Ljósmæðrablaðið - 01.11.1992, Blaðsíða 24
Kvennadeild Landspítalans og Göngu-
deild Sykursjúkra, Landspítalanum. Einn
læknir Kvennadeildar, með sérhæfingu á
þessu sviði, annast meðferð þungaðra
sykursjúkra kvenna, en i fjarveru hans
samstarfslæknir á deildinni. Fæðingar-
fræðilegt eftirlit og ákvarðanataka er
verksvið fæðingarlæknisins, sem jafn-
framt getur gert tillögur um alla þætti í
stjórnun sjúkdómsins. Sérfræðingur í lyf-
lækningum sykursýki ákveður meðferð
sjúkdómsins með sjúklingi, fylgist grannt
með árangri og getur gert tillögur er
varða meðgöngueftirlitið. I sameiningu
hafa þessir læknar annast eftirlit með
svotil öllum þunguðum sykursjúkum kon-
um á landinu. I einu tilviki sá lyflæknir
utan Landspítalans um mestallt eftirlit
með blóðsykurstjórnun að ósk konunnar
og með samþykki lækna Göngudeildar
Sykursjúkra. I allnokkrum tilvikum
kvenna utan af landi höfum við notið að-
stoðar lækna og ljósmæðra í heimahér-
aði við eftirlit með sykurstjórnun og með-
göngu. Fæðingalæknar á Akureyri hafa
sjálfir viljað stjórna meðgöngueftirliti í
nokkrum tilvikum á undanförnum árum
og hafa ekki æskt samstarfs við lækna á
Landspítalanum, en lyflæknar á Akur-
eyri, sem vinna við eftirlit sykursjúkra
þar, hafa stundum sent konurnar til með-
ferðar eða eftirlits á Landspítalanum
engu að síður.
Á meðgöngudeild Kvennadeildar eru
tiltækar skriflegar almennar reglur um
rannsóknir, þar á meðal blóðsykurmæl-
ingar, sem gerðar eru í innlögn. Rann-
sóknirnar miða að því að meta blóðhag,
nýrna- og hjartastarfsemi og fá yfirlit um
augnhag, þegar nýlegar upplýsingar
skortir. Síðar í meðgöngunni er ástand
fósturs metið með ómskoðun, fóstur-
hjartsláttarsíritun og stundum mati á fóst-
22_________________________________________
urhreyfingum, legvatnsmagni og
fósturöndun (biophysical profile). Kon-
urnar sjálfar mæla blóðsykurinn fjórum
sinnum að degi til á deildinni og stundum
að nóttu til að meta, hvort stjórnun sé
fullnægjandi allan sólarhringinn. Þetta
kallast “blóðsykurferill”. Með þessu móti
er leitast við í stuttri innlögn að fá góða
hugmynd um sykurstjórnunina. Sjaldan
eru nú fengnar blóðsykurmælingar á
rannsóknadeild spítalans, þar sem góð
og handhæg tæki til daglegra blóðsykur-
mælinga eru á Kvennadeildinni. Konurn-
ar eiga einnig oft sín eigin sykurmælinga-
tæki. Nokkuð hefur skort á að konurnar
fái fæði af réttri samsetningu við innlögn
og því hefur verið treyst á kunnáttu
kvennanna sjálfra í æ ríkari mæli í þess-
um efnum. Jafnframt hafa innlagnir verið
styttar. Utan spítalans fæst að sumu leyti
betri hugmynd um sykurstjórnun við eðli-
legar heimaaðstæður og hreyfingu. Á
meðgöngudeildinni er þeim konum, sem
sykursýki finnst hjá í meðgöngunni,
gjarnan kennt betur að sprauta sig með
insúlíni og mæla blóðsykurinn.
Utan spítalans viðhafa konurnar færri
blóðsykurmælingar ef það þykir óhætt,
t.d. sjaldan að nóttu til. Hádegismæling-
um hefur líka stundum verið sleppt,
a.m.k. suma daga vikunnar (t.d. um helg-
ar). Oft vilja konurnar hinsvegar sjálfar
vita hver blóðsykurinn er, og sleppa ekki
mælingum að degi til.
Læknar Augndeildar Landakotsspít-
ala hafa annast eftirlit og meðferð með
augnhag, m.a. leysimeðferð æðabreyt-
inga í augnbotnum.
Læknir Göngudeildar Sykursjúkra og
fæðingalæknir hafa búið til áætlun um
meðferð í fæðingu. Eftir fæðingu hafa all-
ar konurnar verið á annarri af tveim
sængurkvennadeildum Kvennadeildar.
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