Ljósmæðrablaðið - 01.10.1995, Side 29
Námið miðar að því að útskrifaðar
ljósmæður geti starfað út um land og
að kunnátta þeirra henti íslenskum
aðstæðum. Ljósmæður eiga að geta
starfað á heilsugæslustöðvum, á
fæðingarheimilum, í teymisvinnu
innan og utan stofnana, í heimahúsi
og á sjúkrahúsum.
1 hinu nýja námi í Ijósmóðurfrœði
verður markmiðið að Ijósmœður:
- geti fjallað um og lýst hugmynda-
fræðilegum grunni ljósmóður-
fræðinnar, að þær stundi ljós-
móðurstarfið í Ijósi hagnýtrar og
fræðilegar þekkingar og taki þátt í
faglegri þróun
- búi yfir sértækri þekkingu og
klínískri færni til að geta starfað
sjálfstætt, séð um eftirlit og um-
önnun kvenna, barna og fjölskyl-
du þeirra í eðlilegri meðgöngu,
fæðingu og sængurlegu. Þær séu
færar um að greina hvort barn-
eignarferlið gangi eðlilega fyrir sig
og hafi samráð við lælcni greini
þær frávik frá því eðlilega
■ hafi sértæka þekkingu og klíníska
færni til að annast konur, börn
þeirra og fjölskyldu í áhættu-
meðgöngu, fæðingu og sængur-
legu á eigin ábyrgð, í samvinnu
við aðrar heilbrigðisstéttir
' hafi sértæka þekkingu á og gegni
hlutverki í ráðgjöf og fræðslu um
heilbrigði kvenna og fjölskyldu
þeirra, frá vöggu til grafar
Hvaða þættir hafa áhrif á
HLUTVERK LJÓSMÆÐRA ?
Þegar verið er að skipuleggja og þróa
nýja námsskrá í ljósmóðurfræði, sem
byggir á gömlum merg, er vert að
huga að því hvaða þörf sé fýrir ljós-
mæður og jafnframt íhuga hvaða
þættir hafi áhrif á hlutverk ljós-
mæðra. Samkvæmt skilgreiningu
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar á
hlutverki ljósmóður, hér á undan, ætti
að vera full þörf fyrir ljósmæður.
Ráðleggingar um þjónustu kringum
barneignir, sem komu frá Alþjóða-
heilbrigðimálastofnuninni árið 1985,
ættu einnig að hafa áhrif. Þar segir að
í öllum löndum ætti það að vera
hlutverk ljósmæðra að annast fæð-
ingarhjálp, umönnun og eftirlit
kvenna í eðlilegu barneignarferli þ.e.
meðgöngu, fæðingu og sængurlegu.
Það er ljóst að mörg atriði skipta máli
þegar hlutverk ljósmæðra og annarra
heilbrigðisstétta mótast. Fyrir utan
alþjóðasamþykktir má einnig þessu
sambandi nefnda hinn íslenska lög-
gjafa. Heilbrigðislög, ljósmæðralög,
lög annarra heilbrigðisstétta og
reglugerðir hafa áhrif. Hlutverk laga
um heilbrigðisstéttir hlýtur að vera að
afmarka störfin í þjóðfélaginu. Þau
eru annars vegar til að vernda þegna
þjóðfélagsins og hins vegar til að
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
27