Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2004, Síða 18
18 MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 2004
Fókus DV
Kvikmyndir • Rússneska kvik-
myndin Bróðir frá 1997 verður sýnd í
bíósal MÍR við Vatnsstíg klukkan 19.
Leikstjóri og handritshöfundur er Al-
exei Balabanov. Myndin er sýnd án
þýddra texta.
Fundirog fyrirlestrar •
Hanna Guðlaug Guðmundsdóttir,
listfræðingur flytur fyrirlestur í Lista-
háskóla íslands í Laugarnesi, stofu 24,
um ljósmyndun sem „nýjan“ miðil í
myndlist síðustu tvo áratugi í verkum
listamanna á borð við Richard Prince,
Cindy Sherman, Nan Goldin, Jeff Wall
o. fl. Fyrirlesturinn hefst klukkan
12.30.
hafa opnað sýningu í Nýlistasafninu.
Hún stendur til 17. febrúar.
• Myndlistarmaðurinn SnorriAs-
mundsson hefur opnað málverka-
sýningu á kaffihúsinu Sólón.
• Hafsteinn Michael hefur opnað
sýningu í Næsta galleríi, Næsta bar,
Ingólfsstræti la. Þetta er sjöunda
einkasýning hans.
• Rósa Sigrún Jónsdóttir hefur opnað
sýningu í Gallerí Hlemmi. Verkið sem
Rósa sýnir heitir „Um fegurðina" og
samanstendur af um það bil 10.000
samansaumuðum eyrnapinnum og
vídeói. Sýningin stendur til 31. janúar.
• Þýski myndlistarmaðurinn Ingo
Fröhlich er með sýningu sína Strich +
Linie / Lína + strik í Gallerí Kling og
Bang, Laugavegi 23. Sýning Ingo
stendur til 8.febrúar.
• f Hafnarhúsinu stendur yflr þema-
sýning úr verkum Errós í eigu safns-
ins.
• Á Kjarvalsstöðum stendur yfir
sýningin Ferðafirða, sem er sýn-
ing á míníatúrum eftir fjölmarga
íslenska listamenn. Þar stendur
einnig yfir sýningin „Myndlistar-
húsið á Miklatúni - Kjarvalsstaðir
í 30 ár". Báðum þessum sýning-
um lýkur 25. janúar.
ínu og skartgripaversluninni Hún og
hún, Skólavörðustíg 17b.
• Bima Smith sýnir olíumálverk á
striga í Gallerí Hnossi, Skólavörðustíg
3. Einnig sýnir hún olíumálverk eftir
sig í sýningarsal Hans Petersen á
Garðatorgi í Garðabæ.
• Sigríður Pálsdóttir er með ljós-
myndasýningu á KafB Nauthól í
Nauthólsvík. Sýningin heitir Mitt út-
sýni.
• Sýning á málverkum eftir BragaAs-
geirsson stendur yfir f forkirkju Hall-
grímskirkju. Sýningin stendur til 25.
febrúar 2004.
Sýningar • Gauthier Hubert og
Guðný Rósa Ingimarsdóttir
Lokaþáttur
Launráða
Önnur serían af spennu-
þáttaröðinni
Launráð (Ali-
as) hefúrverið
sýnd í Sjónvarpinu und-
anfarið og í kvöld er
komið að lokaþæt tin-
um. í þáttunum er fylgst
með hinni ungu Sidney
Bristow sem starfar hjá
CIA og eltist við
harðsvíraöa glæpamenn
umvíðaveröld.
Kalli Bjarni í
Höllinni
Kalli Bjami sigraði með yf-
irburðum í Idolinu á fostu-
dagskvöld eins og kunnugt
er. A næstunni skellir hann
sér f stúdíó með Þorvaldi
Bjarna til að taka upp
plötu, en plötusamning-
ur féll honum einmitt í
hlut fyrir sigurinn. Kalli
hefur aftur á móti þegar
fengið úthlutað stóru
verkefni því hann mun hita
upp á tónleikum bresku
s t úlknaliij ómsveitarinnar
Sugababes f Höllinni þann
áttunda aprH næstkom-
andi.
Gísli íNewYork
Ekkert hefúr enn fengist
staðfest um frekari land-
vinninga leikhópsins sem
setti upp Rómeó og Júiíu
í London á síðasta ári.
