Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2004, Qupperneq 45
DV Fókus
LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 2004 45
Meistarinn ng Mnrgrét
Djöfullinn sjálfur
Hermódur og Hádvör:
Meistarinn og Margrét eftir Mik
Suður í Hafnarflrði hefur Hilmar
Jónsson rekið leikflokk í nær tíu ár
sem upphaflega hét Hermóður og
Háðvör en er þekktari sem Hafnar-
fjarðarleikhúsið. Flokkurinn var í
upphafl íjölmennari: hópur leikara;
Leikhús
Gunnar Helgason, Björk Jakobsdótt-
ir og Erling Jóhannesson voru lengst
af kjarninn í þessum hóp, ásamt
Finni Arnarsyni myndlistarmanni.
Gunnar, Björk og Finnur eru horfln
úr hópnum: Björk fór með Selfófón
til Reykjavíkur og er það annað
dæmið á síðustu mánuðum um hve
leikhúsum helst illa á rétti sínum;
hitt er Rómeó og Júlía Vesturports
sem fór mikla för til London án þess
að minnst væri á framlag Leikfélags
Reykjavíkur og íslenska dansflokks-
ins til þeirrar sviðsetningar.
Hafnarfjarðarleikhús er rekið á
styrk frá ríki og bæ og hefur nýlega
framlengt samning sinn við styrktar-
aðila og jafnframt fengið nýtt hús-
næði, en til þessa hefur kompaníið
verið til húsa í gömlu frystihúsi við
höfnina þar suður frá, löngum sal en
lágum undir loft. Húsnæðið kom
upphaflega til í neyð og hefur sett
svip á allar sviðsetningar þar. Guði
sé lof að leikstarfsemi verður þar
hætt eftir ganginn á Meistaranum
og Margréti sem Hafnarfjarðarleik-
húsið frumsýndi í fyrrakvöld við
góðar undirtektir vina og vanda-
manna.
Þeir gjafmildu
Hafnarfjarðarleikhúsið er
„sweatshop". Þar vinna allir undir
viðurkenndum töxtum, þar færast
menn hið ómögulega í fang og kom-
ast oft upp með það - næstum.
Leikhópar eins og þessi þrífast á
hinum gjafmildu, vilja listamanna
til að tjá sig og þroska með von um
að eðlilega launuð verkefni komi í
kjölfarið. Þannig bjó hópurinn til
leikstjóra úr Hilmari, fleiri lista-
menn hafa þarna sýnt hvað í þeim
býr sem annars hefði ekki sést. Fjár-
magnið sem hópurinn fær og aflar
dugar til að koma einni sviðsetn-
ingu í gang, rest er kláruð á fórnfýsi
og stolnum tíma.
Á sömu forsendum getur Hilmar
kallað til áhugamenn til ýmissa
starfa: frumsýning með fjölda bún-
inga, níu fullburða leikurum, ótal
gervum, leikmynd í sérhönnuðu
rými, sjö manna statistahóp, tón-
skáldi, ljósahönnuði og dansahöf-
undi, að ógleymdri lúðrasveit, er af
stærðargráðu sem stærri leikhús
hika við. En þau þurfa líka að borga
allt eftir töxtum.
Hvað ríki og bær komast lengi
upp með að standa svona að at-
vinnurekstri er spurning. Á frum-
sýningu voru þau sperrt Hafnfirð-
ingarnir, ráðherrann og bæjarstjór-
inn. Myndu þau láta sjá sig á öðrum
vinnustað sem byggi við þannig
rekstrarskilyrði nema til þess að loka
honum? En það má alltaf monta sig
af menningunni.
Flókin fantasía
Þetta er stórsýning og metnað-
arfull tilraun til að koma flókinni
og stórkostlegri sögu á svið. Og það
skal ekki skafið af hópnum að
vinnan skilar árangri: sýningin er
skemmtileg, litrík, fjölbreytileg, full
af glæsilegum og skínandi hug-
myndum. Hér verður ekki dvalið
við hvernig leikgerðin er í sam-
ræmi við prentaða þýðingu sem nú
liggur fyrir í þriðju útgáfu á ís-
lensku. Sagan er mörgum kær en
samtvinnuð er hún ævi skáldsins
og þeim tíma sem skóp hana, án
þeirra tengsla sem eru fáum kunn
og gleymast, verður hún einungis
skemmtileg fantasía, full af skringi-
legum persónum, skopi, æsingi og
drama.
Sýningin er sett í aflangt rými
sem torveldar, einkum í síðasta
hluta, nánara samband áhorfenda
og leikenda, en það er lengst af not-
að af dirfskufullu hugviti og vel lýst.
Hér má sjá eitt besta dæmi um sjón-
varpsgeisla sem áhrifavald og ljós-
gjafa sem sést hefur á sviði. Rými og
birta eru meistaralega löguð að
framgangi verksins og einföld en
snjöll leikmynd vel nýtt.
