Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2004, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2004, Page 10
10 FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 Fréttir DV Vatnsberinn vafrar um réttarsali í Héraðsdómi Reykjavik- ur hefur verið tekið fyrir mál Þórhalls Gunnlaugssonar, sem kenndur er við Vatns- berann, gegn einum af sam- föngum sínum á Litla- Hrauni íyrir meinta líkams- árás vorið 2002. Krafa Þór- halls gengur út á það að ís- lenska ríkið og Fangelsis- málastofnun séu skaða- bótaskyld vegna hinnar meintu líkamsárásar. At- burðurinn á að hafa gerst hinn 13. maí 2002, innan veggja Lida-Hrauns. Tildrög eru óljós en samfangi Þór- halls, sem er meðal stefndu, ber hins vegar af sér allar sakir og segir málið upp- spuna Þórhalls. Sem kunn- ugt er af fréttum er mál á hendur Þórhalli fyrir hér- aðsdómi nú en hann er sak- aður um að hafa m.a. falsað skuldabréf á dánarbú Agn- ars W. Agnarssonar, manns- ins sem hann myrti; að hafa falsað tannlæknareikinga meðan hann afplánar dóm fyrir morðið o.fl. Ráðherra spurður um dyrahald í at- vinnuskyni Kolbrún Halldórsdóttir, þingmaður vinstri grænna, hefur lagt fram skriflega íyr- irspurn á þingi til Sivjar Friðleifsdóttur umhverfis- ráðherra um d vinnuskyni. Hún óskar skriflegs svars í fimm liðum, meðal annars um ræktun sem ekki fell- ur undir bú- ijárhald. Hve mörg dýr séu á bak við hvert leyfi, starfs- mannafjölda, eftirlit og hvort yfirvöldum hafi borist kvartanir vegna starfsemi af því tagi. Þá spyr þingmaður- inn hvort til standi að end- urskoða reglugerð nr. 499/ 1997, um dýrahald í at- vinnuskyni, og ef svo sé hvar sú vinna sé á vegi stödd. Reikna má með að svar berist innan þriggja vikna. Halldór Blöndal, forseti Alþingis Flalldór er allra skemmtileg- asti maður á góðri stund, fjöl- fróður, vel að sér og skáld- mæltur. Afar trygglyndur, hjartastór og má ekkert aumt sjá. Kostir & Gallar Hann er fljótfærur og stund- um gætir hjá honum vanstill- ingar I skapi. Hann hefur fíls- minni ef einhver gerir eitthvað á hans hlut og man ótrúlega vel gjörðir pólitískra andstæð- inga. Halldór er dómharður og al- veg óhugnanlega frekur efsvo ber undir. Fljótur upp og fljótur niður. Það fer ekkert á milli mála að honum leiðist ekki að það skyldi vera haldinn fundur í ríkisráði í fjarveru Ólafs Ragnars og fjaðrafokið I kring- um það. Mikil átök urðu á Alþingi um frumvarp Valgerðar Sverrisdóttur um verndun sparisjóðanna. Pétur Blöndal fór mikinn í ræðustól og sagði að með frumvarpinu væri ráðist sérstaklega á sölu SPRON. Hann sakaði stuðningsmenn frumvarpsins um óheiðarleg vinnubrögð og íhugar nú að fara í skaðabótamál við ríkið. „Það er ekki ólíklegt að stofnfjáreigendur SPRON fari í skaðabótamál ef salan til KB banka gengur til baka,“ segir Pétur Blöndal sem fór mik- inn á Alþingi í gær í umræðunni um lög gegn sölu Sparisjóðs Reykjavíkur. Hann segir það alvarlegt að verið sé að setja afturvirk lög sem kippi grunn- inum undan þeim samningi sem gerður var milli KB banka og SPRON á sínum tíma. Varðandi möguleg skaðabótamál stofnfjáreig- enda segir Pétur það ekki ólíklegt að hann verði í þeim hópi. „Þetta er samt mál sem ég þarf að hugsa,“ segir Pétur, „alveg eins og hver annar stofnfjáreig- andi." Græðgin leitt Pétur á villigötur „Eg fagna því ef Pétur ætlar að kæra r£kið,“ segir Lúðvík Bergvinsson, þing- maður Samfylkingarinnar, en hann stóð í hörðum deilum við Pétur á Alþingi í gær. „Menn eiga auðvitað að leita réttar síns ef þeir teija á sér brotið en ég held Lúðvík Bergvinsson ai. að þetta mal sým okkur að þingismaaur Égfagna ef menn eiga peninga þvt ef Pétur ætlar að kæra og hugmyndaauðgi ríkið. getur fátt stoppað þá." Inntur eftir því hvað hann ætti eigin- lega við, sagði Lúðvík: ,Ætli græðgin hafi ekki einfaldlega leitt Pétur á villigötur." Klárlega afturvirkt Eiríkur Tómasson lagaprófessor tek- ur undir þá skoðun Pétur Blöndals að verið sé að setja afturvirk lög. „Frum- varp Valgerðar er klárlega aftur- virkt en það er ekkert í lögum sem bannar slíka lagasetningu," Eiríkur. Bæði Lúðvík og Pétur Blöndal óskuðu á Alþingi í gær eftir skýrum svörum frá Valgerði Sverr- isdóttur um hvort frum- varpi hennar væri sérstak- legabeintgegokaupumKB banka a SPRON. Engin svor vjrkt fengust frá Valgerði en Lúðvík segir það aiveg