Freyr

Årgang

Freyr - 01.01.1931, Side 13

Freyr - 01.01.1931, Side 13
FREYR 5 Búnaðarþing. Það kýa stjórn félagsins er fer með málefni þess milli þinga. 6. gr. Búnaðarþing skipa 14 menn, er þar eiga atkvæðisrétt, skulu þeir kosnir á aðalfund- um sambandanna. Við kosningu þeirra hafa fulltrúar hreppabúnaðarfélaganna einir at- kvæðisrétt. Þar eiga ennfremur sæti, en ekki at- kvæðisrétt, stjórn félagsins og búnaðar- málastjóri. Ráðunautar félagsins eiga þar tillögurétt og málfrelsi. Búnaðarmálastjóri og ráðunautar félags- ins eru ekki kjörgengir á Búnaðarþing. 7. gr. Fulltrúar á Búnaðarþing skulu kosnir þannig: 1 fyrir umdæmi Búnaðarsambands Kjal- arnessþings. 1 fyrir umdæmi Búnr ðarsambands Borg- arfjarðar. 1 fyrir umdæmi Búnaðarsambands Dala og Snæfellsness. 2 fyrir umdæmi Búnaðarsambands Vest- fjarða. 4 fyrir umdæmi Ræktunarfélags Norð- urlands. 2 fyrir umdæmi Búnaðarsambands Aust- urlands. 3 fyrir umdæmi Búnaðarsambands Suð- urlands. Jafnframt skulu kosnir jafnmargir vara- fulltrúar. Kosningar fara fram skriflega og gilda til 4 ára, þannig að 7 fulltrúar séu kosnir hvort ár milli Búnaðarþinga. Nú skiptist fleirmenníng-umdæmi í tvö eða fleiri búnaðarsambönd, er Búnaðarþing viðurkennir, og hafa þá slík sambönd rétt til að kjósa fulltrúa á Búnaðarþing að til- tölu við býlafjöida í hinu upprunalega sambandssvæði. 8. gr. Búnaðarþings-fulltrúum skal greiða úr félagssjóði dagpeninga fyrir þann tíma, er þeir sitja á Búnaðarþingi og eru á ferðum að heiman og heim ásamt ferðakostnaði. Akveður Búnaðarþing dagpeninga í hvert sinn, og samþykkir ferðakostnaðar-reikn- ingana. 9. gr. Búnaðarþing skal haldið annað hvert ár í Reykjavík, nema Búnaðarþing samþykki annan fundarstað, á þeim tíma sem stjórn- in ákveður. Fundir þess eru lögmætir, ef minst 9 fulltrúar eru á fundi. Afl atkvæða ræður úrslitum, nema þar sem lög þessi mæla öðruvísi fyrir. A Búnaðarþingi skulu kosnir 3 menn í stjórn félagsins ásamt varamönnum þeirra. Kosningin gildir til 4 ára og gengur einn úr stjórninni annað búnaðarþingsárið en tveir hitt. Á Búnaðarþingi skal og kjósa einn endurskoðanda innan Búnaðarþings og varamann hans. Gildir kosning þeirra til 4 ára. Atvinnumálaráðuneytið skipar annan endurskoðanda og varamann hans. 10. gr. Búnaðarþingið hefir æðsta vald í öllum félagsmálum, Það úrskurðar og samþykkir reikninga félagsins og setur því fjárlög. Á Búnaðarþingi skal skýrt frá störfum fé- lagsins og fjárhag. Það tekur ákvarðanir um starfsemi félagsins og ræðir önnur þau mál, er það óskar að gera tillögur um til hlutaðeigandi aðila. Fundargerðir Búnaðarþings, samþykktir, tillögur og nefndarálit birtist í Búnaðarrit- inu. 11. gr. Stjórnin kýs úr sínum hóp formann fé- lagsins. Stjórnar hann Búnaðarþingi og ber ábyrgð á að ályktunum þess sé fylgt. Hann skal og sjá uin að fyrir hverju Bún- aðarþingi liggi:

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.