Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2004, Side 43
DV Fókus
LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 2004 43
í fyrsta sinn saman
i6ný R ósa Ingimarsdóttir og Gauthier
ert opna listasýningu í Nýlistasafninu
i dag. Þetta er i fyrsta skipti sem
hstamenmrnir sina verk smi samtimis og
sklptaþau sýningarýminu bróðurlega á
milli sin. Miklar andstæður eru i verkum
þeirra eins og fólk mun sjá efþað'leggur
leið sina i Nýlistasafnið.
Bandarísk stjnrnmál
eru ein stór Ivgi
Listakonan Guðný Rósa Ingi-
marsdóttir mun kl. 16 í dag opna
sýningu á verkum sínum ásamt
Gauthier Hubert í Nýlistasafninu.
Guðný Rósa og Gauthier eru bæði
búsett og starfandi í Brussel en eru
komin hingað til lands til þess að
halda eina af sínum stærstu sýn-
ingum til þessa. Þetta er fýrsta sýn-
ing Gauthiers hér á landi en Guðný
Rósa hefur áður sýnt verk sín á ís-
landi, m.a. í Gallerí Hlemmi.
„Þetta eru tveir ólíkir listamenn
sem fást við ólík viðfangefni," segir
Gauthier.
„Guðný er mikið að vinna með
eigin tilfinningar og minningar sín-
ar t.d. um ísland eins og þekkti það
áður. Hún fjallar um hluti sem hún
man og vill ekki muna á meðan ég
er að fást við allt aðra hluti að
þessu sinni. Ég segi ákveðna sögu
með verkum mínum sem þó eru
hvert og eitt sjálfstæð heild. Það má
í raun segja að mín verk séu póli-
tísk ádeila og ákveðin kaldhæðni
einkennir verkin. Þetta lýsir mín-
urn persónulegu skoðunum á
bandarískum stjórnmálum og
meðal annars fjalla ég um þrjú ríki
sem reyna að sameina sig í eitt.
Verkið er í raun ein stór lygi,“ segir
Gauthier sem mun einnig sýna
verk eftir sjálfan sig sem hann hef-
ur unnið hér á landi og verða ein-
göngu sýnd á íslandi.
„Þarna verður meðal annars
mynd af þremur svörtum mönnum
sem eru að baða sig í Bláa lóninu
en það er byggt á póstkorti sem ég
sá þegar ég kom fyrst til Islands og
sýndi þrjár ungar og ljóshærðar
konur í Lóninu.“
Opnun sýningarinnar verður í
dag kl. 16 í Nýlistasafninu en sýn-
ingin verður opin fram í miðjan
febrúar. Verkin sem þar getur að
líta eru einstaklega fjölbreytt, ljós-
myndir, myndskeið, málverk og allt
yfir í tónlistarbrot.
Á morgun hefur síðan verið efnt
til paliborðsumræðna sem eru opn-
ar öllum sem áhuga hafa. Cel Cra-
beels, myndlistarmaður frá Belgíu,
Edith Doove og Eva Wittocx sýning-
arstjórar frá Belgíu munu taka þátt í
umræðunum ásamt fuíltrúum ís-
lands sem verða Halldór Björn
Runólfsson, Hlynur Hallsson, Ólaf-
ur Elíasson og Þóra Þórsdóttir. Þar
verður fjallað um ýmis málefni,
m.a. stofnun allsherjar vefsvæðis
fyrir íslenska myndlistarmenn sem
Belgarnir furða sig á að ekki sé til.
Vandasamt val nútímakonunnar
• Hljómar leika á Kringlu-
kránni frá klukkan 23.
• Hljómsveitin Karma spilar á
Players.
■fr -
• Snillingarnir Gullfoss &
Geysir sjá um stuðið í Leikhús-
kjaílaranum.
• Strákarnir í
Buff leika og
skemmta á
Gauknumí
kvöld.
