Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2004, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2004, Side 11
DV Fréttir LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 2004 J 7 Glóðvolgar rannsóknaniðurstöður gefa sterkar vísbendingar um að olíu sé að finna norðan við land, í Skjálfandaflóa. Einstæðar myndir af hafsbotni sýna að sambærilegar jarðmyndanir eru í kringum Vest- mannaeyjar. Síðastliðið sumar fór rannsókna- skipið Árni Friðriksson í sinn seinni leiðangur til að kanna sjávarbotninn við Vestmannaeyjar og Reykjanes- hrygg og eldvirkni þar. Leiðangurs- stjóri var doktor Ármann Höskulds- son, jarðfræðingur. Rannsóknin var gerð með Simrad EM300 fjölgeisla- mæli Hafrannsóknarstofnunar. Mynd- irnar sem náðust með mælunum eru einstæðar. Meðal annars fund- ust sérstakar holur á hafsbotninum, sambærilegar við þær sem eru á Skjálfandaflóa og benda til gasupp- streymis í tengslum við olíu. Sterkar vísbendingar um olíu við Skjálfanda Víkjum fyrst að Skjálfanda, en þaðan voru að berast glóðvolgar rannsóknaniðurstöður sem gefa sterkar vísbendingar um að þar sé olíu að flnna, þó ekkert sé vitað um hvort það sé í nýtanlegu magni. Síð- astliðið sumar tóku íslenskir jarðvís- indamenn sýni úr holunum í Skjálf- andaflóa, sem nú eru til nákvæmrar greiningar í Noregi hjá fyrirtæki sem sérhæfir sig í rannsóknum á kolvetni og hefur meðal annars unnið grunn- rannsóknir fyrir Statoil. „Fyrstu niðurstöður benda til þess að þarna séum við með blöndu af tvennskonar líffænu gasi“, segir Bjarni Richter, jarðffæðingur hjá Is- lenskum orkurannsóknum. „Ann- arsvegar metangasi, sem hefur ekk- ert með olíumyndun að gera, og hinsvegar hitaummynduðu líffænu gasi, sem flnnst iðulega í tengslum við olíumyndun. Það eru því sterkar vísbendingar um að í tengsl um við þessa gasmyndun flnnist olía, en það þarf samt ekki að vera. Sýnin eru nú til nánari athugunar. Ég geri mér vonir um að niðurstöður liggi fyrir í þessum mánuði". Olía við Vestmannaeyjar? Það sama gæti verið á ferðinni við Vestmannaeyjar. Með einstæð- um myndum úr leiðangri rann- sóknaskipsins Árna Friðrikssonar hafa fundist jarðmyndanir sem líta eins út og þær á botni Skjálfanda- flóa. Doktor Ármann Höskuldsson, jarðfræðingur, segir að tæki Haf- rannsóknarstofnunar sem notað var við rannsóknirnar hafi gert það kleift að taka nánast eins og loft- myndir af hafsbotninum. „Við rannsóknina kom í ljós að mitt á milli Vestmannaeyja og Reykjaneshryggjar er svæði sem er alsett litlum holum. Botninn í hol- unum er miklu harðari en umhverf- ið, sem þýðir að setið, eða agnirnar sem falla úr sjónum, geta ekki sest til í botninum á holunum. Það hlýtur að vera vegna þess að það er upp- streymi úr holunum. Þetta eru svip- aðar holur og hafa fundist í öxarfirði og Skjálfanda. Þær eru ívið stærri þó. Sumar þeirra eru allt að 100 metrar í þvermál. Hver veit nema hér sé framtíðar olíusvæði íslands á ferð- inni“, segir hann kankvís. Frekari rannsókna er þörf til að ákvarða hvað það er sem kemur upp úr hol- unum. „Þetta er á 250 metra dýpi, svo það ætti ekki að vera erfitt að taka sýni. Þetta gæti verið ferskvatn, eða heitt vatn. En þetta getur líka verið gas. Jarðlagabotninn, þar sem holurnar eru, er í kringum þriggja til fjögurra milljón ára gamall. Það er nægur tími til að mynda gerjun, og þar af leiðandi olíu, ef það eru líf- rænar leifar þarna niðri'1. „Ég hef séð kortið hjá Ármanni, i % •»',* i- . . . i og þetta eru athyglisverðar holur