. „Presseteknik i ud-
driuingsperioden-en randomiseret
____________________________________ 17