Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2004, Qupperneq 23
0V Fókus
LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 2004 23
Hannesar" er hins vegar brotið blað í
sögu satírunnar. Það hefur ekki áður
gerst, að minnsta kosti ekki svo ég
viti til, að æðsti valdamaður þjóðar
beiti satírunni, enda myndi maður
ætla að hann væri sá maður sem
auðveldast ætti með að hafa beinni
áhrif á gang mála.
Listamaðurinn Davíð var ekki
dauður úr öllum æðum, þótt stjórn-
málamaðurinn hefði orðið bæði borg-
arstjóri og forsætisráðherra. Árið 1997
kom út smásagnasafnið „Nokkrir góð-
ir dagar án Guðnýjar". Davíð reynir
við satíruformið í sögunni „Innilok-
unarkennd í Moskvu", þar sem hann
lýsir ferðalagi sínu til Sovétríkjanna.
Segir þar meðal annars:
„Ljósmyndarinn hafði þegar tekið
yflr 4000 myndir af mér og öllu því
sem ég kom nálægt þessa síðustu
daga og ég hafði aldrei séð hann
skipta um filmu. Þetta, ásamt ýmsu
öðru, benti ótvírætt til þess að það
væri rétt sem borgarstjórinn sagði í
gær að Sovétmenn væru þegar mörg-
um áratugum á undan Vesturlönd-
um í tækni."
Davíð gegn Sovétríkjunum
í sögunni „Glæpur skekur Hús-
næðisstofnun", sem kvikmyndin
„Opinberun Hannesar" er byggð á,
setur höfundur sig í spor Hannesar
Aðalsteinssonar, sannfærðs sósíalista
sem lítur vonaraugum tii Sovétríkj-
anna. Hann vinnur hjá Húsnæðis-
stofnun ríkisins þar sem hann sam-
viskusamlega gefur út leyfi og verður
um og ó þegar reiknivél stofnunarinn-
ar er stolið. Davíð er lipur penni, en
oft er sem punktinn vanti yfir i-ið.
Sögurnar enda gjarnan snögglega,
eins og hann hafi orðið uppiskroppa
með tíma, enda dagur stjórnmála-
manns annasamur. Svo er einnig hér
þar sem Hannes leitar þjófsins í
skjalasafni lögreglunnar. Málalok eru
svo þau að þjófurinn finnst án þess að
neitt hafi komið í ljós, hvorki um
hann, Hannes né sósíalismann.
I kvikmyndinni er Hannes kominn
á Eftirlitsstofnun ríkisins og þar er
tölvu stolið en ekki reiknivél. Hér er
þó ástæða gefin fýrir hugarróti Hann-
esar varðandi þennan smáglæp, þar
sem nýtt eftirlitskerfi sem hann hefur
Rithöfundurinn Davið les úr einni af
bókum sinum á Súfistanum.
hannað er að finna í tölvunni, og get-
ur farið illa ef það kemst í rangar
hendur. Framanaf er myndin ádeila á
ríkisstofnanir og það Sovét ísland sem
Davíð taldi sig taka við. Hann sat ekki
við orðin tóm og hóf af miklum móð
að losa ríkið við sínar stofnanir með
orðið „Frelsi" sem slagorð.
Eftir að miklu púðri hefur verið
eytt í að gagnrýna þetta kerfi með
margendurteknum senum, sem sýna
fram á hve báknið er þungt f vöfum,
nær Hannes þó á endanum sátt við
kerfið og kemst að því að frelsinu
þarf að skammta þeim sem eiga það
skilið og kunna að fara með það.
Þetta er að mörgu leyti endur-
speglun stjórnmálaferils Davíðs.
Hann reyndi að veita mönnum frelsi,
en sér svo ekki betur en að það lendi
ekki í höndum ábyrgra manna sem
hann þekkir og veit að er treystandi
fyrir því, heldur hjá einhverjum allt
öðrum mönnum úti í bæ. Hann fer
því, eins og Hannes, að hlaupa út um
allt að leita að þjófum og þýfi. Að lok-
um kemst Hannes að því að frelsið er
í raun best skammtað og höfundur
endar með að verja það kerfi sem
hann hafði áður deilt á. Satíran hefur
algerlega snúist í höndunum á bæði
höfundi og persónu.
Blár Laxness?
Árið 2002 kom út annað smá-
sagnasafn Davíðs, „Stolið frá höfundi
stafrófsins". Hér er Davíð orðinn
skáldmæltari en áður. f sögu þeirri
sem titillinn er fenginn frá „Flugan á
veggnum verður kringluleit" segir:
„Ég var flugan á veggnum sem hefur
verið óskahlutverk svo margra í
gegnum tíðina, en eins og þú veist
eru það aðeins örfáir sem nokkru
sinni hreppa þá eftirsóttu rullu." Hér
setur höfundur sig í spor manns sem
fylgist með leikskáldi hljóta lof leik-
hússfólks, en hrellir síðan saklausa
þjónustustúlku í þágu listarinnar.
