Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2004, Page 9
J3V Fréttir
FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 9
fslensk erfðagreining Ekki vitað hverjirstóðu að skúffufyrirtæki iLúxemborg sem fékk
hundruð milljóna króna iþóknun fyrir viðskipti sem fóru fram á íslandi.
um rekstur félagsins, fjárhagslega
stöðu og framtíðarsýn. Tengslin
virðast því hafa verið nokkuð góð
milli bankanna annars vegar og ís-
lenskrar erfðagreiningar hins vegar.
Þess vegna er eðlilegt að spurningar
vakni um það hvaða hlutverk lúx-
emborgska fyrirtækið Biotek Invest
SA hafl haft í viðskiptunum.
Leyst upp í gegnum Panama
Lúxemborgska félagið Biotek In-
vest SA var stofnað 29. júní 1999, eða
hálfum mánuði eftir að íslensku
bankarnir tilkynntu um kaup sín á
hlutnum sem Biotek hafði það hlut-
verk að selja. í stjórn félagsins sátu
þrír lögfræðingar sem eru sam-
kvæmt heimildum DV sérfræðingar
í umsjón eignarhaldsfélaga í Lúxem-
borg. í gögnum í Lúxemborg er hægt
að finna samþykktir félagsins og
bréf sem ganga milli lögfræðinga
sem varða hlutafé og reikninga þess.
12. desember 2000 er greint frá því
að Biotek Invest SA hafi verið leyst
upp. Félagið sem leysti það upp,
Damato Enterprises er skráð í
Panama. í annarri færslu þar sem
Damato Enterprises kemur íyrir,
sem er þennan sama dag, 12. des-
ember 2000, er fulltrúi þess Yves
Schmit, sá hinn sami og skrifaði
undir samningana við forsvarsmenn
íslenskrar erfðagreiningar fyrir hönd
Biotek Invest SA.
Ekkert um bankasamning á
Nasdaq
í gögnum sem Decode genetics
lagði fram til íjármálaeftirlits Banda-
ríkjanna þegar félagið var skráð á
Nasdaq, er engar upplýsingar að
finna um samninginn sem undirrit-
aður var í Listasafni íslands 16. júní
1999. Þar er hins vegar að finna
samning milli Decode genetics og
Biotek Invest SA frá 30. júní 1999.
Undir þann samning skrifa Kári
Stefánsson fyrir hönd Decode
genetics og Yves Schmit fyrir hönd
Biotek. Einnig er birtur viðauka-
samningur frá 24. febrúar 2000 þar
sem Hannes Smárason skrifar undir
fyrir hönd íslenskrar erfðagreining-
ar. Samningurinn sem er lagður
fram á Nasdaq fól í sér að næði Biot-
ek ákveðnum skilyrðum um verð á
Tengslin virðast því
hafa verið nokkuð
góð milli bankanna
annars vegar og ís-
lenskrar erfðagrein-
ingar hins vegar. Þess
vegna er eðlilegt að
spurningar vakni um
það hvaða hlutverk
lúxemborgska fyrir-
tækið Biotek Invest
SA hafi haft í við-
skiptunum.
hlutunum í Decode, fengi félagið 7%
þóknun. Sérfræðingar sem DV hefur
rætt við segja þetta háa þóknun
miðað við það sem bankar voru að
taka fyrir að sjá um hlutaijárútboð af
þessu tagi.
I gögnum Decode frá 28. mars
2001 er greint frá því að frá 30. júní
til 8. ágúst 1999 hefði kaupandi í
Lúxemborg séð um söluna á 5
milljón hluturn í Decode til ís-
lenskra íjárfesta, uppfyllt skilyrði
samningsins og fengið greidda um-
samda þóknun, 5.250.000 dollara.
DV spurði Hannes Smárason að
því í síðustu viku hverjir hefðu séð
um söluna til íslensku bankanna
sumarið 1999 og hverjir stæðu að
fyrirtækinu í Lúxemborg. Hannes
vildi ekki ræða málið þá en sam-
þykkti að svara spurningum blaðs-
ins daginn eftir. Síðan hefur ekki
náðst í hann og hann ekki svarað
skilaboðum blaðsins. Upplýsinga-
fulltrúi íslenskrar erfðagreiningar
lofaði að bera málið upp við for-
stjóra og aðstoðarforstjóra en það
hafði ekki skilað árangri þegar upp-
lýsingafulltrúinn hvarf til annarra
starfa. Síðan hefur blaðið komið
skilaboðum til Kára og Hannesar í
gegnum ritara en þeir ekki svarað
þeim.
kgb@dv.is
Frá undirritun í Listasafni fslands Sigurður Gísii Pálmason, BjarniÁrmannsson, KáriStef-
ánsson, Halldór J. Kristjánsson og Stefán Páisson skrifa undir stærsta hiutafjársamning sem til
var á Islandi á þeim tima. Ekkert er að finna um þennan samning i gögnum Decode á Nasdaq.
