Ljósmæðrablaðið - 01.10.1995, Blaðsíða 22
umönnun felur í sér fyrirbyggjandi
aðgerðir, greiningu á frávikum hjá
móður og barni, aðstoð við læknis-
meðferð, og bráðahjálp í fjarveru
læknis.
Ljósmóðir gegnir mikilvægu hlutverki
í heilbrigðisfræðslu og ráðgjöf, ekki
aðeins fyrir konur heldur einnig fyrir
fjölskylduna og þjóðfélagið í heild.
Hlutverk ljósmóður ætti að fela í sér
fjölskylduáætlun, undirbúning fyrir
foreldrahlutverkið, fræðslu fyrir
fæðinguna, umönnun barna og
einnig að hluta til fræðslu vegna
kvensjúkdóma. Ljósmóðir getur
starfað á sjúkrahúsum, á stofu, á
heilsugæslustöðvum, í heimahúsi eða
annars staðar í heilbrigðisþjónust-
unni.
(WHO, FIGO, ICM- 1992)
Saga ljósmæðramenntunar á
ÍSLANDI
Eins og áður sagði hefur skipuleg ljós-
mæðrakennsla verið hér á landi síðan
árið 1761. Fyrir þann tíma höfðu
prestar annast fræðslu fyrir ljósmæður
og tekið af þeim embættiseið. Löngu
síðar, eða árið 1912 var svo stofnaður
Yfirsetukvennaskólinn í Reykjavík.
Fram að þeim tíma frá 1895 var lækni
þeim sem kenndi yfirsetukvennafræði
við Læknaskólann í Reykjavík skylt
samkvæmt lögum að annast ljós-
mæðrafræðslu. Sú hefð hafði skapast
að landlæknar þeir sem voru
forstöðumenn Læknaskólans höfðu
alla jafna haft þessa kennslu með
höndum.
Þegar Háskóli Islands var stofnaður
1911 og landlæknisembættið var ekki
lengur í beinum tengslum við lækna-
kennsluna varð ljósmæðrakennslan
útundan og upp kom sú staða að
enginn átti, samkvæmt lögum að
kenna nemendum í ljósmóðurfræði.
Þá komu fram tillögur frá
Guðmundi Björnssyni landlækni til
Alþingis að stofnaður skyldi sérstakur
6 mánaða skóli fyrir ljósmæður.
Landlæknir skyldi vera aðalkennari
hans og skipaðar ljósmæður í
Reykjavík áttu að sjá um verklega
kennslu. I umræðum á þingi kom
fram að þingmönnum fannst kaup-
kröfur landlæknis heldur miklar og
bað því þingnefndin sem fjallaði um
málið, deildarforseta læknadeildar að
athuga hvort til greina kæmi að
kennsla ljósmæðra færi fram á vegum
læknadeildar. Deildarforseti svaraði
og lýsti gífurlegu vinnuálagi á kenn-
urum deildarinnar og sagðist hann
sjálfur gegna sem samsvarar 5 störfum
prófessora erlendis. Hann taldi þó að
hægt væri að kenna nemendum í Ijós-
móðurfræði, hinu opinbera að kost-
naðarlausu, ef bætt yrði einu embætti
við deildin. Viðbrögð urðu eins og
segir í sögu Ljósmæðrafélags íslands:
„ Greip þá um sig nokkurt fár meðal
þingmanna við þessi tíðindi, og þótt-
20
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