Sögur hafa verið uppi um
að sýningin muni fara
enn víðar á næstunni en
ekkert mun öruggt enn í
þeim efnum. Gísli öm
Garðarsson leikstjóri var
staddur í New York um helg-
ina en það mun ekki hafa
verið I tengslum við þetta.
Gísli var þar einungis í sak-
lausri skemmtiferð.
• Guðbjörg Iind er með • í Þjóðarbókhlöðunni stendur nú
málverkasýningu í galler- yfir sýningin „í orði og á borði", sem
Fjölmenni fagnaði níræðu en síungu Eimskipafélaginu
Afmælisgleði hjá oskabarni
itórlaxar Á myndinni eru frá vinstri talið; Þórður Magnússon stjórn
irmaður í Eimskip og áður fjármálastjóri féiagsins, Haraldur Sveins-
on stjórnarformaður Árvakurs, Kjartan Gunnarsson framkvæmda-
tjóri Sjálfstæðisflokks, Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson stjórnar-
naður og Magnús Gunnarsson formaður stjórnar Eimskips.
Fullur salur gesta í Háskólabíói fagnaði sl. laugardag
90 ára afmæli Eimskipafélags íslands, sem þar og þá var
haldið hátíðlegt. Starfsfólk og helstu mektarmenn þjóð-
arinnar mættu til hátíðarinnar og af þessu fólki mátti
ráða að félagið á í því hvert bein. í tölum sem forystu-
menn félagsins fluttu var bæði skyggnst til liðinnar tíðar
og horft fram á veg. Vikið að því hve stóran þátt félagið
átti í sjálfstæðisbaráttu eyþjóðarinnar - og sömuleiðis
hve tillegg þess hefði skipt miklu í uppbyggingu atvinnu-
h'fsins í seinni tíð.
Á hátíðinni var frumsýnd heimildarmyndin Leiðin er
greið eftir Pál Baldvin Baldvinsson þar sem varpað er
ljósi á 90 ára sögu félagsins. Ekki síst skipaútgerðar og
flutninga til sjós og lands, en hátíðin á laugardag var
öðru fremur afmæli þess þáttar í starfseminni. Þá var við
þetta tilefni flutt lagið eftir Magnús Þór Sigmundsson -
sem sungið var af þeim Páli Rósinkranz og Stefáni Hilm-
arssyni.
Að sýningu myndar lokinni var svo í anddyri Flá-
skólabíós efnt til hófs fyrir gesti, þar sem fólk rifjaði sög-
ur bæði frá sjó og landi sem allar tengdust Eimskipafé-
laginu, óskabarni þjóðarinnar.
slgbogl@dv.is
Sa mstarfskonur Gunnur B. Gunnarsdóttir og Sigþóra
Baldursdóttir sem báðarstarfa I skjalavinnslu Eimskips.
t góðri stundu Frá vinstri talið; Aðalheiður Vaigeirs-
dóttir, Sigrlður Hrólfsdóttir fjármálastjóri Eimskipafé-
lagsins, Gunnar Halldórs Sverrisson eiginmaður hennar '
og lengst til hægri Erlendur Hjaltason framkvæmda-
stjóri Eimskips ehf. en Aðalheiður er eiginkona hans.
Lífið eftir vinnu
Jæja
er samsýning Freyju Bergsveinsdóttur
grafísks hönnuðar og Guðrúnar Ind-
riðadóttur leirlistarkonu.
• I Ásmundarsafni stendur yflr sýn-
ingin Asmundur Sveinsson - Nútíma-
maðurinn. Þetta er yfirlitssýning hald-
in í tilefni af 20 ára afmæli Ásmundar-
safns. Hún stendur til 20. maí.
Tíkall fyrir
tómatsósuna
Þau nýmæli voru tekin upp á
veitingastöðum McDonalds nú um
áramótin að rukkað er fyrir
tómatsósuna. Frá því fyrsti McDon-
alds-staðurinn var opnaður hér á
landi fyrir um það bil tíu árum hefur
tómatsósan alltaf verið ókeypis en
nú er það breytt. Nú kostar hvert
bréf af tómatsósu tíu krónur. Reikna
má með að hver viðskiptavinur, sem
fær sér tómatsósu með matnum,
taki að meðaltali tvö til
fjögur bréf og
því er auð-
velt að sjá
að hér er
um um-
tals-
verða
verð-
hækk-
un að
ræða.