Fríður flokkur
Tuttugu og sjö tilgreind hlutverk
leikin af níu leikurum! I fyrri hluta
verksins fær hópurinn að njóta sín
til fulls í trúðslegum tflburðum, grá-
um glettum og glefsum úr persón-
um. Þar er margt frábærlega vel gert
og jafn straumur í öllum gáttum. í
síðari hluta, þegar lyktir eru £ nánd,
er sýningin borin af færri kröftum og
þá sést hvað hópurinn er misþroska.
Sá sári og dramatíski tónn sem sleg-
inn er verður á stöku stað tómur.
Reyndar má segja að það vanti ein-
hverja snerpu og skýrleika í seinni
partinn allan.
Hér verður að tala í þrenningum:
Margrét, Elma og Sólveig njóta sín
langbest framan af í örlitlum bútum,
þær eru fjölhæfar og hressandi.
Margrét ein situr svo eftir með stór-
an part sem hún höndlar vel framan
af en verður undir lok nokkuð kunn-
ugleg í brögðum sínum. Strákarnir:
Jón Páll, Hjálmar og Páll eru í sama
mund órjúfanlegur partur í fínum
fyrri hluta og gefa ekkert eftir. Páll og
Jón að vaxa enn og Hjálmar kominn
aftur á svið í fínu formi. Það rifjaðist
upp hvað það var gaman að sjá hann
á sviði í fyrsta sinn - hann er flinkur
leikari og verður vonandi í vinnu á
sviði áfram.
Jesús, Kölski og Matteus
Kristján Franklín hefur lengstan
feril að baki sér í hópnum. Og það
sést langar leiðir að hann hefur á
ferli sínum tekist á við margan
ódáminn: Djöfullinn hans er fágað-
ur andi, glæsilegur og vel gefinn
skratti. Þetta er fínlega balanseraður
performans, frekar á lágu tónunum,
og minnir mann á hvaða kraftur
Kristján er, fái hann rúm til að leika.
Egill Heiðar fær það erfiða hlut-
skipti að vera góði maðurinn í hild-
arleiknum og sleppur frá því. Hann
skortir reynslu og kraft til að skila
Jesú en sem Meistarinn veldur hann
betur spilum sínum. Erling fer með
stór hlutverk Besdomni og Matteus-
ar. Þau eru bæði fuU örvæntingar og
heimta ólíka aðferð í beitingu radd-
ar og líkama, en verða of keimlík og
túlkun á tímum hol. Hér bregst leik-
hail Bulgakov.
Leikendur: Erling Jóhannesson,
Egill Heiðar Anton Pálsson, Mar-
grét Vilhjalmsdóttir, Jón Páll Eyj-
ólfsson, Hjálmar Hjalmarsson,
Kristján Franklín Magnús, Elma
Lísa Gunnarsdóttir, Sólveig Guð-
mundsdóttir, Páll S. Pálsson.
Leikstjóri: Hilmar Jónsson. Leik-
mynd: Börkur Jónsson. Búningar:
Þórunn María Jónsdóttir. Ljós:
Egill Ingibergsson.Myndbönd:
Gideon Kiers. Gervi: Ásta Haf-
þórsdóttir. Dansar: Ólöf Ingólfs-
dóttir. Tónlist: Margrét Örnólfs-
dóttir.
Frumsýning 7.janúar 2004.
stjórinn sínum tryggasta samstarfs-
manni en líklega er sambúð þeirra
orðin of löng.
Óþarfa smælingjasamúð
Það er sem sagt vel þess virði að
fara í Fjörðinn og sjá þetta spektakel.
Það hefur lengi verið dálítil smæl-
ingjasamúð í umfjöllun um þennan
leikflokk. Hann verður að rísa yfir
það.
Skoðum síðast framlag fjögurra
kvenna sem búa sýningunni hljóm,
húð, föt og hreyfingu: Þórunni fyrst.
Búningarnir hennar em æði,
skondnir og sumir smart á sinn hátt,
litabygging glæsileg og saumaskap-
urinn hefur verið óheyrilegur. Ásta
hefur gert maska í nokkrum sýning-
um Hilmars og er listamaður á sínu
sviði. Magga örnólfs er farin að
semja lúðrasveitarmúsik! Tónlist
sem setti yndislegan svip á sýning-
una og gaf henni hafnfirskt útlit með
fínum keim frá evrópskum blæstri á
fjórða áratugnum. Þá er ónefhd Ólöf
sem leiðir alfa í hreyfingu með mikl-
um ágætum og skemmtilegri tilvís-
un í Meyerhold.
Allan hópinn leiðir Hilmar að
niðurstöðu sem er vel viðunandi:
stóran og stílfærðan ópus sem er
trúr verkinu og sýnir röggsama og á
köflum snjalla leikstjórn.