skýrt af hans hálfu að ver- ið sé að stöðva kaup KB banka á SPRON. .Auðvitað er frumvarpinu beint þessari söiu en því játaði ekki," segir Lúðvík. „Kenningar eru uppi um að efhúntali af- dráttar- Eiríkur Tómasson laga- Val- laust um málið gæti það gefið höggstað á ríkinu en ég get ekkert staðfest um það." Lúðvík segir mál- flutning Péturs Blöndals og Eiríks Tómassonar um afturvirkni laga hjákátlegan. „Þetta er einfald- lega ekki rétt því salan á SPRON hefur ekki enn gengið í gegn og mun ekki gera fyrr en 10. febrúar á fundi stofnfjáreiganda," segir Lúðvik og bendir á þá augljósu staðreynd að 10. febrúar hefur ekki enn runnið upp og þangað til sé ekkert að því að setja ný lög. Óánægja stjórnarmanna Það er því ljóst að frumvarp Valgerðar gengur nær eingöngu út á það að stöðva sölu SPRON, þótt orðalagið sé almennt. Þeir sem eiga hagsmuna að gæta varðandi söluna sitja nú eftir með sárt ennið og Árni Þór Sigurðsson, forseti borgarstjórnar, sendi frá sér ályktun í gær þar sem kemur fram að honum flnnist nú rétt að hætta við að breyta SPRON í hlutafélag. Hildur Petersen, stjórnarmaður í SPRON, harmar það að ekki var hægt að halda áfram með söluna. „Mér hefði þótt vænlegt fýrir þjóðfélagið að SPRON hefði verið selt,“ segir Hildur. „Auðvit- að eru stofnfjáreigendur óánægðir en ég tel ekki miklar líkur á því að ég muni fara í skaðabótamál." Hildur segir samt að hún telji líkur á að einhverjir aðrir muni gera það en vifl ekki tjá sig frekar um þau mál. Pétur er eyland Frumvarp Valgerðar verður vafalaust samþykkt með miklum meirihluta á Alþingi. Þverpólitískur vilji er hjá öllum flokkunum um að standa vörð um sparisjóðina og eru menn sammála um að verndun SPRON skipti þar höfuðmáli. Ef SPRON falli út úr sparisjóðsfjölskyldunni sé grundvöflur sparisjóðanna brostinn. Þó er útlit fyrir að einn al- þingismaður muni greiða atkvæði á móti frum- varpinu, og það er Pétur Blöndal, sem hefur að mati fjölda þingmanna alltof mikiOa hagsmuna að gæta til að geta fjallað um málið á eðlilegan hátt. Lúðvflc Bergvinsson segir að hann sé mjög ánægður með samstöðuna sem rfld um þetta mál á þingi og að hann hafi gert litla könnun á göngum Alþingis um hvarþingmenn standi. „Eini maðurinn sem ég rakst á og var á móti frumvarpinu, var Pétur Blöndal," segir Lúðvflc. „En hvort þessi könnun hefur verið vísindalega rétt á eftir að koma í ljós." simon@dv.is Óvissa með heimahjúkrun í höfuðborginni Hætta á að starfsmenn gangi út í apríl Starfsfólk heimahjúkrunar ganga út í apríl Sama staða komin upp og fyrirréttu ári þeg- ar samningum um bilastyrk var sagt upp. Heilsugæslan vill að starfsfólk noti blla sem teknir eru á rekstarleigu. Tæplega fimmtíu starfsmenn heimahjúkrunar munu ganga út og láta af störfum þann 1. apríl næst- komandi, en þá rennur úr gildi samningur sem starfsfólkið gerði við Heilsugæsluna í Reykjavík um heimahjúkrun. Fyrir ári var sama staða uppi en frá og með áramótum 2003 var öll- um sagt upp aksturssamningi sem gilt hafði allt frá 1990. Til stóð að þann 1. apríl í fyrra fengju allir starfsmenn bíl til umráða í vinn- unni. Því mótmælti starfsfólk heimahjúkrunar og sagði aksturs- samninginn hluta af sínum kjörum sem ekki væri hægt að segja ein- hliða upp. Kristjana Guðjónsdóttir, sjúkra- liði hjá heimahjúkrun, segir að Heilsugæslan hafi afturkcillað breytingarnar þá, en þess í stað hafi verið ákveðið að allir nýir starfsmenn fengju bíl til umráða í starfi. „Við töldum það ágætis lausn og þannig kæmu bflarnir smátt og smátt inn með endurnýj- un starfsfólks. Þess í stað kýs yflr- stjórn Heilsugæslunnar að fara svona að, en við lítum svo á að samningum okkar hafi verið sagt upp og göngum að öllu óbreyttu út þann 1. apríl,“ segir Kristjana. Hún segir að það hafi gengið vel að koma á breytingum með þeim hætti að nýir starfsmenn ynnu eft- ir nýjum samningum og með öllu óskiljanlegt að HeUsugæslan skuli endurtaka leikinn frá því í fyrra. „Það hvarflar að manni sú hugsun að þeir hafi dregið allt til baka í fyrra vegna væntanlegra kosninga. í ár er ekki kosið til þings," segir Kristjana. Guðmundur Einarsson, fram- kvæmdastjóri Heilsugæslunnar í Reykjavík, vildi ekki tjá sig um mál- ið en vísaði á Þórunni Ólafsdóttur hjúkrunarforstjóra sem ekki náð- ist í.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.