Ekki
er vitað
til þess að
nokkur annar
veitingastaður hér á landi rukki sér-
staklega fyrir tómatsósu með
frönskum kartöflum. Víðast hvar
borgar fólk fyrir kokteilsósu, og
þannig er því einmitt farið á
McDonalds, en ekki þekkjast dæmi
af hinu. Vitað er til þess að einhverj-
ir gestir hafa haft á orði að með þess-
um ráðahag væri fulllangt gengið,
enda með þessu brotið blað í ís-
lenskri veitingahúsasögu.
McDonalds Frá og með áramótum hefur
verið rukkað fyrir tómatsósu á staðnum.
Þátturinn Mind Control á mánudagskvöldum á Stöð 2 hefur vakið athygli margra
enda segist stjórnandinn, Derren Brown, lesa hugsanir. Allt stefnir í að hann verði
næsti David Copperfield.
Sálrænn sjónhverfingamaður
Hinn breski Derren Brown sem
sér um þættina Mind Control sem
sýndir eru á Stöð 2 á mánudags-
kvöldum hefur vakið nokkra at-
hygli undanfarið. Derren er hvorki
sjónhverfingamaður né svokallað-
ur sjáandi en hann býr samt sem
áður yfir hæfileikum til þess t.d. að
„lesa hugsanir". Sjónvarpsáhorf-
endur sem fylgst hafa með þáttun-
um eiga vart orð til að lýsa hrifn-
ingu sinni og allt stefnir í að hann
verði næsti David Copperfield.
Samt sem áður segist Derren alls
ekki vera sjónhverfinga- eða
galdramaður líkt og Copperfield
þótt hann hafi sjáfur mjög gaman
af slíkum brellum, ef þær eru vel
framkvæmdar. „Þetta eru ekki
galdrar eða neitt slíkt sem ég er að
fást við. Um leið og ég tala við fólk
er ég að koma ákveðnum hug-
myndum inn í hausinn á því. Eg
reyni svo að meta hegðun fólks,
svipbrigði og annað, og þannig get
ég komist að ákveðnum þáttum í
fari þess sem hjálpa mér við iðju
mína,“ segir Derren sem er
kannski best lýst sem sálfræðileg-
um sjónhverflngamanni. Meðal
þess sem hann hefur gert er að
giska á það sem fólk er að hugsa
um, sagt rétt til um í hvorri hend-
inni fólk heldur á peningi og það
allt að 10 sinnum í röð. Þá hefur
hann einstakt lag á því að vita
Les hugsanir Derren Brown sérum þáttinn
Mind Controlsem vakið hefur talsverða at-
hygli. Hann hefur einstakt lag á að vita hvað
fólk er að hugsa og viti nánast alltafhvort
fólk er að segja satt eða ekki. Sjón er sögu
rikari.
hvort fólk sé að segja ósatt eða
ekki.
„Þetta er kannski ákveðin blanda
af dáieiðslu og smá brellum sem
gera mér kleift að lesa fólk og þannig
spá fyrir um hvað fólk er að hugsa og
annað slíkt. Ég er samt ekki galdra-
maður og það er ekkert yfirnáttúru-
legt við þetta,“ segir Derren og ítrek-
ar aftur að yfirnáttúrulegir hlutir séu
ekki til. Hann var eitt sinn trúaður
kristinn maður en hefur nú snúið
baki við trúni þar sem hann segist
hafa uppgötvað blekkinguna á bak
við trúarbrögð. Sjón er sögu ríkari og
óhætt er að fólk mun undrast þegar
það sér Derren Brown að störfum í
fýrsta sinn.
Katrín kaupir
• w
sjonvarp
Katrín Atladóttir er líklega vin-
sælasti bloggari landsins. Katrfn
dvelur þessi misserin í Kaup-
mannahöfn þar sem hún
stundar framhaldsnám í
tölvunarfræði og leikur
badminton þess á
milli. Katrín sagði á
síðunni sinni,
www.katrin.is, frá því
að hún hafi hringt í
gaur sem var að
auglýsa sjón-
vörp til sölu.
„Hann átti ekki
þetta sem mig
langaði í en var
til í að vera bú-
inn að redda
sambærilegu á
sunnudaginn...
enívonn smell að
glæpon? Mér er
sama... ódýrt fjern-
syn!" sagði Katrín á
síðunni sinni.