sem vert er að skoða nánar. Það er ekki ótrúlegt að þarna flnnist sam- bærilegir hlutir og fyrir norðan. Frekari rannsókna þarf við", segir Bjarni Richter. Dræmur áhugi olíufyrirtækja Mikið rannsóknarstaif er þegar í gangi varðandi leit að olíu og gasi hér við land. Áður hafa íslenskir jarðvísindamenn fundið á söndum Öxarfjarðar hitaummyndað kolvetni af þeirri tegund sem myndast ein- göngu í tengslum við olíumyndun. Rannsóknir hafa sérstaklega verið stundaðar norðan við landið. Á veg- Áhugi erlendra olíufyrirtækja á rannsóknum hér við iand hefur hingað til verið dræmur. Þó hefur norska fyrirtækið InSeis þriggja ára leyfi til leitar að olíu og gasi innan íslensku efn- hagslögsögunnar. um iðnaðarráðuneytis og Orku- stofnunar er fylgst sérstaklega vel með málum. Starfshópur á vegum ráðuneytisins komst að þeirri niður- stöðu að Jan-Mayen svæðið væri lfk- legast til að geyma olíu, en þar eiga Islendingar og Norðmenn sameigin- Fjármögnun ganga tryggð „Við hér í Vestmannaeyjum höfum hingað til verið upptekin af öðrum hlutum í jarðskorpunni en olíu, svo sem hreyfanleika hennar. Við fýlgjumst náttúrulega spennt með öllum rannsóknum. Nú erum við að afla fjármagns til áframhaldandi rannsókna vegna jarð- gangna til Vestmannaeyja. Ef olía fyndist yrði fjár- nrögnun ganganna auðvitað trygg - og ekki sakar að bora eftir olíu um leið og gögnin yrðu gerð! Þannig myndum við slá tvær flugur í einu höggi." Bergur Elías -Vekur þetta nokkuð upp gamlar hugmyndir um Ágústsson, bæjar- sjálfstæði eyjanna? stjóri Vestmanna- „Nei, alls ekki". eyja Vísbending um olíu Ógrynni hola fundust á hafsbotninum við Vestmannaeyjar, og eru sumar þeirra allt að 100 metrar iþvermál. Úr þeim streymir efni sem hugsanlega er Hfrænt gas. Efsvo er gætiolía leynst undir. legra hagsmuna að gæta. Líklegast taldi þó hópurinn að Hatton-Rockall svæðið geymdi olíu eða gas í vinn- anlegu magni, en ágreiningur er um réttindi íslendinga á svæðinu. Áhugi erlendra olíufýrirtækja á rannsókn- um hér við land hefur verið dræmur. Þó veitti iðnaðarráðherra árið 2001 norska fyrirtækinu InSeis þriggja ára leyfi til leitar að olíu og gasi innan norðausturhluta íslensku efnhags- lögsögunnar. Leyfíð veitir engan rétt til borana eða vinnslu. Frekari rann- sóknir eru þó taldar forsendan fyrir áhuga erlendra olíufyrirtækja, en aldrei fýrr hefur athyglin beinst að svæðum sunnan við landið. brynja@dv.is Sólarlandaferðir með Úrval-Útsýn www.urvalutsyn.is Fartölvur frá Hugveri LANDSSAMTÖK HJARTASJÚKLINGA Happdrætti Handsímar frá Sony Ericson Nr. 2134 Fartölva frá Hugveri, Mitac MiNote 8080 176.870 kr. Nr. 3507 Fartölva frá Hugveri, Mitac MINote 8080 176.870 kr. Nr. 4759 Fartölva frá Hugveri, Mitac MiNote 8080 176.870 kr. Nr. 4867 Handsími, Dregið var þann 6. jan. Eftirtalin númer hlutu vinning: Nr. 5944 Sólarlandaferð með Úrval-Útsýn í leiguflugl vetur eða sumar 2004. 250.000 kr. Nr. 8676 Sólarlandaferð með Úrval-Útsýn í lelguflugl vetur eða sumar 2004. 200.000 kr. Nr. 12539 œ Sólarlandaferð með Úrval-Útsýn 2 i leiguflugl vetur eða sumar 2004. ? 200.000 kr. Sony Ericson T 610 34.900 kr. Nr. 6334 Handsími, Sony Erlcson T 610 34.900 kr. Nr. 8349 Handsími, Sony Ericson T 610 34.900 kr. Helldarverðmætl vinnlnga er 1.285.310 kr. F|öldi útgefinna miða er 15000. Vinninga ber að vitja Innan árs. Þökkum stuðninginn LANDSSAMTÖK HfARTASIÚKLINGA Síðumúlá 6. 108 Reykjavík. Sími 552 5744. Fax 562 5744. www.lhs.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.