Gekk í skrokk á öldruðum vistmanni aðfaranótt föstudags
Starfsmaður vistheimilis
misþyrmdi 86 ára konu
Starfsmaður á dvalarheimili aldraðra í Víðinesi gekk
í skrokk á vistmanni, háaldraðri konu, aðfaranótt föstu-
dags. Aðrir starfsmenn urðu vitni að því er starfsmaður-
inn lagði hendur á konuna. Að sögn lögreglu var málið
ekki kært til embættisins fyrr en í gær og er litið á þetta
sem alvarlegan atburð. Rannsókn á málinu hefst þó
ekki af fúllum þunga fyrr en í dag. Lögreglan hefur ekki
skýringar á því að málið var ekki kært fyrir en langt var
liðið frá atburðinum. Víðines er rekið af Hrafnistu.
Lögmannsstofa kærir
Kæran barst frá lögmannsstofunni Logos, en þar er
Jakob Möller einn eigenda. Hann segir í samtali við DV
að leitað hafi verið eftir ráðgjöf lögmannsstofunnar
strax og málið kom upp. „Það var strax gripið til að-
gerða á föstudag og manninum sagt upp störfum," seg-
ir Jakob. Konan er fædd árið 1917 og er því á 87. ald-
ursári. Fram kom í fréttum Sjónvarps í gærkvöld að
tveir starfsmenn hjúkrunarheimilisins hefðu orðið vitni
að því þegar starfsmaðurinn löðrungaði konuna aftur
og aftur, í þremur lotum. Enn fremur kom fram að það
stórsæi á konunni um allan líkamann. Maðurinn er
næturvaktmaður í Víðinesi en konan þarf aðstoð við
allar sínar þarfir og var maðurinn að fylgja henni á sal-
ernið. Sjónvarpið greinir frá því að forsvarsmenn hjúkr-
unarheimilisins hafi strax haft samband við landlækn-
isembættið, eins og þeim beri lögum samkvæmt. Jafn-
framt hafi ættingjum konunnar verið gert viðvart. Lög-
mannsstofa Hrafnistu, Logos, hafi svo komið kærunni
til skila í gær og bent á vitnin að atburðinum. 40 manns
eru til heimilis í Víðinesi. Ekki náðist í forsvarsmenn
Hrafnistu í gærkvöld vegna fundahalda og vildi starfs-
fólk í Víðinesi ekkert tjá sig málið og bar við trúnaðar-
skyldu.
Kæra ofbeldi Vitni voru að atburðum og var manninum umsvifaiaust
vikið úr starfi. Málið var kært til lögregu í gær.
www.sumarferdir.is
575 1515 BÓKAÐU ALLAN SÓLARHRiNGINN
cccccc i-
Enn ein fjölskylduparadísin á Spáni. Sumarferðir kynna nýjan viðkomustað á Spáni. Calpe er aðlaðandi
sjávarþorp sem býður upp á mjög marga skemmtilega kosti fyrir ferðamenn hvort heidur sem er til
afslöppunar eða afþreyingar.
Verð frá 52.600kr.
Vefð á mann, rn.v’ 2 fulioróna og 2 börn i herbergí í .14 daga-og að bokað sé
á *vw.$urnarferdir.is. Ve»ð m.v. 2 'fuiiorðna á sams tíma er69.200 á rnann. S(rnabt%unafgiaid
er IftOO á fadjep. innífalið: fíug. fiugvailaskattar, gisting cg íslensk fararstjorn.
Ný, vel staðsett og glæsileg íbúðagisting með öllum hugsanlegum
þægindum á ströndinni við smábátahöfnina í Calpe. Vilji menn
gera vel við sig og slappa af I fríinu þá er Barlovento hreint
frábær kostur. Eitthvað sem við eigum öll skilið!
mundu eftir
MasterCard
ferðaávísuninni
sum
“Y
n
FEimU
u