Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2004, Síða 2
2 MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 2004
Fréttir DV
Endalaus einokun
inokun og hringamyndun er ekki ný á
íslandi, þótt meira sé talað um hana en
I nokkru sinni fyrr. Alltaf eru það sömu,
gömlu kolkrabbafyrirtækin, sem stjórna
henni. Olíufélögin lækka sig, þegar Atlantsolía
kemur inn á markaðinn og hækka sig strax aft-
ur, þegar nýja félagið er búið með benzínið.
Þannig hefur það alltaf verið. Þegar
lággjaldafélög koma í millilandaflug, lækkar
gamla einokunin sig á þeim leiðum, en ekki
öðrum. Þegar lággjaldafélögin gefast upp,
hækkar einokunin sig upp í gamla okrið.
Þannig var þetta í grænmeti og bílatrygging-
um, vöruflutningum og innanlandsflugi.
Ráðherrar helmingafélags kolkrabbans og
smokkfisksins hafa aldrei sýnt neinar áhyggj-
ur af einokun og okri, hringamyndun og sam-
ráðum í benzíni og grænmeti, vöruflutning-
um og tryggingum og á ýmsum öðrum mikil-
vægum sviðum. Þeir hafa áhyggjulaust látið
heimska kjósendur borga brúsann.
Nú segjast ráðherrar hins vegar hafa feikn-
arlegar áhyggjur af upprennandi einokun og
hringamyndun í atvinnulífinu almennt og
sérstaklega í matvöruverzlun og fjölmiðlun.
Þeir segja, að setja þurfi lög til að stemma
stigu við illum öflum, sem hafa rutt sér til
rúms framhjá kolkrabbanum.
Þetta eru ekki alvöru sinnaskipti, heldur
byggjast þau á, að ráðherrar geta ekki dulið
gremju sína út af hnignun kolkrabbans. Sér-
staklega svíður þeim að hafa glatað fyrri yfir-
burðum í fréttamiðlun og misst tækifæri til
að bæta sér það upp með því að eignast fjöl-
miðla, sem misstu fótanna.
Breytingin í fréttamiðlun er þó. ekki meiri
en svo, að kolkrabbinn stjórnar enn rúmlega
þriðjungi hennar í landinu, bláskjá og
mogga, skjá eitt og sögu. Opnunin nægir bara
til að hindra kolkrabbann í að stjórna því,
sem þjóðinni er sagt vera í fréttum. En sú
breyting svíður og Davíð veinar.
Viðnám gegn einokun og hringamyndun er
mikilvægt, þótt annarleg sjónarmið ráði sinna-
skiptum valdamanna. Sérstaklega er brýnt að
gera samskipti peningavalds og stjómmála öll-
um almenningi gegnsæ. TU þess þarf lög um
gegnsæjar fjárrciður stjómmálaflokka, fram-
bjóðenda og annarra póhtískra afla.
Hingað tU hafa einokun og hringamyndun,
okur og samráð dafnað í skjóli leyndarinnar,
sem hvflir yfir fjárreiðum stjórnmálanna.
Kolkrabbinn og smokkfiskurinn hafa rekið
flokka eins og pólitísk útibú, sem gæta annar-
legra hagsmuna. Þetta lagast ekki fyrr en spil-
in verða lögð á borðið.
Núverandi valdhafar hafa aldrei tekið í
mál, að spilin verði lögð á borðið. Þeir meina
ekkert með nýjum orðum sínum um einokun
og hringamyndun. Þeir eru sjálfir versta af-
sprengi hennar. Þeir hafa alltaf varið hana,
þegar á reyndi. Einokun og hringamyndun er
sjálfur hornsteinn valdakerfis þeirra.
Þetta má fá staðfest með sólskinslögum,
sem draga tengsli fyrirtækja, stofnana og
stjórnmála fram í dagsljósið.
Jónas Kristjánsson
Hið bjartsyna
Frenab
„Gestir verða jú
að vera kurteisir,
annarserþeii
bara vísað
En verða
líka að
bjartsýi
Útgáfufélag:
Frétt ehf.
Útgefandi:
Gunnar Smári Egilsson, ábm.
Ritstjóran
lllugi Jökulsson
MikaelTorfason
Fréttastjórar
Kristinn Hrafnsson
Kristján Guy Burgess
DV: Skaftahlíð 24, Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjóm:
550 5020 - Aðrar deildin 550 5749
Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsing-
an auglysingar@dv.is. - Dreifing:
dreifing@dv.is
Setning og umbrot Frétt ehf.
Prentvinnsla: ísafoldarprentsmiðja
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagna-
bönkum án endurgjalds.