Það má hér ef til vill sjá eftirsjá Dav-
íðs eftir því leikhúslífi sem hann yfir-
gaf, og kannski öfund gagnvart þeim
sem lengra náðu á þeirri braut.
Titill bókarinnar er skáldi verðug-
ur, og vísar til þess að „Öll verk eru
stolin frá gamla manninum sem fann
upp stafrófið." „Good artists borrow,"
sagði Steve Jobs. „Great artists steal."
Jobs þessi er þó hvorki rithöfundur né
bókmenntafræðingur, heldur forstjóri
tölvurisans Apple. Það er vissulega
rétt að það er ekkert algerlega nýtt
undir sólinni, og meistaraverkin eru
ekki skrifuð í tómarúmi. Það er þó
vafasamt þegar forkólfar efnahags- og
stjórnmálalffs beita sömu rökum
varðandi störf sín. Listamenn standa
á herðum stórmenna og sækja anda-
gift í meistaraverkin. Hinir standa á
herðum okkar allra.
Það er vonandi að stjórnmála-
maðurinn Davíð Oddsson hafl ekki
beitt aðferðafræði skáldsins á stjór-
málaferli sínum. En við fáum aldrei
að vita hvað hefði getað orðið ef
listamaðurinn hefði haft rneiri tíma
til að einbeita sér að verkum sínum.
Kannski hann hefði orðið einn af
öndvegisskáldum þjóðarinna; blár
Laxness sem hefði loksins bætt upp
það sem hægrimenn hefur ávallt
skort á ritsviðinu. Mögulega mun
hann þó hafa meiri tíma á næstunni,
ef honum endist aldur til, þar sem
stjórnmálamaðurinn hefur tryggt að
hann þurfi ekki að svelta þó dag-
vinnumaðurinn láti af störfum.
Stjórnmálamaðurinn Davíð er um-
deildur, en listamaðurinn Davíð er
oft á tímum glettilega góður. Ef til
vill er það tvöfaldur harmleikur ís-
lensku þjóðarinnar að hún missti
skáldið Davíð Oddsson, og fékk
stjórnmálamanninn Davíð Odds-
son.
/ 1 v1 / ft sm T SKÖMM' 6EÖ- VOND 1» 'AKÖF V VÆNTA' F tm T> NAUT 7
fflWÍM AR
b 2 I 5'
IIL- HNEI6- iNftl/NA 3
MtKóA ‘í SJÓR V
SEYMlR pOR
FISK- m l 1 ÍfKSU R DYSJiP 5 RAHD BÍStí sm R'ÓBlfi S
V KUSK UNGr hfstar ROLA mn 22 (0
KÐNN- M PL'06 23 Him BL'OMI L'/KT ?
b GlA T VEIfiAR- FÆRI 11 ? 8
WTLA /*■ t 4 rT MM ANfil WJK V/ °i
& !°i í 1 Huö~ SVóIl/N PEKKTI l'i T I0
JLM- EFNI UM- mæli mih RÖLL W IT
WÍL sMíkl FMA FR'A Kierki ELSKA muj STABUR 12
* /s 0 tMBA GiARA V FALS 13
N kEiw Bó'AlFA fersk L0K ~JF /V
HLm- MFL'IK XR HfEKKllli DVW mm 2S om£ HAMUR- IHlY JS
BCosm
mo Öð Fliöl MMt- N'AL Ib
áL'Af miL sÍall I?
wr~ mL Í-£LT 1 mfM LJ'OS- K£P N !S
w~ FLöS R/EFÍL AlÆDl nm \/ 7\
N f ATpTí ~ir TIHD T 20
NAu-0- 6 RúliR versl-
HU6- NEKKl 'imiiMi MJAKA DRlF Xio HNYAJ' AN 2I
¥ (1 TYCG W muR OSKERT ? 22
MMh TRÉ LíLECT ~lFo STlNG » H’oFH 23
DKAilP DUGc- LAUSI 3 DRölli KRAFt- m 2H
fflÉL hA; TR'E VALDA TALA 23
20 fcí/imn FtWóLi Kikl V , iNNAN %
FATA- RÆFLA 23 HATT- K0LL 2T
BÁuHlR TRWr
DWIW imqts SbNTR lÁtiM HHNOA MYNNl ÉLL 7Y'/- HLJ06I 28
L> XI Ö'ÍISSA m SP'lRA ~8l
hRm- UN ÁSÁKA ~1T 8ATNI FLA S SL'A 3o
FÆðA I8 OREIDA
PÚKlNl'i VAPÚÖ 30
valur@dv.is