Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 01.10.1995, Page 15

Ljósmæðrablaðið - 01.10.1995, Page 15
þeim snúa. Þessir tímar hafa að mestu gefist mjög vel þó mismunandi eftir hópum hve vel karlarnir opna sig og tjá . Af reynslu sinni hingað til, taldi Jón Bjarni nauðsynlegt að gefa verðandi feðrum tækifæri á að hittast í svona sérstökum karlahópum þar sem æskilegt er að leiðbeinandinn sé karlkyns. Að lokum kom Sólveig Þórðardóttir ljósmóðir og sagði frá tildrögum af bæklingi sem hún hefur samið sérstaklega fyrir feður. Sólveig lýsti ánægju sinni yfir því hve áhugi ljós- mæðra á þörfum verðandi feðra væri að aukast og að kannski hefði bæld- ingurinn verið að hluta til ástæðan. „oft veltur lítil þúfa þungu hlassi“ sagði Sólveig. Sólveig hafði tækifæri á að hafa séstakan tíma fyrir feður þegar hún vann á Fæðingarheimilinu, sem henni fannst gefast mjög vel. Hún upplifði ekkert vandamál að ná til feðranna þó að hún væri kona og að ýmiss mál hefðu verið rædd og þar sá hún nauðsyn þess að ræða sérstak- lega við feður. Ljóst er að allar þær ljósmæður sem voru viðstaddar þetta kvöld og eru vanar að halda foreldrafræðslu, munu í framtíðinni reyna að höfða betur til feðra í fræðslu sinni. VÆNTANLEGT FRÁ FRÆÐSLUNEFNDINNl Fræðslunefndin hefur ákveðið að hafa fræðslu- og endurmenntunardaga 20,21 og 22 mars 1996 og verður meðal efnis: FORELDRAFRÆÐSLA, KVENNAHEILBRIGÐI, FJÖLSKYLDUÁÆTLUN OG ÝMISLEGT FLEIRA GAGNLEGT OG FRÓÐLEGT Takið því frá þessa helgi Ijósmæður ! LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ 13

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.