Fyrsta barnið
Á fréttavef Bæjarins
besta, bb.is, kemur fram
að fyrsti Vestflrðingurinn
er loksins kominn í
heiminn. En lítill drengur
fæddist á fæðingardeild-
inni á
fsafirði
síðast-
liðinn
þriðju-
dag kl. 01.40. Strákurinn
heftir ekki verið nefndur
en vd 9 merkur og mæld-
ist 49 sentimetrar á
lengd. Foreldramir eru
Jdhanna Torfaddttir og
Hallddr Þdr Helgason
sem búa á Hlfðarvegi 7 á
Isafirði og er drengurinn
fyrsta bam þeirra. Jd-
hanna segir þeim
mæðginunum líða vel í
gdðu yfirlæti á sjúkra-
húsinu á fsafirði.
Hættir að styrkja
tónlist
Á Suðurland.net kemur
fram að bæjarráð Ár-
borgar hefitr ákveðið að
framlengja ekki reglur
um greiðslur vegna tdn-
listarnáms í Reykjavík en
á haustönn greiddi sveit-
arfélagið
með
þremur
tiigdr-
um nem-
endum í þremur tdnlist-
arskdlum í Reykjavík.
Samkvæmt reglunum
sem samþykktar vom í
bæjarráði eyddi sveitar-
félagið um 356.800 f
þessa nemendur. Þeir
verða nú að borga brús-
ann sjálfir.
Ríkisstjórnin vann
Popppunktur bryddar
upp á þeirri nýjung að
vera ekki með poppara í
þeim þáttum sem sýndir
em nú. Á laug-
ardagskvöld
mættu stjdm-
arliðar stjdrn-
arandstæðing-
um. Kom á
dvart hversu
illa þau Mörður
Ámason og Kolbrún ®
Hallddrsddttir em að sér ^
í poppfræðum en þau
ásamt Magnúsi Þdr Haf- £
steinssyni (sem þdtti með 2
endemum poppfrtíður). Z
Það kom einnig á tívart "
hversu frtíðir stjdrnarlið- |
ar vom en lið þeirra skip- ™
uðu þau Guðlaugur Þdr
Þdrðarson, Jtínína Bjart- t,
marz og Sigurður Kári >
Kristjánsson, en hann
virkaði sem einskonar "
liðstjdri stjdrnarliða og e
spilaði þetta taktfskt. «
Enda vann stjdmin og
andstaðan hafði á orði ™
eftir dsigurinn að þetta t
væri í sfðasta skipti sem «
þeir bæm sigur úr bítum. ^
Guðmundur Magnússon sagnfræð-
ingur og fyrrum Þjóðminjavörður og
forstöðumaður Þjóðmenningarhússins
heldur útí vefsíðunni Frá degi tíl dags.
Þar fjallar hann um áhugamál sín, eink-
um stjómmál og Eimskipafélagið, á
nokkuð íjörlegan hátt. í gær veltí Guð-
mundur fyrir sér grein sem Gunnar
Smári Egilsson ritstjóri Fréttablaðsins
skrifaði og birtist þá um morguninn í
blaði hans. Gunnar Smári fjallaði þar
annars vegar um „tilfinningavæðingu"
og hins vegar „áhyggjuvæðingu" í sam-
félagslegri umræðu en endaði reyndar
á svotítið öðrum nótum þegar harrn
sagði:
„Vegna tals manna um pólitíska
slagsíðu fjölmiðla vil ég opinbera þann
draum minn að Fréttablaðinu auðnist
að vera hvorld hægriblað né vinstriblað
- heldur bjartsýnt blað. Ég held það
myndi með þeim hættí best skera sig
frá öðrum miðlum og auðga flóruna."
Um þessi orð skrifar Guðmundur
Magnússon:
„Eftir langan og nokkuð torskilinn
heimspekilegan texta um áhyggjur í
Fréttablaðinu ídag (sem éghéltfyrst að
Gunnar Dal hefði skrifað) en reyndist
vera eftir lærisvein hans Gunnar
Smára) kom þessi niðurstaða: Draum-
urinn er að blaðið verði hvorki hægri-
blað né vinstribiað heldur bjartsýnt
blað.
Bíðið nú við? Jú, hljómar spenn-
andi. En svolítið einkennilega.
Hvemig blað er bjartsýnt blað?
Er það blað sem aðeins flytur
skemmtilegar, uppörvandi ogglaðlegar
fréttir og greinar?
Er ekki hætt við að eitthvað verði út-
undan í svoleiðis blaði?
Og ef vísa á öllum fýlupokum á
Mogganri, þar sem nógu margir em
fyrir, verður það blað ólæsilegt. Er það
kannski viðskiptahugmyndin (leyni-
leg)?
