Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2004, Qupperneq 30
30 LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 2004
Fókus DV
Lögreglan er
oft í leiksýnlngnni
Árni Friðleifsson mót-
orhjólalögga og
kvikmyndaleikari um
starfið, mótorhjólið,
eftirlitsþjóðfélagið og
Opinberun Hannesar
„Ég er lögreglumaður en ekki
leikari og er ekkert að setja mig í aðr-
ar stellingar. Segi líka það hafi verið
mótorhjólið sem slíkt sem var lánað
í þessa kvikmynd, enda þó svo mér
bregði þarna fyrir. Fjölbreytileiki,
svo sem að leika í kvikmynd, er það
sem öðru fremur einkennir starf lög-
reglumannsins og kannski það sem
gerir þennan starfsvettvang heili-
andi,“ segir Árni Friðleifsson lög-
reglumaður.
Öfgakenndur veruleiki
Kvikmyndin Opinberun Hannes-
ar eftir Hrafn Gunnlaugsson var
frumsýnd í Sjónvarpinu að kvöldi
nýársdags og er nú á hvíta tjaldinu í
Háskólabíói. Þar er gamansömu
ljósi brugðið á eftirlits- og reglugerð-
arþjóðfélagið, sem er fyrir sumum
risavaxinn og sístækkandi frum-
skógur.
„Eins og veruleikinn er settur
upp þarna í myndinni þá er hann
ekki svona öfgakenndur, en vissu-
lega á þetta sér nolckurn stað í raun-
veruleikanum. Það er sífellt verið að
auka allt eftirlit með borgurunum,
sem í mörgum tilvikum er til bóta.
Reglugerðirnar sem við fáum og
verðum að starfa eftir er einnig mik-
ið að fjölga; svo sem þær sem koma í
krafti EES-samningsins. Hvað þær
varðar finnst mér stundum gleymast
að þær henta alls ekki inn í íslenskan
veruleika og þjóðfélag," segir Árni.
Hann bætir við að þetta reglu-
gerðarflóð þýði að lögreglumenn
þurfi að sérhæfa sig hver á sínu sviði
til þess að kunna sæmileg skil á
regluverki samfélagsins. Sé það mik-
ilvægt svo hvert og eitt mál rati sína
réttu leið í kerfinu.
(nýjum hlutverkum
Tökur á kvikmyndinni Opinber-
un Hannesar fóru fram snemmsum-
ars í fyrra. Árni segir að sér hafi þótt
gaman að glíma við þetta verkefni.
„Mér fannst líka gaman og lær-
dómsríkt að vinna með Hrafni
Gunnlaugssyni, sem er afar svip-
sterkur persónuleiki og maður með
miklar meiningar. Kvikmyndaleikur
er alveg nýr heimur fyrir mér,“ segir
Árni, sem einnig sést á mótorhjóli í
Svínasúpunni sem er sýnd á Stöð 2.
„Það koma alltaf öðru hvoru
svona beiðnir um að lögreglan leggi
kvikmyndatökum lið. Þær fara fyrir
framkvæmdastjórnina hér - sem
tekur afstöðu til þessa og hvort fallist
sá á aðkomu embættisins að þeim.
Hins vegar viljum við fylgja tækjun-
um okkar, við setjum ekki verðmæt
mótorhjól í hendurnar á utanað-
komandi."
Árni bætir við að í starfi lögreglu-
mannsins komi upp ýmsar sér-
kennilegar aðstæður. „Oft þurfa
menn að geta brugðið sér í nýtt lilut-
verk og taka þátt í heilu leiksýning-
unum til þess að ná valdi á þeim
veruleika sem blasir við. En líklega
er það nú svo að í öllum störfum
þurfum við að setja upp einhverja
grímu eða bregða okkur í annað
hlutverk en okkar daglega til að ná
tökum á hlutunum."
Höfum hetjuímynd
Árni Friðleifsson er búinn að
starfa tæp sextán ár innan Lögregl-
unnar í Reykjavík. Var fyrsta kastið í
almennu deildinni, en hefur frá 1991
verið f mótorhjólasveit umferðar-
deildar. Er nú yfirmaður sveitarinn-
ar, sem sextán manns skipa.
„Mótorhjól eru afskaplega góð
löggæslutæki. Hægt er til dæmis að
komast áfram á hjólunum í umferð-
aröngþveiti þegar allar leiðir eru bíl-
um lokaðar. Stundum höfum við
líka haldið að lögreglumenn á mót-
orhjólum séu aktaðir öðruvísi en
aðrir; það virðist fylgja þessu ein-
hver hetjuímynd. Ekki þá síst á með-
al krakkanna. Við þekkjum það lika
neðan úr bæ að á góðviðrisdögum á
sumrin finnst erlendum túristum
mikið sport að láta taka af sér mynd-
ir með okkur. Við erum því til í
myndaalbúmum fólks vítt og breitt
um heiminn," segirÁrni og brosir.
Öll skilningarvit opin
Við sitjum með Arna í kjallara
lögreglustöðvarinnar við Hverfis-
götu þar sem mótorhjóladeildin hef-
ur bækistöðvar sínar. Hjólin eru
fímm, öll af gerðinni Harley Davids-
son og það elsta er þriggja ára, en
flest yngri. „Það hefur oft verið sagt
að mótorhjólin séu eitthvert
áhættusamasta starfíð innan lög-
reglunnar. Sjálfur tel ég það ekkert
fjarri lagi. Á síðustu misserum hafa
okkar menn lent í þremur óhöpp-
um, þó svo ég hafi blessunarlega
sloppið sjálfur," segirÁrni.
Hann segir að grunnreglan fyrir
lögreglumenn á mótórhjóli sé alltaf
að stóla fyrst og síðast á sig sjálfan.
Hafa öll skilningavit galopin og sjá
helst alltaf næsta leik fram í tímann.
Vera meðvitaður um hætturnar sem
séu hvarvetna. „Fari menn eftir þessu
er nokkrum áfanga náð. Ég segi líka
að þetta geri menn líka að betri öku-
mönnum svona almennt talað."
Öll með mótorhjólapróf
Árni á fjögur alsystkin og eru þau
öll með mótorhjólapróf; en þeirra á
meðal er Siv Friðleifdóttir umhverf-
isráðherra. „Ég tók prófið fyrstur -
en síðan komu systkini mín í kjölfar-
ið. Við fjögur höfum aldrei farið öll
saman út að hjóla, en stundum tvö
eða þrjú. En vonandi gefst tækifæri
til þess einhverntímann," segir Árni
Friðleifsson. Maðurinn á mótorhjól-
inu, löggan í kvikmyndinni, leikar-
inn í lífinu og riddari götunnar.
sigbogi@dv.is
„Segi líka það hafi
verið mótorhjólið sem
slíkt sem var lánað í
þessa kvikmynd, enda
þó svo mér bregði
þarna fyrir. Fjölbreyti-
teiki, svo sem að leika
í kvikmynd, er það
sem öðru fremur ein-
kennir starf lögreglu-
mannsins og kannski
það sem gerir þenn-
an starfsvettvang
heiUandi."