Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2004, Side 37
DV Sport
LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 2004 37
Hæstu stykir frá upphafi Ellert B. Schram. forseti ISÍ~ með þá Stefán Konráðsson, framkvæmdastjóra sambands-
ins, á hægri höndog Lárus Blóndal, formann Afrekssjóðs ÍSÍ, á vinstri hönd- tilkynnti igær um afreksstyrki til
sérsambanda og iþróttomanna fyrir árið 2004. DV-mynd Hari
ICE
íþrótta- og ólympíusamband íslands tilkynnti í gær hverjir hljóta styrk úr Afrekssjóði sambandsins fyrir árið 2004.
Samtals var úthlutað 71 milljón króna til sérsambanda og íþróttamanna og hefur styrkurinn aldrei verið hærri en i ár.
71 ástæöa til atreka
N KI
fþrótta- og ólympíusamband íslands var í jólaskapi í gær þegar
sambandið úthlutaði 71 milljón króna í afreksstyrki frá Afrekssjóði
sambandsins, Ólympíufjölskyldunni og Styrktarsjóði ungra og
framúrskarandi efnilegra íþróttamanna. Þetta er stærsta upphæð sem ÍSÍ
hefur úthlutað í styrki til afreksstarfs frá upphafi.
Það var völlur á Ellerti B. Schram,
forseta íþrótta- og ólympíu-
sambands íslands, þegar hann
tilkynnti blaðamönnum um
styrkveitingar til sérsambanda fyrir
árið 2004 úr Afrekssjóði ÍSÍ,
Ólympíufjölskyldunni og Styrktar-
sjóði ungra og framúrskarandi
efnilegra íþróttamanna. Styrk-
upphæðin, sem rennur til 71
einstaklings og 25 landsliðs-
MILLJÓNAFÓLKIÐ
Eftirtaldir einstaklingar hlutu
afreksstyrk sem nemur meira en
milljón fyrir árið 2004:
Bjarni Skúlason, júdó 1.440.000
Jón Arnar Magnúss., frjáls. 1.440.000
Rúnar Alexanderss., fiml. 1.440.000
Vala Flosadóttir, frjáls. 1.440.000
Þórey Edda Ellsd., frjáls. 1.440.000
Örn Arnarson, sund 1.440.000
Sara Jónsdóttir, badm. 1,375.000*
*Sara er sérstaklega styrkt af
Alþjóða badmintonsambandinu.
verkefna, nemur 71 milljón króna og
hefur aldrei verið hærri heldur en
nú.
Ellert sagði að það væri gleðiefni
fyrir sambandið að geta stutt við
bakið á afreksíþróttafólki með
þessum rausnarlega hætti. Ellert
sagði að Afrekssjóðurinn legði til
52,5 milljónir, Ólympíufjölskyldan,
sem samanstæði af fimm
stórfyrirtækjum, legði til 5,7
milljónir og Styrktarsjóður ungra og
efnilegra íþróttamanna legði til 11,6
milljónir.
400 umsóknir
„Okkur bárust umsóknir upp á
400 milljónir og það segir okkur að
þörfin fyrir styrki sem þessa er alltaf
að aukast."
Ellert sagði jafnframt að
stafastyrkirnir svokölluðu, A-, B- og
C-, hefðu hækkað frá fyrra ári.
„Framkvæmdastjórn ÍSÍ sam-
þykkti á fundi sínum í gær að hækka
styrki til einstaklinga. Þeir sem
hljóta A-styrk fá nú 160 þúsund á
mánuði f stað 120 þúsunda áður,
þeir sem eru á B-styrk fá 80 þúsund í
stað 60 áður og þeir sem fá C-styrk
verða með 40 þúsund á mánuði í
stað 30 áður,“ sagði Ellert í gær.
Sex fá A-styrk
Sex íþróttamenn fengu A-styrk,
sem er hæsti styrkurinn sem hægt er
að fá. Það eru stangarstökkvararnir
Vala Flosadóttir og Þórey Edda
Elísdóttir, tugþrautarkappinn Jón
Arnar Magnússon, júdómaðurinn
Bjarni Skúlason, fimleikakappinn
Rúnar Alexandersson og
sundgarpurinn örn Arnarson.
Lárus Blöndal, formaður
Afrekssjóðs ÍSÍ, sagði á
blaðamannaundinum að sjóðurinn
hefði mikla trú á þessum sex
einstaklingum sem hlotið hefðu A-
styrk.
„Við bindum miklar vonir við
þessa sex eintaklinga enda hafa þau
öll náð framúrskarandi árangri. Við
vonum að þessi styrkur verði þeim
frekari hvatning til dáða og geri
þeim kleift að undirbúa sig enn
betur fyrir ólympíuleikana," sagði
Lárus.
20 milljónir til HSÍ
Handknattleikssamband fslands
er stærsti einstaki styrkþeginn en
sambandið fékk 20 milljónir króna
fyrir A-landslið karla sem tekur þátt í
EM í Slóveníu í þessum mánuði og
„Við bindum miklar
vonir við þessa sex
eintaklinga enda hafa
þau öll náð framúr-
skarandi árangri. Við
vonum að þessi styrk-
ur verði þeim frekari
hvatning til dáða og
geri þeim kleift að
undirbúa sig enn
betur fyrir óíympíu-
leikana."
síðan ólympíuleikunum í Aþenu í
ágúst. HSÍ fékk þrettán milljónir frá
Affekssjóði ÍSÍ en sjö milljónir frá
Ólympíusamhjálpinni. Þetta er í
annað sinn sem HSÍ fær þessa
upphæð frá Ólympíusamhjálpinni
og sagði Stefán Konráðsson,
framkvæmdastjóri íþrótta- og
ólympíusambands íslands, að það
væri mjög sjaldgæft að sérsambönd
fengju þennan styrk tvívegis en á
sama tíma væri það afskaplega
gleðilegt. oskar@dv.is
STYRKIRTIL SAMBANDA
Iþrótta- og ólympiusamband
íslands úthlutaði gær 71 milljón í
afreksstyrki til sérsambanda innan
hreyfingarinnar. Styrkirnir koma úr
Afrekssjóði fS(, Ólympíufjölskyldu
ÍSÍ og Styrktarsjóði ungra og
framúrskarandi efnilegra
íþróttamanna.
HSl 20.500.000
FRl 8.550.000
ssl 7.726.000
KSl 5.000.000
KKf 4.300.000
SKl 4.140.000
BSl 3.513.000
FSl 3.080.000
JSf 2.700.000
GSl 1.700.000
DSf 1.500.000
TKl 1.390.000
BTÍ 1.190.000
(F 1.000.000
TSÍ 770.000
ISS 600.000
BLl 540.000
S(L 470.000
KLÍ 440.000
STl 440.000
Skylminganefnd 300.000
Skvass 100.000