Riflast upp fyrir mér í þessu sam-
bandi," heldur Guðmundur áfram,
„ummæli sem sá væni drengur Einar
Karl Haraldsson, fyrsti ritstjóri
Fréttablaðsins, lét frá sér fara þegar
blaðið hóf göngu sína. Eitthvað í þá
vem, að þar sem blaðið kæmi óbeðið
inn um lúgur allra landsmanna, ætl-
Fyrst og fremst
aði það ekki að flytja fréttir sem
kæmu fólki í uppnám eða stuðuðu
það. Getur ekki einhver hjálpað mér
að rifla þetta nákvæmar upp? Hann
talaði um blaðið sem gest á heimili
fólks - og gestir verða jú að vera kurt-
eisir, annars er þeim bara vísað á dyr.
En verða gestir líka að vera bjartsýn-
ir?
Hér em ærin umhugsunarefrú með
sunnudagskafBnu?"
Guðmundur lét þessar hugleiðingar
sínar um grein Gunnars Smára ekki
nægja, heldur bjó líka til skoðanakönn-
un þar sem hann spurði lesendur vef-
síðu sinnar: „Telurþú að bak við áform
um BJARTSÝNT Fréttablað búi LEYNI-
LEG viðskiptaáætlun um að gera
Moggann að vettvangi ólundar og ön-
ugheita?"
Fjórir svarmöguleikar voru gefnir:
1) Svarið liggur íaugum uppi.
2) Þetta er ekki nógu bjartsýn
spurning.
3) Nei, Jón Ásgeir er búinn að segja
að Fréttablaðið ætli ekki að útbreiða
hugmyndir um réttlæti.
4) Veitekki, Ookkslínan erekkikom-
in.
Við hér á DV veltum spumingunni
lengi fyrir okkur en völdum loks síðasta
svarið og kusum. í ljós kom að 33%
svarenda í könnunni vom sama sinnis;
það vantaði flokkslínuna áður en
spumingunni yrði svarað. En 67%
höfðu talið að svarið lægi í augum uppi,
sem væntanlega þýðir að svarið sé já.
Að vlsu vorum við aðeins þriðji aðilinn
sem þátt hafði tekið í þessari skoðana-
könnun Guðmundar.
Tvær aðrar skoðanakannanir eru
líka birtar á síðu Guðmundar. Önnur
er ósköp blátt áfram: „Errétt að þjóð-
in fái að vita hvað Davíð og Jóni Ás-
geiri fór á milli í Stjórnarráðinu á
föstudaginn?“ og eru svarmöguleikar
þessir: „Já, vegna þess að þeir hafa
deilt opinberlega “ - „Nei, svona sam-
töl eru prívatsamtöl." Afgerandi
meirihluti eða 67% telursamtalið ekk-
ert erindi eiga við almenning en 33%
vilja fá að vita hvað þeim fjandvinum
fór á milli. Þarna höfðu öllu fleiri kos-
ið, eða alls tólf.
Hin skoðanakönnunin snerist um
þá hugmynd Guðmundar sjálfs, sem
hann fékk eftir að hafa horft á SilfurEg-
ils á laugardaginn og látið sér leiðast
yftr karpi um kvótamál, að áhorfendur
gætu stöðvað umræður íþættinum og
neytt Egil Helgason tilað snúa umræð-
unni að öðru með því að Senda SMS-
skilaboð inn íþáttinn.
Spurning Guðmundar var þessi:
„Er rétt að áhorfendur Silfurs Egils
fái að segja STOPPmeð SMS boðum og
stöðva þannig leiðinlegar umræður í
þættinum?"
Svarmöguleikar voru þessir:
1) Já, það ernútímalegt oglýðræðis-
legt.
2) Veit ekki, ætla að bíða og heyra
hvað Gunnari Smára fírmst.
3) Nei, pupullinn á ekki að skipta sér
afgáfnavitunum.
Hér höfðu ails átta manns kosið og
völdu 50% - eða fjórir - fyrsta kostinn,
tveimur fannst ótækt að „pupuliinn“
væri að skipta sér af „gáfnavitunum “ en
tveir vildu bíða eftir áliti Gunnars
Smára.
Fyrst talið hefur borist að skoðana-
könnunum og stjómmálaafstöðu fjöl-
miðla, þá getum við nefrit að á vef
ungra jafiiaðarmanna, Pólitfkis, er
skoðanakönnun um okkur!
„HiðnýjaDVer...
1) OfdýrL
2) Of hægrisinnað.
3) Ekki að standa undir væntingum.
4) Mjög gott
5) Ofvinstrisinnað."
Ekki fylgir sögunni hveisu margir
hafa kosið í þessari könnun en niður-
stöðumar em þær að 54,3% segja okkur
vera of hægrisinnuð, 37,1% telja blaðið
mjög gott en hin svörin þijú fá hvert um
sig 2,9% atkvæða. Ef við gerum ráð fýrir
að 2,9% þýði eitt svar - eins og okkur
þykir ekki ósennilegt - má reikna út að
um það bil 18 einstaklingar standi á bak
við svar númer tvö og um það bil 12 bak
við svar númer fjögur.