Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2004, Síða 14
14 LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 2004
Fréttir IJV
Umtalaðasti maður íslands er Idol-keppandinn Kalli
Bjarni sem unnið hefur hug og hjörtu þjóðarinnar.
Kalli Bjarni slær einhvern streng í þjóðarsálinni enda
hefur hann flakkað um landið og búið hér og þar:
Reykjavík, Grindavík, Grundarfirði, Ólafsvík, Vopna-
firði. Nokkur sveitafélög hafa þegar slegið eign sinni á
Kalla Bjarna.
Móður Kalla Bjarna
var ráðlagt frá þvíaf
læknum að ganga
með hann efhún vildi
einhvern tíma eiga
von um að ná fullum
bata. En hún
hunsaðiþað-
sem betur fer
fyrirlands-
menn.
„Ef þú vinnur ekki þessa keppni þá er
eitthvað að,“ eru fræg ummæli sjálfs
Bubba Morthens. Páll Oskar sagðist hafa
frétt að þjóðin væri skotin í umræddum,
bætti svo um betur, gerði sig til, og sagðist
sjálfur vera skotinn í honum. Að sjálfsögðu
er hér verið að tala um Kalla Bjarna Idol-
keppanda sem er líklega umtalaðasti mað-
ur íslands núna. Honum hefur tekist að slá
einhvern streng í þjóðarsálinni. Og skal
engan undra. Saga hans er um margt sér-
stæð og afar íslensk.
„Hjá okkur er enginn einn tekinn út úr
og honum hampað umfram aðra. Allir fá
sama kommúníska spottið. Jafnræðis gætt
hvað okkur varðar," segir Þór Freysson
pródúsent keppninnar. Hann nær þó ekki
að stýra því að kastljósið hefur einkum
beinst að sjóaranum og landshornaflakk-
aranum Kalla Bjarna - ekki síst fyrir tilstilli
Bubba sem fer ekki leynt með að þar er
hans maður mættur. Enda kannski ekki
ósvipaðir þegar allt kemur tif alls. Kalli
Bjarni er sagður hinn nýi Bubbi!
Grenjandi stuð í Grindavík
Þjóðina hefur gripið Idol-æði. DV tók
púlsinn á stemmningunni í Grindavík þar
sem Kalli Bjarni er búsettur og það verður
bara að segja þá sögu eins og hún er: Þar
var (og er) mígandi-grenjandi-organdi
stemning! Bæjarfélagið stendur við bakið
á sínum manni sem einn maður og eiga í
honum hvert bein. Fyrrum félgar Kalla
Bjarna á frystitogaranum Hrafninum fá
sendar spólur sérstaklega og fylgjast
grannt með gangi mála. Fjölmenni ætiaði
sér á krána Cactus til að fylgjast sérstak-
lega með keppninni á breiðtjaldi í gær-
kvöldi. Þrjátíu manns höfðu tryggt sér
miða í Smáralind þar sem keppnin á sér
stað og komust miklu færri að en vildu,
enda uppselt á svipstundu.
Kolbrún Einarsdóttir starfar á pósthús-
inu í Grindavík: „Besta pósthús á land-
inu,“ segir hún og leiðir blaðamann í allan
sannleik um hversu frábært plássið er.
„Hér er besta körfuboltalið landsins og
hann Kalli okkar er í Idol."
Og það var nú einmitt erindið. Kolbrún
segist vera of gömul til að fara í Smáralind-
ina en ætlar að bregða sér ásamt öðrum á
Sjávarperluna og horfa á keppnina á
breiðtjaldi. „Það er alveg rosaleg stemmn-
ing hérna í plássinu fyrir þessari keppni."
Mikið ónæði
Tengdamóðir Kalla Bjarna er Súsanna
Joensen. Hún er af færeysku bergi brotin
og starfar í eldhúsinu á elliheimilinu í
Grindavík. Kalli Bjarni og kærasta hans og
Cactusinn Grindvikingar fjölmenna þangað á
hverju föstudagskvöidi.
barnsmóðir eru búsett í kjallara tengdafor-
eldra Kalla Bjarna. Tengdamamma segir
hann rosalega góðan strák, „ljúfur og góð-
ur.“ Súsanna upplýsir einnig að þessari
keppni hafi fylgt mikið ónæði sem bitnað
hafi á allri fjölskyldunni en þvf sé tekið
með brosi á vör. Aðspurð um hvernig
henni lítist á að tengdasonur hennar sé að
feta þessa viðsjárverðu braut poppsins
segir hún að sér lítist bara ágætlega á það.
„Á þessu hefur hann mestan áhuga og
við styðjum hann auðvitað öll í því.“ Sús-
anna komst ekki frá til að fylgjast með í
Smáralindinni í gærkvöldi en ætlar að
mæta á úrslitakvöldið - það er ef allt fer vel
og miða er að fá. „Þetta er þegar orðinn frá-
bær árangur hjá honum. Æðislegt og rosa-
lega gaman að þessu.“
Eiga í honum hvert bein
Maríanna Adolfsdóttir starfar í sjopp-
unni í Grindavík og hún segist sjaldan hafa
upplifað aðra eins stemningu í bæjarfélag-
inu. Bæjarbúar þeir sem ekki komast til
keppninnar ætla að horfa á hana af breið-
tjaldi á kránni. Og Kalli Bjarni er gull af
manni segir hún. „Hann er eiginlega algjör
Kolbrún á Pósthúsinu Er farin að kenna sjálft
piássið við Kalla Bjarna.
gullmoli!" Maríanna segir rétt skilið að
Grindvíkingar telji sig eiga hvert bein í
Kalla Bjarna.
Svanhildur Björk Hermannsdóttir er
ein þeirra heppnu sem þegar hefur tryggt
sér rniða. Hún er enda kærasta besta vinar
Kalla Bjarna og hefur yfirleitt mætt til að
styðja sinn mann. Hún segir Kalla gríðar-
lega músíkalskan og bætir því við að hann
hafi samið mörg góð lög. „Mér finnst hann
eiga það fyllilega skilið að vinna keppnina.
Mér finnst hann bestur.“ Og sennilega er
ekki að finna Grindvíking sem ekki tekur
undir það. Hún upplýsir að Kalli sé í hljóm-
sveit með kærasta sínum og þeir séu að
byggja hana upp. Hún telur víst að Idol
keppnin geti orðið þeim til framdráttar í
bransanum.
í hljómsveit
Grétar Matthíasson er gítarleikari, besti
Höfnin í Grindavík Hérþekkir Kalli Bjarni hvern
krók og kima.
JANÚARÚTSALA
allt að 35% afsláttur
Gítarinn ehf.
Stórhöfða 27, sími 552-2125 og 895 9376
www.gitarinn.is • gitarinn@gitarinn.is
★