Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2004, Page 36
36 LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 2004
Sport DV
Fjögur efstu lið
Intersport-deildarinnar í
körfubolta eru komin í
undanúrslit bikarkeppni
KKÍ og Lýsingar og stefnir
því í ein sterkustu undan-
úrslit keppninnar frá
upphafi. Grindavík (1.
sæti), Njarðvík (2.), Snæfell
(3.) og Keflavík (4.) verða í
pottinum í karlaflokki
þegar dregið verður í
undanúrslitin á mánu-
daginn.
Sakna Shaq
og Karí Malone
LA Lakers hefur nú
tapað fjórum leikjum í röð
__jí NBA-deildinni í
körfubolta og sex af sjö
síðan Karl Malone
meiddist. Hvorki Malon
(hné) eða Shaquille O'Neal
(kálfi) hafa verið með í
síðustu þremur leikjum
sem hafa tapast á
„sannfærandi" hátt.
„Þið þekkið mig,“ sagði
þjálfarinn Phil Jackson og
beindi orðum sínum itil
þess fjölda blaðamanna
sem stóð fyrir framan hann.
„Ég held að þetta sé bara
.jjott fyrir liðið og hjálþi
okkur að ná upp góðri
einbeitingu á ný. Við vorum
kannski of öruggir eftir
þessa frábæru byrjun,"
sagði Jackson en Lakers
vann 18 af fyrsta 21 leik
sínum en hefur síðan tapað
8 af 11.
Gordan Strachan, stjóri Southampton,
ætlar ekki að framlengja samning sinn
Þarf á hvfld
að halda
Gordon Strachan, hinn litíki
knattspyrnustjóri Southampton,
mun ekki framlengja samning sinn
við félagið þegar hann rennur út í
vor, samkvæmt fréttum frá
Englandi. Enska blaðið The Daily
Express heldur því fram að Strachan
ætli að taka sér eins árs ffí til að
hlaða batteríin að nýju.
Ekki er talið að ástæðan sé sú að
Strachan hafi sinnast við Rupert
Lowe, stjórnarformann Sout-
hampton, heldur eingöngu sú að
hann þarf á hvíldinni að halda.
Strachan, sem hefur gert frábæra
hluti hjá Southampton síðan hann
tók við liðinu fyrir rúmum tveimur
árum, hefur þráfaldlega verið orðað-
ur við knattspyrnustjórastöðuna hjá
Leeds, auk þess sem forráðamenn
Tottenham hafa haft augastað á
rauðhærða Skotanum.
Beðinn að hugsa málið
Strachan kom Southampton í
bikarúrslitin á síðasta tímabili og
hefur náð að byggja upp sterkt lið
hjá félaginu. Heimildir herma að
Strachan hafi tilkynnt Lowe þessa
ákvörðun sína fyrir jól en Lowe hafi
beðið hann að hugsa þetta fram yfir
áramót. Strachan gerði það og ætl-
ar sér ekki að halda áfram.
Þetta verður mikið áfall fyrir
Southampton sem hefur tekið
stórstígum framförum undir stjórn
Strachans. Hann tók við liðinu sex
vikum eftir að hann var rekinn frá
Coventry og fann sig strax vel hjá
félaginu.
Litríkur stjóri
Strachan hefur verið einn
litríkasti knattspyrnustjórinn í
deildinni og hafa ummæli hans
eftir leiki oft verið óborganleg.
Hann hefur sterkar skoðanir en
skýtur sér aldrei undan ábyrgð og
hefur fyrir vikið aflað sér virðingar
og vinsælda enskra fjölmiðla-
manna. Það verður svo sannarlega
sjónarsviptir að honum úr
stjórastóli Southampton, bæði fyrir
fjölmiðla og stuðningsmenn
Southampton.
oskar@dv.is
ekki best
Það var mikil spenna í Madison Square Garden í New York í fyrrinótt
þegar „nýtt og endurbætt" lið borgarinnar spilaði sinn fyrsta heimaleik
eftir breytingarnar sem færðu liðinu meðal annars einn besta
leikstjórnanda deildarinnar, Stephon Marbury, sem og Penny Hardaway
sem gerði garðinn frægan á árum áður við hlið Shaquille O'Neal hjá
Orlando Magic. í ofanálag var Jeff Van Gundy mættur í heimsókn með
sína menn f Houston og Patrick Ewing sem aðstoðarmenn en Van Gundy
þjálfaði New York á árunum 1995 til 2001 og Ewing var helsta stjarna
liðsins á síðustu tveimur áratugum. Leikurinn var hins vegar martöð fyrir
Knicks.
Stephon Marbury var manna
ánægðastur með að vera skipt til
New York, sinnar heimaborgar.
Byrjun hans með liðinu hefur þó ekki
verið upp á marga fiska, tvö töp og
aðeins 14 stig samtals í þessum
tveimur leikjum, en Marbury hefur
skorað yfir 20 stig að meðaltali í leik á
ferlinum.
„Ég gat ekki ímyndað mér að þetta
yrði svona slæmt. Við megum samt
ekki dvelja of lengi við þessa leiki því
ég er sannfærður um að
liðsmórallinn og stuðningurinn
gerbreytist þegar við vinnum fyrsta
leikinn saman," sagði Marbury eftir
leikinn en hann misnotaði 9 af 12
skotum sínum og skoraði aðeins sex
stig í leiknum, sem Houston vann
með 32 stigum á útivelli, 79-111.
Houston komst í 23-2 í upphafi
leiks og þá fóru áhorfendur Knicks að
snúast gegn sínu liði sem þarna
tapaði fjórða leiknum í röð og situr
nú í fimmta sæti „lélegasta" riðils
deildarinnar, Adantshafsriðilsins, en
aðeins eitt lið í riðlunum hefur náð
að vinna helming leikja sinna,
nágrannaliði frá New Jersey.
„Skelfing, hreinasta hörmung. Við
lékum eins og ókunnungir í vörn og
sókn,“ lét Don Chaney, þjálfari New
York, hafa eftir sér eftir leikinn en
hann þurfti að filusta á áhorfendur
kalla „Rekum Chaney", nánasf allan
tímann.
„Þetta voru góð og réttmæt köll
því við vorum skelfilega lélegir, “
bætti Chaney við en sérfræðingar
deildarinnar telja flestir að dagar
hans séu nánast taldir og líklegt sé að
Isiah Thomas haldi áfram að hrista
upp í liðinu, taki jafnvel sjálfur við
stjórninni niðri á gólfinu, en Thomas
hefur verið iðinn við kolann fyrstu
mánuði sína sem formaður Knicks.
Eitt er víst: Ædi New York-liðið sér
inn í úrslitakeppnina þarf það að fara
að vinna leiki - og það hið fyrsta.
ooj@dv.is
**c
v j; íÆ
•jöl 'f' '. %• 'T’: Jj , /■ K. I
Byrjunarliðið á bekknum Byrjunarlið New York Knick sést hér samankomið á bekknum þegar leikurirm gegn Houston var tapaður. Marbury er annar frá hægri á myndinni.
Reuters