Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2004, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2004, Page 10
10 LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 2004 Fréttir DV Eldislax sagð- ur heilsuspill- andi skýrslu bandarískra vís- indamanna í tímaritinu Science þar sem varað er við neyslu á eldislaxi, en villta laxinum hælt. í skýrslu vísindamannanna kemur fram að magn eitur- efna í eldislaxi, svo sem PCB og díoxín, geti valdið krabbameini. Fram kemur á sjávarútvegsmiðlinum skip.is að norskir eldis- framleiðendur undirbúi andsvör gegn skýrslunni. Eldisfiskur er nú um helm- ingur fiskútflutnings Norð- manna og eru gífurlegir hagsmunir í húfi þar, sem og á íslandi. Stormur jafn- aði alltvið jorðu Fátt er uppistandandi á Kyrrahafseyjunni Niue eftir að gríðarlegur stormur reið þar yflr í gær. Eyjan er hluti af eyjaklasa um 2700 km. frá ströndum Nýja-Sjá- lands. Fjölmennt lið hjálp- arstarfsmanna hélt af stað bæði þaðan og frá Ástralíu um leið og ljóst var að ástandið var alvarlegt. Að- eins einn lést í storminum en gríðarmikið eignatjón varð. Guðjón Friðriksson segir einkennilegt að Hannes Hólmsteinn Gissurarson blandi sér inn í málsvörn sína. Hann sé að beina athyglinni frá aðalatriðinu. Guðjón seg- ist aldrei hafa eert bað sem Hannes er sakaður um. Guðjón Friðriksson, sagnfræðingur Hann er höfundur ævisagna Einars Benediktssonarjóns Sigurðssonar og Jónasar Jónssonar frá Hriflu. MargrétVil- hjálmsdóttir Margrét er einstaklega hlýr persónuleiki með stórt hjarta. Hún er tilfinninganæmur vin- ur vina sinna, bjartsýn og hlát- urmild. Hún hefur þannig skapandi og örvandi áhrifá alla í kringum sig. Það þykir mjög gott að vinna með henni vegna þessa, en ekki síst vegna þess að hún er vinnu- þjarkur, enda leikhúsið líf hennar og yndi. Kostir & Gallar Hún þykir stundum frek á at- hygli, og getur í hóp einokað stemninguna með löngum og mörgum sögum afsjálfri sér og öðrum. Hún hefurþað sér til varnar að sögurnar eru einatt skemmtilegar. Hún get- ur verið kærulaus varðandi veraldlega hluti og ekki nógu samviskusöm varðandi hluti sem henni fínnst skipta litlu máli. Hlustar ekki á það sem aðrir hafa að segja þegar hún hefur lokið máli sínu. „Það er einkennilegt að Hannes sé að blanda mér inn í þetta, mér finnst eins og hann sé að þyrla upp einhverju ryki til að beina athyglinni frá aðalatriðinu", segir Guðjón Friðriksson, höfundur ævisagna Einars Benediktssonar, Jóns Sigurðs- sonar og Jónasar Jónssonar frá Hriflu. Hannes Hólmsteinn Gissurarson tilgreinir í málsvörn sinni gegn ásökunum um ritstuld nokkrar klausur úr verkum Guðjóns, þar sem Guðjón hefur endursagt kafla úr öðrum verkum, og líkir vinnubrögðum sínum við Guðjóns. Ég vísa í heimildir „Þegar ég nota endursögn vísa ég samt sem áður í heimildir, og einnig í öllum þessum tilvik- um sem Hannes nefnir", segir Guðjón. „Ég tek ekki afstöðu til réttmætis ásakana á Hannes, en það er allavega ekki rétt að ég hafi gert það sem hann er sakaður um. Ég nota aldrei heimildir án þess að vísa í þær á viðkomandi stað“. Hannes er sakaður um að hafa tekið kafla lítið breytta úr minningabókum Halldórs, án þess að vísa í heimildir, og þannig gera textann að sínum. Hannes segir sér til varnar að hann hafl getið þess í eftirmála að hann fléttaði lýsingar Halldórs á ævi sinni inn í frásögn sína. Guðjón segir það sína skoðun að ef texti er endursagður eða tekinn upp orðréttur verði að vísa í hann á viðkomandi stað, það sé ekki nóg að gera það í eftirmála. Rndursagður texti í gæsalöppum „í mínum verkum styðst ég stundum við yflr- litsrit á víð og dreif í texta mínum, og þá er nóg að geta þess í eftirmála eða heimildaskrá. En ef text- inn er notaður þannig að hann er annaðhvort endursagður eða tekinn upp orðréttur innan gæsalappa, verður að vísa í hann, og gera það á viðkomandi stað, svo það sé skýrt fyrir lesandan- um hvaðan textinn kemur. Þó að textinn sé end- ursagður, en ekki innan gæsalappa, þarf alltaf að tilgreina hvaðan hann er tekinn", segir Guðjón. Guðjón mun ásamt ævisagnahöfundunum Þórunni Valdimarsdóttur og Viðari Hreinssyni svara spurningum blaðamanna um verk sín og vinnubrögð og þær kröfur sem eðlilegt er að höf- undar fræðirita fyrir almenning geri til verka sinna, á vegum Reykjavíkurakademíunnar í dag. brynja@dv.is Löggiltur endurskoðandi missti réttindin og dæmdur í 18 mánaða fangelsi Stal 25 milljónum frá ólögráða systrum Endurskoðandinn Björn Björns- son var í gær dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir að stela 25,5 milljónum króna af föðurarfl tveggja ólögráða systra. Björn var skipaður lögráðamaður systranna eftir fráfall föður þeirra árið 2000. Úr dánarbúi föðurins fengust meðal annars 37,4 milljónir króna vegna sölu á báti og kvóta sem honum fylgdi. Björn tók 25,5 millj- ónir af þessu fé með samtals 24 út- tektum af bankareikriingi frá því í apríl 2001 þar til í ágúst 2002. Reikn- inginn hafði Björn stofnað í eigin nafni í Landsbanka íslands. Ríkislögreglustjóri hafði gert kröfu til þess að Björn yrði sviptur réttindum til að starfa sem löggiltur endurskoðandi. Frá því.var hins veg- ar fallið íyrir nokkrum vikum þar sem Björn hafði þá sjálfur skilað inn réttindum sínum. Samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjaness játaði Björn brot sitt vafningalaust. Hann er einnig sagð- ur hafa leitast við að bæta brot sitt og hafa í því skyni endurgreitt 11,6 milljónir króna. Við ákvörðun refs- ingarinnar leit dómurinn einnig til þess að Björn hefur ekki áður sætt refsingu. Þar sem Björn hafði verið skipað- ur lögráðamaður systranna telst brot hans vera brot í opinberu starfi og þar með vera alvarlegra en ella. Áðurnefndur 18 mánaða fangels- isdómur Björns er óskilorðisbund- inn að öllu leyti. Björn er 51 árs gam- all. Björn Björnsson Skipaður lögrdðamaður dæmdur i 18 mánaða fangelsi og tapaði réttindum sem endurskoðandi eftir að hafa stolið 25,5 milljónum frá ólögráða skjólstæð- ingum sinum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.