Ljósmæðrablaðið - 15.05.1998, Qupperneq 30
Lausar stööur
Ljósmóðurstörf á Greenlancli
Heilbrigðisráðuneyti grænlensku heimastjórnarinnar
auglýsir eftir ljósniæðrum. Á Grænlandi eru 18 læknis-
héruð sem hvert um sig hefur á að skipa sjúkrahúsi með
fæðingadeild. Yfirleitt eru ljósmæður á flestum af stærri
svæðunum en margar stöður eru lausar á vesturströnd
Grænlands. Sem Ijósmóðir á Grænlandi þarft þú að geta
unnið sjálfstætt og hafa löngun til að upplifa eitthvað
með spennandi faglegum möguleikum. Laun eru í kring-
um 20.000 dkr. á mánuði og skattálagning er 40-44%.
Nánari upplýsingar veitir Tenna Birch í síma +299 2300
lokal 4902, eða hjá Direktoratet for Sundhed og For-
skning, Postbox 1160, 3900, Nuuk, Grönland.
Sjúkrahúsið Húsavík
Heilsugæslustöðin Húsavík
Ljósmóðir óskast.
Heilbrigðisstofnunin Húsavík óskar eftir að ráða ljós-
móður til starfa frá 1. september 1998. Stofnunin sam-
anstendur af deildarskiptu sjúkrahúsi með sjúkradeild,
öldrunardeild, fæðingardeild, skurðstofu og heilsugæslu-
stöð.
Starf ljósmóður við stofnunina felur í sér fæðingar-
hjálp, umönnun sængurkvenna og nýbura, mæðraeftirlit
og foreldrafræðslu.
Nánari upplýsingar veitir Dagbjört Þýri Þorvarðar-
dóttir hjúkrunarforstjóri í síma 464 0500 eða 464 0542.
Heilsugæslustöðin Borgarnesi
Ljósmóðir óskast í afleysingar frá 1. ágúst - 15. sept-
ember n.k.
Upplýsingar gefur Gerða Sigursteinsdóttir ljósmóðir í
síma 437 1400
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
Ljósmæður!
Oskum eftir Ijósmæðrum til starfa á Fæðingar- og
kvensjúkdómadeild FSA.
Deildin er 10 rúma kvensjúkdómadeild og 13 rúma
fæðingardeild. Fæðingar á ári eru u.þ.b. 400.
Deildin býður upp á samfellu í þjónustu og náin
tengsl við skjólstæðinga okkar.
Til þess að þjónustan verði eins og best verður á kos-
ið, þyrftum við fleiri ljósmæður til starfa.
Hafið samband og fáið nánari upplýsingar
Ingibjörg Jónsdóttir, yfírljósmóðir
sími 463 0135
Reyklaus vinnustaður
EIUBRIQÐISSTOFNUNIN IsAFJARÐARBÆ
Oskar að ráða LJÓSMÓÐUR
(hjúkrunarfræðing með ljósmæðramenntun)
í 100% stöðu við Fjórðungssjúkrahúsið og Heilsu-
gæslustöðina á Isafirði.
Um er að ræða dagvinnu í samstarfi við 2 aðrar ljós-
mæður sem skipta á milli sín dagvöktum, auk gæslu-
vakta utan dagvinnu og útkalla vegna fæðinga. Fæðing-
ardeildin er sér eining með vel útbúinni fæðingarstofu,
vöggustofu, vaktherbergi og 4 rúma legustofu. Fæðingar
hafa verið frá 79 - 105 undanfarin ár.
Helsti starfsvettvangur:
• Fæðingarhjálp, fræðsla og umönnun sængurkvenna
og nýbura á sjúkrahúsinu.
• Almenn mæðravernd og fræðsla við verðandi for-
eldra á heilsugæslustöð. Nánari upplýsingar gefur hjúkr-
unarforstjóri sjúkrahússins í síma 450 4500.
Umsóknarfrestur er opinn.
fFæðingardeild
Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja
í hjarta Reykjanesbæjar
Ljósmæður óskast til starfa á fæðingardeild.
Ljósmæður óskast til afleysinga í sumar, svo og til að
taka einstaka vaktir.
• Allar ljósmæður eru vaktljósmæður
• Fæðingardeildin er 8 rúma blönduð fæðingar- og
kvensjúkdómadeild
• Fæðingarfjöldi s.l. 5 ár hefur verið frá 228 - 302
• Leyfð stöðugildi ljósmæðra er 6.1.
NÝTT: Baðkerið er komið og vatnsfæðingar byrjaðar.
Kæru ljósmæður, allir staðir hafa eitthvað við sig sem
heillar og það hafa Suðurnesin svo sannarlega. Gjörið
svo vel að afla frekari upplýsinga um aðstæður, laun og
kjör hjá Aðalheiði Valgeirsdóttur hjúkrunarforstjóra í
síma 422 0500 eða komið í heimsókn.
30
LJÓSMÆÐRADLAPIÐ