• Plötusnúðarnir Stebbi Steph
og Maggi legó úr Gus Gus
stjórna málurn á Kapital.
• Rokksveitirnar
Miðnes og Lokbrá
spila á Grand
Rokk.
• Brimkló spilar á Nasa.
• Dj Kári er við stjórnvölinn á
Vegamótum.
• Jón Gnarr opnar
myndlistarsýningu
sína í Frfldrkjunni
klukkan 14.
• Þrjár sýningar eru opnaðar í
Listasafiú ASÍ klukkan 14. Þær
eru „Kyrralífsmyndir frá plast-
öld“ sem Rósa Gísladóttir setur
upp, Margrét M. Norðdahl er
með sýninguna „Annarra
manna Staðaldur" og sýning á
nokkrum portrettmyndum úr
gifsi eftir Kristin Pétursson.
• Myndlistar-
maðurinn Snorri
Ásmundsson opn-
ar málverkasýn-
ingu á Sólon
klukkan 17.
• Hafsteinn Michael opnar sjö-
undu einkasýningu sína á
Næstabar klukkan 17.
• Sýning á nýjum
verkum eftir Jón
Sæmund Auðarson
og Særúnu Stefáns-
dóttur verður opn-
uð í Safiii, Lauga-
vegi 37, klukkan 17.
Verkin eru sérstaklega unnin
fyrir sýningarrýmið.
„Sést eitthvað?" spurði Dr. Gunni
í kvikmyndaumfjöllun sinni um
Kaldaljós í hinum ágæta útvarps-
þætti Skonrokk um daginn. Hann
ætti að bregða sér á In the Cut, því
þar sést alveg fullt. Það kemur á
óvart að hin hingað til sakleysislega
Meg Ryan skuli fara með aðalhlut-
verkið í einni fyrstu Hollywood
myndinni til að sýna munnmök í ná-
vígi, þó þau atriði séu reyndar ein-
ungis í evrópskri útgáfu myndarinn-
ar. Það skal þó tekið fram að Megan
er ekki í því tiltekna atriði, en við
fáum hins vegar að sjá hana fitla við
sig og sem munnmakaþiggjanda aft-
anfrá. Þeir sem horfðu á When Harry
Met Sally og fannst vanta öll grófu
kynlífsatriðin ættu loksins að fá eitt-
hvað fyrir sinn snúð. Það skal þó tek-
ið fram að Billy Crystal kemur hvergi
nálægt. Mögulega gengur Meg það
til að gera endanlega útaf við
krúsídúlluímyndina, sem hefur fleytt
henni áfram í hverri rómantísku
gamanmyndinni á fætur annarri, en
hún er orðin langþreytt á. Hún lék
geðsjúkling í Restoration, áfengis-
sjúkling f When a Man Loves a Wom-
an og harðskeyttan hermann (ræksj)
í Courage Under Fire, en komst þó
ekki hjá því að vera krútt í þeim öll-
um. Mögulega er það þess vegna
sem hún hefur tekið sér á hendur
hlutverk kynóðrar kennslukonu í
« ' m '|É
Leikstjóri: Jane
Champion
Handrit: Jane Champion
eftir sögu Susanna Moore
Sýnd í Sambíóunum og
Háskólabíó
karlaleit, mögulega vegna þess að
hún er orðinn 42 ára gömul og telur
þetta vera síðasti séns til að sýna allt
áður en það verður of seint, ef til vill
það sama og Madonna var að hugsa
þegar hún gaf út Sex bókina.