Það er ekki ónýtt að eiga góðar
konur að - eins og Meistarinn mátti
reyna af henni Margréti sinni í leikn-
um fræga af þeim hjúum í Hafnar-
firði.
Páll Baldvin Baldvinsson
Stjörnuspá
Sverrir Guðjónsson söngvari er 54 ára f
dag. „Maðurinn finnur ef-
laust fyrir þægilegri
en stöðugri jarð-
tengingu sem
eflist hvern dag
héreftirárið
fram undan og
innri ró sem ýtir
undir friðinn
sem býr í
hjarta hans,"
segir í stjörnu-
spá hans.
Sverrir Guðjónsson
VY Vatnsberinn tio.jnn.-i8. mk.)
vv ----------------------------------
Ekki gefa fólkið sem þú elskar
upp á bátinn þótt þú finnir ekki fyrir því
jafnvægi sem eflir þig. Hlustaðu vel á
lífsins hljómkviðu og reyndu að bera
kennsl á það sem er gefandi.
H
F\SkmÍr (19. febr.-20.irws)
Framkvæmdu án erfiða.Taktu
ákvörðun innra með þér um að hætta
að veita viðnám. Leyfðu hlutunum að
vera eins og þeir eru en þegar þú opnar
huga þinn fýrir öðrum sjónarmiðum og
ert ekki bundin/n neinu lifna þrár þínar
vissulega við.
Hrúturinn (21.mrs-19.opm)
Skilningur býr í hjarta þínu og >
hann segir þér að þú ert fær um að fá
það sem hugur þinn stendur til. Ekki leyfa
þér að ímynda þér annað. Með því að efla
eigið sjálfstraust er fólk fætt undir stjörnu
hrútsins fært um að framkvæma aðeins
með því að bera óskirnar fram.
T
Ö
NaUtÍð (20. april-20. mai)
n
Gættu þess að vinna ekki of
mikið, skemmta þér ekki um of eða
gera of mikið úr hlutunum sem þú upp-
lifir. Staða sólar segir þig þurfa að berj-
ast fýrir rétti þínum en niðurstaðan
verður þér vissulega hagstæð.
Tviburarnirei.mil/-21.i1in/)
Endanleg ákvörðun þín sem
tengist febrúarmánuði 2004 kemur sér
vel fyrir þig. Líttu fram hjá göllum ann-,
arra, viljir þú öðlast sanna hamingju [
framtíðinni. Helgin færirfólki í merki
tvíbura jákvæðar fréttir sem vekja það
til umhugsunar.
(22.júní-22.júli)
----------------------------------
Þér er ráðlagt að forðast að
vera of góð/ur með þig og einblína á
þinn innri styrk til hjálpar þeim sem
þarfnast aðstoðar. Velgengni þín felst í
að veita öðrum hjálp þína.
Ljónið (23.júli-22. úgúst)
Þú virðist hafa auga fyrir af-
gerandi smáatriðum og ættir að huga
betur að því sem hvílir á herðum ein- ,^
hvers sem tengist þér tilfinningalega
(félagi eða fjölskyldumeðlimur).
Meyjan (23. ágúst-22. sept.)
Reyndu að draga úr bardaga-
fýsn þinni og stefndu hægt en stað-
fastlega að markinu sem þú hefur ávallt
stefnt að. Skynsemi er einkunnarorð
meyju fyrri hluta árs 2004.
o Vogin (23.sept.-23.okt.)
Þú státar án efa af afburða-
hæfileikum þegar mannleg samskipti
eru annars vegar og koma þeir sér vel
fyrir þig næstu daga og vikur (helgin
fram undan). Um þessar mundir ert þú^_»
minnt/ur á að þótt þú standir betur að
vígi er ekki þar með sagt að þú þurfir að
færa þér það í nyt.
ni
Sporðdrekinn (24.0U.-21.1t&>j
Ef þú kýst að draga þig burt
frá aðstæðum, skaltu ekki hika við það.
Þér er ráðlagt að hugsa þig vel um áður
en þú klárar málið sem tengist þér á
einhvern máta. Þú ert mikið að velta ^
þér upp úr umræddri líðan/máli sem er
í raun ekki þitt áhyggjuefni.
/
Bogmaðurinn (22n0v.-21.desj
Næstu dagar verða rólegir og
þú nærð að hvíla þig milli þess sem þú
tekst á við þitt innra jafnvægi sem er
ágætt um þessar mundir. Minntu þig á
hvaða áherslur skipta þig mestu máli
og einbeittu þér að því sem er gefandi
og jákvætt.
Steingeitin 122.de.-19.jon.)
Stjarna þín þrífst vissulega á
umhyggju og ástúð og hafðu hugfast
að framtíð þín er ekki fyrirfram ákveðin
eða 1' föstum skorðum heldur fer hún
eftir vali þínu og framferði.
SPAMAÐl ÍR.IS
Z