Leikstjórinn Jane Campion held-
ur hér áfram að rannsaka sálarlíf og
kynferði kvenna, eins og hún hefur
gert í The Piano (skosk og mállaus
kona fer til Nýja-Sjálands, er föst í
ástíausu hjónabandi, spilar á píanó,
sefur hjá Harvey Keitel), Holy Smoke
(áströlsk kona fer til Indlands, verður
heilluð af gúrúinum sínum, gengur í
sértrúarsöfnuð, sefur hjá Harvey
Keitel) og Portrait of a Lady (amerísk
kona fer til Evrópu, gengur í ástlaust
hjónaband með John Malkovich, en
ákveður loks að hún sé ástfangin af
einhverjum Martin Donovan sem
liggur á dánarbeði, Harvey Keitel
fjarri góðu gamni).
In the Cut Meg Ryan sýnir heldur betur á
sér nýja hlið i ágætri kvikmynd.
Áhorfandinn er kannski litlu nær
um sálarlíf kvenna (nema að þær
virðast girnast Harvey Keitel), en
kvikmyndir Campion eru alltaf þess
virði að horft sé á þær. Og In the Cut
er engin undantekning.
Meg Ryan þarf að velja á milli
þriggja rnanna. Einn þeirra er
læknanemi sem er hugfanginn af
henni og góður við hundinn sinn, en
lítið karlmenni eins og gerist og
gengur um góðhjartaða menn, enda
kemur á daginn að mamma hans
klæddi hann í stelpuföt þegar hann
var lítill. Annar er hinn reffilegi Mark
Ruffalo, sem er harðskeytt lögga
með tattú og mottu, kann að gefa
jafnt sem þiggja þegar kemur að
munnmökum, og hefur þar að auki
aðgang að handjárnum sem eru til
ýmissa hluta brúkleg.
Þriðji kosturinn er svo yngri
maðurinn, hinn vöðvastælti nem-
andi hennar Sharrieff Pugh. Mögu-
lega á hver þessara manna að
representera þær þrjár manngerðir
sem nútímakonan þarf að velja á
milli. En sá hængur er á að einn
þeirra er lfldega fjöldamorðingi sem
hefur drepið flestar nágrannakon-
urnar í hverfinu, og þá vandast valið
Kynlífið í myndunum er sjaldn-
ast fallegt og þeim mun síður
strippararnir á neðri hæðinni. Ástin
kemur hér hvergi nærri, þetta er
fremur eins og þörf sem enginn get-
ur ráðið við og gerir alla óham-
ingjusama. Stundum virðist sem
Campion eigi erfitt með að sameina
hina ýmsu þræði sögunnar, erótík-
ina, morðin, áhuga aðalpersónunn-
ar á ljóðagerð, en f heildina litið
gengur þetta þó upp, og tekst að
koma manni á óvart fram á
lokamínútu. Sérstaklega var gaman
að sjá að riddarinn á hvíta hestin-
um kemur ekki til bjargar, heldur
liggur handjárnaður við niður-
rennslið heima í eldhúsi, og loka-
skot myndarinnar er frábært.
Áhugaverð tilbreyting frá karlaveldi
kvikmyndanna. Þess má svo til
gamans geta að Hilmar örn Hilm-
arsson allsherjargoði samdi tónlist
myndarinnar.
valur@dv.is
• Klukkan 17 verða tvær nýjar
sýningar opnaðar í Gallerf
Skugga, Hverfisgötu 39. Sólveig
Bima Stefánsdóttir sýnir 9 mál-
verk undir yfirskriftinni „Reiðtúr
á nykri“ og HuldaVUhjálmsdótt-^,
ir, Húdda, sýnir málverk, skúlp-
túr og innsetningu.
• íris Linda Ámadóttir opnar
sýningu á Póstbamum í Póst-
hússtræti klukkan 17.
• RósaSig-
rún Jónsdóttir
opnar sýningu
í Gallerí
Hlemmi. Verk
hennar heitir
„Um fegurðina" og sam-
anstendur af 10 þúsund saman-
saumuðum eyrnapinnum og
vídeói.
• Þýski myndlistarmaðurinn
Ingo Fröhlich opnar sýningu í
Gailerí Kling og Bang, Laugavegi
23 klukkan 18.